Fréttablaðið - 27.04.2009, Qupperneq 4
4 27. apríl 2009 MÁNUDAGUR
Við hvetjum þig til að standa vörð
um viðbótarlífeyrissparnaðinn þinn.
Kynningarfundur mánudaginn 27. apríl
kl 17:15 í fundarsal Maður lifandi,
Borgartúni 24.
Auður Capital kynnir
585-6500 audur.is
Allir velkomnir
0 5 10 15 20 25 30
Norðaustur
B 25,3% (2 þingm.)
D 17,5% (2 þingm.)
F 1,6% (0 þingm.)
O 3,0% (0 þingm.)
P 0,3% (0 þingm.)
S 22,7 (3 þingm.)
V 29,7% (3 þingm.)
0 5 10 15 20 25 30
Norðvestur
B 22,5% (2 þingm.)
D 22,9% (2 þingm.)
F 5,3% (0 þingm.)
O 3,3% (0 þingm.)
P 0,4% (0 þingm.)
S 22,7 (2 þingm.)
V 22,8% (3 þingm.)
0 5 10 15 20 25 30
Suðvestur
B 11,6% (1 þingm.)
D 27,6% (4 þingm.)
F 1,5% (0 þingm.)
O 9,1% (1 þingm.)
P 0,6% (0 þingm.)
S 32,2 (4 þingm.)
V 17,4% (2 þingm.)
0 5 10 15 20 25 30
Reykjavík norður
B 9,6% (1 þingm.)
D 21,4% (2 þingm.)
F 1,6% (0 þingm.)
O 9,6% (1 þingm.)
P 0,9% (0 þingm.)
S 32,9 (4 þingm.)
V 24,0% (3 þingm.)
0 5 10 15 20 25 30
Reykjavík suður
B 9,7% (1 þingm.)
D 23,2% (3 þingm.)
F 2,0% (0 þingm.)
O 8,7% (1 þingm.)
P 0,6% (0 þingm.)
S 32,9 (4 þingm.)
V 22,9% (2 þingm.)
0 5 10 15 20 25 30
Suður
B 20,0% (2 þingm.)
D 26,2% (3 þingm.)
F 3,1% (0 þingm.)
O 5,1% (1 þingm.)
P 0,5% (0 þingm.)
S 28,0 (3 þingm.)
V 17,1% (1 þingm.)
18,8% (1)
29,1% (3)
13,6% (2)
21,2% (2)
16,0% (1)
24,6% (3)
28,0% (3)
5,9% (0)
20,8% (2)
19,6% (2)
7,2% (1)
42,6% (6)
6,7% (0)
28,4% (4)
11,6% (1)
6,2% (0)
36,4% (4)
6,3% (0)
29,2% (5)
16,9% (2)
5,9% (0)
39,2% (5)
6,8% (1)
29,0% (3)
14,4% (2)
18,7% (2)
36% (4)
7,0% (1)
26,8% (2)
9,9% (1)
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
21°
14°
15°
21°
20°
16°
16°
20°
19°
17°
21°
12°
28°
28°
20°
14°
19°
16°
4
6
6
4
6
5
12
Á MORGUN
10-15 m/s sunnan og
vestan til annars 3-8 m/s
MIÐVIKUDAGUR
10-18 m/s hvassast
sunnan og vestan til
10
8
7
6
5
3
5
5
5
1
3
1
3 3
3
12
6 8
8
88
8 14
14
1010
HLÝINDI
Segja má að yndislegt
veður verði á landinu
í dag. Á morgun bætir
í vind, einkum sunnan
og vestan til með
rigningu sunnan til og
vestan. Hlýtt verður
þó í veðri. Svipaða
sögu er að segja um
miðvikudaginn nema
að líkindum verður
úrkoman slitróttari og
vindur heldur stífari
sunnan og vestan til.
Almennt eru kortin
hlý þessa viku en frek-
ar vætusöm syðra.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
Ríkisstjórnarflokkarnir, Samfylk-
ingin og VG, fengu skýrt umboð
kjósenda til áframhaldandi sam-
starfs í kosningunum á laugar-
dag.
Báðir flokkar bættu við sig
fylgi og þingmönnum og hafa
fimm manna meirihluta á þingi.
Fylgi Samfylkingarinnar, sem
er stærsti flokkurinn á þingi,
jókst um þrjú prósent frá kosn-
ingunum 2007 og þingmönnum
hennar fjölgaði um tvo, úr átján
í tuttugu.
Fylgi VG jókst um 7,4 prósent
og þingmönnunum fjölgaði úr níu
í fjórtán.
Framsóknarflokkurinn bætti
einnig við sig fylgi. Það jókst um
3,1 prósent frá 2007 og þingmönn-
unum fjölgaði úr sjö í níu.
Borgarahreyfingin, sem bauð
fram í fyrsta sinn, fékk 7,2 pró-
sent og fjóra menn kjörna.
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði
gríðarlegu fylgi og hlaut sögulega
lélega kosningu. Flokkurinn hlaut
23,7 prósent atkvæða en fékk 36,6
Stjórnarflokkarnir
fengu skýrt umboð
Ríkisstjórnarflokkarnir hafa fimm manna þingmeirihluta. Þingmönnum
þeirra og Framsóknarflokksins fjölgaði. Borgarahreyfingin fékk fjóra menn.
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði níu mönnum og Frjálslyndir þurrkuðust út.
0 5 10 15 20 25 30
Landið allt
B 14,8% (9 þingm.)
D 23,7% (16 þingm.)
F 2,2% (0 þingm.)
O 7,2% (4 þingm.)
P 0,6% (0 þingm.)
S 29,8 (20 þingm.)
V 21,7% (14 þingm.)
11,7% (7)
36,6% (25)
7,3% (4)
26,8% (18)
14,3% (9)
prósent fyrir tveimur árum. Þing-
mannafjöldinn hrundi úr 25 mönn-
um í sextán.
Frjálslyndi flokkurinn, sem
fékk 7,3 prósent og fjóra menn
2007, hlaut aðeins 2,2 prósent í
kosningunum nú og þurrkaðist út
af þingi.
Fylgi Framsóknarflokksins,
Samfylkingarinnar og VG jókst
í öllum kjördæmum. Mest var
aukningin hjá Vinstri grænum í
Norðausturkjördæmi, rúm tíu pró-
sent. Sjálfstæðisflokkurinn tap-
aði alls staðar, og var tapið mest,
um fimmtán til sextán prósent,
í Reykjavíkurkjördæmunum og
Suðvesturkjördæmi.
Kosningar 2007
„Að almenningur skuli hafa tekið sig saman og náð 7,2 prósenta
fylgi á níu vikum er náttúrulega bara sigur fólksins,“ segir Birgitta
Jónsdóttir, talsmaður Borgarahreyfingarinnar. „Ég er sannfærð
um að okkar raddir munu hafa mikil áhrif á þinginu. Við ætlum
ekki að láta stjórnmálaskóla þingsins spilla okkur.“
Birgitta segir mikilvægast að nú fari þingheimur að vinna
betur saman. „Við verðum að einbeita okkur að því sem við
getum verið sammála um, frekar en að fara alltaf í skotgrafirnar. Þjóðin þolir
ekki meira af þeim.“ - hhs
SIGUR FYRIR ALMENNING Í LANDINU
„Úrslitin eru glæsilegur sigur okkar. Aðrar kosningarnar í röð erum
við stærsti sigurvegarinn,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna.
Steingrímur segir gríðarlega sveiflu hafa orðið til vinstri. „Nú er
möguleikinn á sterkri vinstri stjórn, með hreinan meirihluta á bak
við sig, til staðar í fyrsta skipti í okkar stjórnmálasögu. Framhaldið
er það að við ætlum að setjast niður og ræða málin, núverandi
samstarfsflokkar, og við munum ganga vasklega í það. Við göngum með bjartsýni
til viðræðna og ætlum okkur að sjálfsögðu að ná árangri og niðurstöðu.“ - gar
GLÆSILEGUR SIGUR OKKAR
„Úrslitin eru fyrir Sjálfstæðisflokkinn að mestu í samræmi við
kannanir,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins. „Vinstri grænir eru að fá minna en kannanir sögðu til um en
eru samt að vinna mikinn kosningasigur að mínu áliti.“
Bjarni segir ekki gott að segja nákvæmlega til um framhaldið.
„Það verður spennandi að sjá hvernig stjórnarmyndunarvið-
ræðurnar þróast. Þar er augljóst að Evrópusambandsmálið er
sá ásteytingarsteinn sem fyrirsjáanlegur var fyrir helgi. Ég efast ekki um að þeir
munu leggja mikið á sig til að halda þessu samstarfi áfram,“ segir Bjarni. Hann
telur ólíklegt á þessari stundu að Sjálfstæðisflokkurinn komi að ríkisstjórnar-
borðinu. - gar
LEGGJA MIKIÐ Á SIG TIL AÐ HALDA ÁFRAM
„Úrslitin eru auðvitað svekkjandi fyrir okkur. Vissulega hefðum
við viljað ná miklu betri árangri,“ segir Guðjón Arnar Kristjáns-
son, formaður Frjálslynda flokksins, sem fékk síðast fjóra menn
kjörna á þing en engan þingmann í kosningum á laugardaginn.
„Framhaldið hjá okkur er að stofnanir flokksins fjalla um
stöðuna. Við munum gera það á fimmtudaginn í miðstjórn og
við verðum einfaldlega að leggja okkar línur fyrir framtíðina, um
það hvernig við ætlum að vinna þetta,“ segir Guðjón Arnar. - gar
MUNUM LEGGJA LÍNUR TIL FRAMTÍÐAR
„Ég er ánægður með niðurstöðuna hjá okkur. Ég er hins vegar
ekki ánægður með að vinstriflokkarnir hafi haldið meirihluta,“
segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar-
flokksins. Hann segir erfitt að sjá besta kostinn í stöðunni núna.
„Það er ekkert stjórnarmynstur borðliggjandi eins og staðan
er núna. Vinstri flokkarnir virðast ekki vera að ná saman með
Evrópumálin og mér sýnist þeir munu ekki gera það, miðað
við yfirlýsingar beggja flokka. En mér sýnist úrslit kosninganna vera þannig að
Framsókn lendi í stjórnarandstöðu. Við reynum þá bara að vera uppbyggilegur
stjórnarandstöðuflokkur.“ - hhs
EKKERT STJÓRNARMYNSTUR BORÐLIGGJANDI
„Úrslitin eru stærsta stund í mínu lífi á þrjátíu ára ferli,“ segir
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar. „Þetta er
stórkostlegt. Draumur okkar jafnaðarmanna um að verða stærsti
flokkurinn á Íslandi var þarna að rætast. Það skiptir mjög miklu
máli í þessu breytta landslagi að félagshyggju- og jafnaðar-
flokkar eru komnir hér í meirihluta. Það var líka ánægjulegt að
konum er að stórfjölga á þingi,“ segir Jóhanna sem nú segir
viðræður við Vinstri græna um framhald stjórnasamstarfsins bíða. „Það er alveg
ljóst að Evrópusambandsmálin verða erfið en við ætlum að reyna að leysa þau.
Vonandi sjáum við til lands í því sem allra fyrst.“ - gar
STÆRSTA STUNDIN Á ÞRJÁTÍU ÁRA FERLI
„Við fengum nánast engan aðgang að fjölmiðlum fyrr en síðustu
dagana fyrir kosningarnar. Þannig að það var engin möguleiki að
kynna okkur á jafnréttisgrundvelli,“ segir Ástþór Magnússon, for-
maður Lýðræðishreyfingarinnar. „Ef hér á að vera lýðræði er þetta
eitthvað sem Íslendingar þurfa að laga - að hér sé óhlutdræg
umfjöllun um hreyfingar og stjórnmálaöfl.“
Ástþór segir að nú hafi þjóðin afsalað sér fullveldinu út kjör-
tímabilið. „Einhvern tíma mun þjóðin vakna við það að hún vill geta gert meira
en að berja búsáhöld. Hún vill geta tekið þátt í lýðræðinu inni á Alþingi, þannig
að Lýðræðishreyfingin hlýtur að koma aftur.“ - gar
LÝÐRÆÐISHREYFINGIN KEMUR AFTUR
2009