Fréttablaðið - 27.04.2009, Side 10
10 27. apríl 2009 MÁNUDAGUR
Fagor uppþvottavél
LJF-0310
5 þvottakerfi. Hljóðstig: 52dB(A).
Stærð HxBxD 85x60x60.
Tilboð 89.900
Fagor uppþvottavél
Reykjavík . Borgartún 24 . Sími 562 4011
Akureyri . Draupnisgata 2 . Sími 460 0800
Reyðarfjörður . Nesbraut 9 . Sími 470 2020
Reykjanesbær . Hafnargata 52 . Sími 420 7200
Þurrkun
2009
KONUM FJÖLGAR Á ÞINGI
Konum á Alþingi fjölgar úr 20 í 27 milli kosninganna nú og árið 2007.
Konur á þing: 27
Karlar á þing: 36
Konur á þing: 20
Karlar á þing: 43
Konur
Karlar
Nýliðar
Allir
30
0
10
20
40
50
Al
du
r þ
in
gm
an
na
46 47 44 47
Ko
sn
in
ga
r 2
00
7
MEÐALALDUR LÆKKAR
Meðalaldur þingmanna lækkar um þrjú ár milli kosninga, úr
50 árum í 47 ár. Meðalaldur karla lækkar úr 50 árum í 47 ár.
Meðalaldur kvenna lækkar, úr 48 og hálfu ári í 46 og hálft
ár. Meðalaldur nýrra þingmanna lækkar um fimm ár.
NÝLIÐUM FJÖLGAR
27 setjast í fyrsta sinn á Alþingi eftir kosningarnar nú. Þeir
voru 24 í kosningunum árið 2007.
Kosningar 2007
Kosningar 2009
Kosningar 2007 Kosningar 2009
Alls þrettán af 27 nýliðum sem kosn-
ir voru inn á Alþingi á laugardag
eru konur. Nýafstaðnar kosningar
skila 27 konum inn á þing, og hafa
þær aldrei verið fleiri. Meðalaldur
nýrra þingmanna lækkar um fimm
ár, var 49 ár eftir síðustu alþingis-
kosningar árið 2007 en er nú 44 ár.
Meðalaldur þingheims hefur lækk-
að úr 50 árum í 47 ár eftir kosningar
laugardagsins.
Breytinga er þörf
„Mér líst ágætlega á að vera komin
á þing. En þetta er auðvitað bara
vinna og ekkert merkilegra en önnur
störf,“ segir Margrét Tryggvadótt-
ir, nýkjörin þing-
kona Borgara-
hreyfingarinnar
í Suðurkjördæmi.
Margrét er ein af
27 nýjum þing-
mönnum, þar af
þrettán konum,
sem taka sæti
á Alþingi eftir
kosningarnar í
fyrrinótt. Aldrei
hafa fleiri konur setið á þingi, en
þær verða 27 af 63 alls.
Margrét vakti ekki lengi fram
eftir á kosninganótt eins og marg-
ir aðrir frambjóðendur. „Ég sá að
okkar fólk hafði náð mönnum inn og
fór þess vegna snemma að sofa. Svo
var ég reyndar vakin klukkan fimm
um nóttina af fréttastofu RÚV sem
vildi fá mig í viðtal, en ég fór bara
að sofa aftur.“
Margrét er að vonum ánægð með
árangur Borgarahreyfingarinnar,
sem náði fjórum mönnum inn á þing
um tveimur mánuðum eftir stofnun
flokksins. Hún segist munu leggja
höfuðáherslu á breytingar. „Þegar
fótunum var kippt undan þjóðinni
í haust börðust margir fyrir því að
einhverjir ættu að axla ábyrgð og
víkja. En þegar ný stjórn tók við sá
ég strax að það átti ekki að breyta
neinu. Þess vegna ákvað ég að taka
þennan slag, til að venjulegt fólk
fengi pláss á þingi og þær upplýs-
ingar sem þingmenn fá,“ segir Mar-
grét.
Evrópumál í öndvegi
Magnús Orri Schram, einn níu
nýliða Samfylkingar á þingi, seg-
ist þakklátur
fyrir ötult starf
tuga sjálfboða-
liða í Suðvest-
urkjördæmi í
kosningabarátt-
unni. „Þetta er
mjög ánægju-
legt. Það er mik-
ilvægt að gildi
jafnaðarstefn-
unnar verði ofan
á og Evrópumálin verði lögð í dóm
þjóðarinnar.“
Stresslaus kosninganótt
Lilja Rafney Magnúsdóttir, ný þing-
kona Vinstri grænna í Norðvestur-
kjördæmi, segir
kosninganótt-
ina hafa liðið
hjá að mestu
stresslaust. „Við
vorum allan tím-
ann inni með tvo
menn en svo kom
þriðji maðurinn
eins og rúsín-
an í pylsuendan-
um. Ég er stolt
af mínum flokki og mun beita mér
fyrir betri búsetuskilyrðum úti á
landi og jöfnuði og réttlæti stétta,“
segir Lilja Rafney.
Allir taki höndum saman
Ásbjörn Óttarsson, sem kemur nýr
inn á Alþingi fyrir Sjálfstæðis-
flokk í Norðvesturkjördæmi, hafði
einungis sofið
í tæpa klukku-
stund þegar
Fréttablað-
ið hafði sam-
band við hann
um miðjan dag í
gær. „Ég er auð-
vitað ánægður
að vera kominn
á þing. Mestu
máli skiptir þó
að allur þing-
heimur, sama
hvar menn standa í flokki, taki nú
höndum saman og koma fyrirtækj-
um og heimilum í landinu til bjarg-
ar. Ég hef enga trú á að menn fari
að þræta um pólitík á næstunni.“
Himinlifandi með úrslitin
„Fyrstu tölur litu ekki nógu vel út
en svo vænkaðist hagurinn. Marg-
ir hafa gefið út
ótímabær dán-
arvottorð fyrir
f lokk i n n en
við erum him-
inlifandi með
úrslitin á lands-
v ísu ,“ segir
Guðmundur
Steingrímsson,
nýr þingmað-
ur Framsókn-
arflokksins í
Norðvesturkjör-
dæmi. Hann segir efnahagsaðgerð-
ir einfaldlega verða að vera númer
eitt, tvö og þrjú í þinginu á næst-
unni. „Manni finnst varla taka því
að tala um eitthvað annað.“
kjartan@frettabladid.is
Helmingur nýliða á
Alþingi eru konur
Alls 27 af 63 þingmönnum eru konur og hafa þær aldrei verið fleiri. Meðalaldur
þingmanna lækkar úr 50 árum árið 2007 í tæp 47 ár nú. Ný þingkona Borgara-
hreyfingarinnar segir þingmannsstarfið ekki merkilegra en önnur störf.
GUÐMUNDUR
STEINGRÍMSSON
ÁSBJÖRN
ÓTTARSSON
LILJA RAFNEY
MAGNÚSDÓTTIR
MAGNÚS ORRI
SCHRAM
MARGRÉT
TRYGGVADÓTTIR
2003 2007 2009
Kjörsókn 87,7% 83,6% 85,1%
Auðir 1% 1,4% 3,2%
Ógildir 0,2% 0,2% 0,3%
KJÖRSÓKN, AUÐIR OG ÓGILDIR SEÐLAR
Rúmlega þrjú prósent þeirra sem
kusu á laugardag skiluðu auðu,
eða 6.226 manns. Það eru fleiri en
nokkru sinni fyrr. Í alþingiskosn-
ingum í maí árið 2007 skiluðu 1,4
prósent kjósenda auðu, eða 2.517
manns. Árið 2003 voru 1.879 seðl-
ar auðir, eða eitt prósent.
Þeir voru þó mun færri sem
skiluðu auðu en skoðanakannan-
ir fyrir kosningar bentu til. Sam-
kvæmt þeim mátti ætla að allt að
tíu til fimmtán prósent myndu
skila auðu.
„En þrátt fyrir að fleiri hafi
skilað auðu en venjulega var
kosningaþátttaka góð,“ segir
Stefanía Óskarsdóttir stjórn-
málafræðingur. Þeir sem skila
auðu eru líka að taka þátt. Það
er jákvætt því það grefur undan
fulltrúalýðræðinu ef fólk nennir
ekki einu sinni að mæta á kjör-
stað.“ - hhs
Færri auðir seðlar en skoðanakannanir bentu til:
Margir skiluðu auðu
„Við erum í sjöunda himni. Þetta
eru mjög skýr skilaboð frá kjós-
endum um hvað þeir vilja gera,“
segir Andrés Pétursson, formaður
Evrópusamtakanna.
Samfylkingin hafi fengið góða
kosningu og hinn evrópusinnaði
Framsóknarflokkur sömuleiðis.
Þá sé ljóst að evrópusinnaðir sjálf-
stæðismenn hafi kosið þá flokka
sem settu Evrópusambandsaðild á
dagskrá.
Andrés metur stöðuna í þjóðmál-
unum þannig að það sé ábyrgðar-
hluti að leita ekki allra leiða til að sjá
hvaða aðgerðir geti hjálpað Íslandi í
þeim þrengingum sem uppi eru.
Um framhaldið spáir hann að
stjórnarflokkarnir geti náð saman
þrátt fyrir ólíkar áherslur í mála-
flokknum. „Ég held að Vinstri græn
geti samþykkt að fara í viðræður án
þess að brjóta eigin prinsipp því um
leið og þau hafa sagst vera á móti
telja þau að þjóðin eigi að ráða.“
- bþs
Evrópusamtökin hrósa happi yfir úrslitunum:
Mjög skýr skilaboð
„Ég held að það sé afskaplega mik-
ill misskilningur sem veður uppi
að úrslitin sýni aukinn áhuga á
Evrópusambandsaðild,“ segir
Ragnar Arnalds, formaður Heims-
sýnar. „Það var aðeins Samfylk-
ingin sem boðaði skýra aðild og
hún er á svipuðu róli og í síðustu
tvennum kosningum.“
Ragnar segir VG sigurvegara
kosninganna og þá niðurstöðu megi
allt eins túlka sem sigur fyrir and-
stæðinga Evrópusambandsaðildar.
„Ég held því að staða þeirra sem
ekki vilja ganga í ESB hafi síður
en svo veikst,“ segir Ragnar.
Ragnar átelur álitsgjafa kosn-
ingavöku Sjónvarpsins. Skoðan-
ir þeirra hafi verið einslitar og
flestir túlkað niðurstöðurnar ESB-
sinnum í hag. Þeir hafi miðað mál-
flutning sinn við fyrstu tölur sem
voru Samfylkingunni hagstæðar
en ekki leiðrétt kúrsinn þótt fylgi
flokksins hafi dalað eftir því sem
leið á nóttina. - bþs
Heimssýn telur úrslitin ekki sýna aukinn ESB-áhuga:
Misskilin túlkun