Fréttablaðið - 27.04.2009, Blaðsíða 8
8 27. apríl 2009 MÁNUDAGUR
N
æ
st
50
40
30
20
10
0%
1983 1987 1991 1995 1999 2003 2007 2009
38,7
19,0
27,2
40,7
36,6
23,7
18,9
23,3
11,7
14,8
26,8
31,0
29,8
9,1
14,3
21,7
4,2 7,3
2,2
Fylgi flokka í kosningum síðan 1983
26,8
2009
STJÓRNMÁL „Samkvæmt okkar útreikning-
um fellur Árni Johnsen niður um eitt sæti en
það er þá landskjörstjórnar að skera endan-
lega úr um það,“ segir Karl
Gauti Hjaltason, formaður
yfir kjörstjórnar í Suður-
kjördæmi.
Að sögn Karls voru
útstrikanir á Árna rúm-
lega eitt hundrað fleiri en
þurfti til að færa hann úr
öðru sæti í það þriðja á lista
Sjálfstæðisflokksins. Árni
sest engu að síður á Alþingi
að nýju þar sem Sjálfstæð-
isflokkurinn fékk þrjá þing-
menn í kjördæminu. Þá
segir Karl að um átta pró-
sent af kjósendum Sam-
fylkingar hafi gert breyt-
ingar við nafn Björgvins G.
Sigurðssonar, fyrrverandi
viðskiptaráðherra úr Sam-
fylkingu. Til þess að fram-
bjóðandi færist niður um
eitt sæti þurfa tuttugu prósent kjósenda þess
lista að strika út nafn hans.
„Það eru gífurlega miklar útstrikanir,“ segir
Sveinn Sveinsson, formaður yfirkjörstjórnar
í Reykjavíkurkjördæmi suður. Að sögn Sveins
hlaupa atkvæði með útstrikunum á þúsundum
í kjördæminu.
„Það virðast vera álíka margar útstrikanir
hjá stærstu flokkunum þremur,“ segir Sveinn
sem kveður aukalið verða kallað saman til að
fara yfir þessa atkvæðaseðla í dag. Alls kusu
36.926 í Reykjavík suður.
Erla Svanhvít Árnadóttir, formaður yfirkjör-
stjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir
að þar hafi um fjórtán prósent atkvæða verið
með útstrikunum. Það gerir um fimm þúsund
atkvæði af alls 36.400 atkvæðum í kjördæm-
inu. „Flestar útstrikanir voru hjá Samfylkingu
og næstflestar hjá Sjálfstæðisflokki,“ segir
Erla. Hún telur ólíklegt að það náist að greiða
úr útstrikuðu atkvæðunum í dag.
Í Suðvesturkjördæmi voru einnig þúsund-
ir atkvæða með útstrikunum. Jónas Þór Guð-
mundsson, formaður yfirkjörstjórnar, segir
þær hafa verið flestar hjá Samfylkingu og
Sjálfstæðisflokki en talsvert færri hjá Vinstri
grænum. Jónas segist ekki geta fullyrt hvort
um sé að ræða nægilegan fjölda útstrikana til
að breyta röð frambjóðenda en telur það munu
skýrast í dag.
Í Norðausturkjördæmi var lítið um útstrik-
anir. Að sögn Ingu Þallar Þórgnýsdóttur, for-
manns yfirkjörstjórnar, voru nöfn Kristjáns
Þórs Júlíussonar úr Sjálfstæðisflokki og Birkis
Jóns Jónssonar úr Framsóknarflokki strikuð
út á 200 til 300 seðlum hvort nafn. Þá hafi nafn
Kristjáns Möllers, samgönguráðherra úr Sam-
fylkingu, verið strikað út um 170 sinnum.
Ingibjörg Hafstað í yfirkjörstjórn Norðvest-
urkjördæmis segir útstrikanir þar hafa verið
langt frá því nógu margar til að breyta röðum
á framboðslistum. Þeir frambjóðendur sem
hafi verið mest strikaðir út séu Ólína Þorvarð-
ardóttir hjá Samfylkingu, Jón Bjarnason hjá
Vinstri grænum og sjálfstæðismennirnir Einar
K. Guðfinnsson og Ásbjörn Óttarsson.
gar@frettabladid.is
Miklar útstrikanir hjá Sam-
fylkingu og Sjálfstæðisflokki
Árni Johnsen fellur um eitt sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi vegna útstrikana. Mikið var
einnig strikað út í Reykjavík og í Suðvesturkjördæmi. Það skýrist í dag og á morgun hvort röð frambjóð-
enda í þessum kjördæmum breytist en nöfn voru strikuð út á mörg þúsund atkvæðaseðlum.
ALÞINGI Enn er óvissa um hvort röð frambjóðenda í
alþingiskosningunum breytist í Reykjavíkurkjördæmun-
um og í Suðvesturkjördæmi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BJÖRGVIN G.
SIGURÐSSON
ÁRNI JOHNSEN
Skipstjórinn hlustaði ekki
„Það er alveg með ólíkindum að
Frjálslyndi flokkurinn, saklaus með sín
góðu stefnumál, skuli ekki hafa náð
að sækja fram. En þegar skipstjórinn
siglir upp í fjöru án þess að hlusta á
stýrimanninn sem sér að það er eng-
inn sjór lengur fyrir framan skipið, þá
kann það ekki góðri lukku að stýra.“
Magnús Þór Hafsteinsson, aðstoðar-
maður formanns Frjálslynda flokksins.
Einkennileg túlkun
„Nú keppast allir kratar í fjölmiðlastétt
við að túlka niðurstöðu kosninganna
þannig að þjóðin heimti að gengið
verði í ESB. Það finnst mér einkenni-
leg túlkun.“
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins (í leyfi).
Einbeittur spunavilji
„Það þarf ansi einbeittan spunavilja
til að túlka úrslit kosninganna sem
sigur Samfylkingarinnar. Af þeim
flokkum sem bættu við sig fylgi er
Samfylkingin í 4. sæti.“
Friðjón R. Friðjónsson.
Fáránleg ákvörðun
„Sjálfstæðisflokkurinn fær þó þegar
upp er staðið, heldur skárri niður-
stöðu en svörtustu spár gerðu ráð
fyrir. Ég hygg að flokkurinn sé einnig
að gjalda fyrir að læsa sig inni í fárán-
legri ákvörðun landsfundar varðandi
Evrópumálin.“
Dögg Pálsdóttir, fyrrv. varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
BLOGGAÐ UM ÚRSLITIN
Það að vinstriflokkarnir séu með
meirihluta á þingi fyrsta sinn er
stærsta fréttin eftir kosningar helg-
arinnar. Þetta er mat Gunnars Helga
Kristinssonar stjórnmálafræðings.
„Þessi tilfærsla á fylgi yfir á
vinstriflokkana er í raun uppgjör
kjósenda við bankahrunið,“ segir
Gunnar Helgi. „Og helsta niðurstaða
númer tvö er síðan spegilmynd af
þessari: Versta útkoma Sjálfstæðis-
flokksins frá upphafi.“
Sjálfstæðisflokkurinn er minni
en nokkru sinni fyrr; með einung-
is 23,7 prósent. Næstminnst hefur
hann fengið 27,2 prósent árið 1987,
en þá hafði Albert Guðmundsson
klofið sig úr flokknum og stofnað
Borgaraflokkinn sem fékk nokkuð
fylgi.
Meginsigurverar kosninganna eru
Vinstri græn og Borgarahreyfing-
in, segir Gunnar Helgi. Bæði fram-
boðin auki fylgi sitt um ríflega sjö
prósentustig, annað raunar úr engu.
Samfylkingin megi vissulega vel við
una og hafi fengið fína kosningu en
þó sé sigur hennar einkum fólginn
í því að vera orðinn stærsti flokkur
landsins.
Framsóknarflokkurinn vinnur á í
fyrsta sinn síðan 1995, sem hlýtur að
vera gleðiefni fyrir þá, segir Gunnar
Helgi. „En það er samt langt frá því
að flokkurinn sé búinn að ná sér.“
Þá segir Gunnar Helgi einnig
athyglisvert hversu skýrt kjósendur
virðast hafa svarað kallinu um end-
urnýjun. Mikil endurnýjun verði á
þingliðinu, sem sé einkum forvitni-
legt í því ljósi að mikil endurnýjun
hafi einnig átt sér stað í kosningun-
um fyrir tveimur árum. Nú sé sú
staða því uppi í fyrsta sinn að ein-
ungis lítill hluti þingmanna hafi
þingreynslu sem eitthvað kveður
að.
Enn fremur sé sterk útkoma
kvenna merkileg. Staða kvenna á
Alþingi sé nú með því besta sem ger-
ist í heiminum. Gunnar Helgi bend-
ir jafnframt á að kjósendur virðist
hafa uppgötvað útstrikanir sem tæki
til að refsa þingmönnum sem ekki
þykja hafa staðið sig nægilega vel.
Hann sér ekki fram á annað en að
sú þróun haldi áfram. - sh
Prófessor í stjórnmálafræði rýnir í niðurstöðurnar:
Vinstri sveiflan
mestu tíðindin
PRÓFESSOR GUNNAR Versta útkoma
Sjálfstæðisflokks í sögunni er hin hliðin
á peningi vinstri sveiflunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ / GVA