Fréttablaðið - 27.04.2009, Side 13
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
VORHREINSUN sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins
standa fyrir dyrum. Hreinsunarátak Garðabæjar verður 18. apríl til
8. maí. Í Mosfellsbæ verður vorhreinsun 22. apríl til 5. maí, í Hafnarfirði frá
30. apríl til 6. maí, á Seltjarnarnesi frá 15. maí til 22. maí og í Kópavogi 27.
apríl til 8. maí. www.sorpa.is
„Ég á lítinn kryddjurtagarð í
stofuglugganum en þar má finna
steinselju, graslauk, myntu, rós-
marín, oreganó og kóríander,“
segir Ragna Björg Ársælsdóttir,
nemi í hjúkrunarfræði við Háskóla
Íslands. Þessa dagana liggur hún
yfir skólabókunum, enda próf á
næsta leiti.
„Ég vonast til að ræktunin tak-
ist í þetta sinn en ég reyndi þetta í
fyrra og þá tókst þetta ekki. Núna
dafna jurtirnar hins vegar vel og
ég hlakka bara til að geta eldað
eitthvað úr þessu,“ segir Ragna
Björg, sem er kunn fyrir hæfi-
leika sína í eldhúsinu og glæsi-
legar matarveislur. „Ég setti fræ
í potta og síðan gæti ég þess að
vökva jurtirnar vel. Þeim má ekki
verða of kalt, þær þurfa birtu og
síðan þarf að setja næringu í vatn-
ið,“ útskýrir hún og hlakkar til að
sjá árangurinn.
Heimili Rögnu Bjargar er hlý-
legt enda ekki vanþörf á þar sem
hún eyðir þar löngum stundum.
„Ég er í skóla og læri oft heima
og elda mikið. Í eldhúsinu fer fram
ýmiss konar tilraunastarfsemi en
þegar ég var á höttunum eftir íbúð,
í samráði við foreldrana, réð eld-
húsið úrslitum í að þessi íbúð var
keypt,“ segir Ragna Björg en hún
er hæstánægð með fyrirkomulag-
ið. „Eldhúsið skiptir miklu máli og
þá sérstaklega að hálfopið er inn
í stofu. Þá er hægt að blanda geði
við gestina þar,“ segir hún en gest-
kvæmt er á heimili Rögnu Bjargar
þar sem hún býður oft til veislu og
prófar nýja rétti.
„Nú hef ég verið hér í dágóð-
an tíma, hef náð að safna mér í
búið og á orðið fullmótaða stofu.
Ég kann einna best við mig í sóf-
anum, sem er mjúkur tungusófi
úr Betra baki. Hægt er að breyta
honum í svefnsófa þegar fjölskyld-
an kemur í heimsókn og hefur
hann nýst vel,“ segir Ragna Björg
ánægð og setur kryddjurtagarð-
inn aftur í ylinn í glugganum.
hrefna@frettabladid.is
Ræktar kryddjurtir í
gluggakistunni heima
Í notalegri stofu lúra litlar kryddplöntur í glugga og drekka í sig þá sólargeisla sem inn um hann berast.
Húsmóðirin, Ragna Björg Ársælsdóttir, vakir yfir þeim um leið og hún gluggar í skólabækurnar.
Ragna Björg hlúir hér að kryddjurtunum sínum í uppáhaldshorni heimilisins, en stofusófinn hefur þar vinninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Stuðningshlífar
fjölbreytt úrval
466 1016
www.ektafiskur.is
frumkvöðlafyrirtæki ársins - fiskvinnsla frá árinu
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki