Fréttablaðið - 27.04.2009, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 27. apríl 2009 17
Ný vefsíða, www.tjalda.is, hefur
verið hrint úr vör. Meginmarkmið
síðunnar er að auðvelda ferða-
mönnum að finna sér tjaldsvæði
við hæfi. Þegar vefurinn var sett-
ur í loftið á dögunum voru þegar
á skrá 190 tjaldsvæði og eru 94
þeirra með nánari upplýsingum
og fjölgar á degi hverjum.
Síðunni er skipt í hluta eftir
landshlutum til að auðvelda leit-
ina en svo er tjaldsvæðum raðað í
stafrófsröð. Einnig er þar að finna
ýmsan fróðleik og fréttir. Þá geta
notendur einnig skrifað athuga-
semdir inn á tjaldsvæðin og miðl-
að þannig af sinni reynslu.
Á síðunni er einnig hægt að
velja nokkur mismunandi tungu-
mál en verið er að vinna í þýðing-
um. www.gocamping.is verður
það lén sem kynnt verður fyrir
erlendum ferðamönnum.
Vefsíða um
tjaldsvæði
TJALDSVÆÐI VIÐ HÆFI www.tjalda.is er
ný vefsíða.
Íslenskir áhugaljósmyndarar báru
sigur úr býtum í átta vikna alþjóð-
legri ljósmyndakeppni sem lauk á
dögunum. Fjórtán lið tóku þátt í
keppninni sem haldin var á vef-
síðunni Digital Photo Chall enge,
dpc.com, og var hvert lið skip-
að átta ljósmyndurum. Pólverjar
hrepptu annað sæti og Kanada-
menn það þriðja.
Liðin fengu það verkefni að
mynda vikulega og að svo búnu
voru greidd atkvæði um bestu
myndirnar vikuna á eftir. Sex
hæstu einkunnir hverrar viku
réðu stigafjölda liða og stóð það
íslenska uppi sem sigurvegari í
lokin.
Þess skal getið að einn íslensku
ljósmyndaranna, Örvar Atli Þor-
geirsson, var stigahæstur allra í
keppninni.
Auk hans skipuðu Ragnheið-
ur Arngrímsdóttir, Bragi J. Ingi-
bergsson, Þorsteinn H. Ingibergs-
son, Gunnar Salvarsson, Ófeigur
Ófeigsson, Birgir Sigurðsson og
Bogi Leiknisson íslenska liðið.
Stigahæstir í alþjóðlegri ljósmyndakeppni
STIGAHÆSTUR Ljósmynd Örvars Atla
Þorgeirssonar, Grjótpúsl, sem var í efsta
sæti í einni af keppnunum á Digital
Photo Challenge.
MYND/ÖRVAR ATLI
Vinátta, listahátíð barna, verður
opnuð í Duushúsum í Reykjanes-
bæ fimmtudaginn 30. apríl klukk-
an 10.30. Listasafn Reykjanesbæj-
ar stendur fyrir hátíðinni ásamt
tíu leikskólum bæjarins.
Þetta er í þriðja sinn sem há-
tíðin fer fram og að þessu sinni
þurfti að leggja alla sali Duus-
húsa ásamt Frumleikhúsinu undir
hátíðina, sem hefur stækkað með
hverju ári.
Meðan á hátíðinni stendur verð-
ur listasmiðjan Vinaland starf-
rækt í bíósal þar sem íbúum bæj-
arins gefst kostur á að skapa heilt
samfélag úr leirfígúrum. Smiðjan
verður opin alla hátíðina og for-
eldrum bent á að opið verður um
helgina frá klukkan 13 til 17.
Leikskólarnir standa svo fyrir
skemmtidagskrá í Duushúsum og
Frumleikhúsinu tvisvar á dag vik-
una 4. til 8. maí, klukkan 10.30 og
13.30, þangað sem allir eru vel-
komnir. Um þær uppákomur má
lesa frekar á vef listasafnsins,
reykjanesbaer.is/listasafn og hjá
viðkomandi leikskóla.
Listahátíð barna stendur til
föstudagsins 8. maí. Opnunartími
Duushúsa er frá klukkan 11 og til
17 virka daga og klukkan 13 til 17
um helgar.
Aldrei verið
umfangsmeiri
LISTAHÁTÍÐ Vinátta, sérstök listahátíð
barna, fer fram dagana 30. apríl til 4.
maí í Reykjanesbæ. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Iðnaðurinn árið 2012 óskar eftir vel menntuðu fólki til starfa.
Á næstu árum verða vaxtarsprotar íslensks atvinnulífs
í áliðnaði, byggingariðnaði, listiðnaði, líftækni,
matvælaiðnaði, málm- og véltækni, prentiðnaði
og upplýsingatækni.
Nám í verkmenntaskólum, háskólum og öðrum
menntastofnunum er skynsamleg leið til að búa
sig undir fjölbreytt tækifæri.
Byggingariðnaður
Áliðnaður
Líftækni
Prentiðnaður
Matvælaiðnaður
Listiðnaður
Véltækni
Málmtækni
Mótum eigin framtíð – Núna er rétti tíminn!
Samtök iðnaðarins – www.si.is
bhs.is
bifrost.is
fa.is
fb.is
fg.is
fiv.is
fnv.is
frae.is
fsh.is
fss.is
fsu.is
fva.is
hi.is
hr.is
idan.is
idnskolinn.is
klak.is
misa.is
mk.is
simey.is
tskoli.is
unak.is
va.is
vma.is
Upplýsingatækni
2012 tækifæri
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-0
0
6
6