Fréttablaðið - 27.04.2009, Blaðsíða 14
27. apríl 2009 MÁNUDAGUR2
LEIKFANGAPERLUR eru vinsælar hjá börnum. Oft vilja
þær detta í gólfið og ærið verkefni að tína þær upp. Gott
húsráð er að setja nælonsokk á ryksuguna og sjúga perlurn-
ar upp, taka sokkinn og tæma perlurnar í perluboxið á ný.
„Þetta byrjaði þannig að okkur
hjónin langaði að láta mála mál-
verk af krökkunum okkar en
gátum ekki fundið neinn hér á
Íslandi sem tók það að sér. Svo ég
fór að leita erlendis og datt niður
á flinka og ódýra listamenn í Kína
sem náðu blæbrigðum fyrirmynd-
anna ótrúlega vel. Ég sagði vinum
og kunningjum frá þessu. Þannig
vatt þetta upp á sig og þróaðist út
í fyrirtækið portret.is“ segir Gylfi
Þór, sem býr í Reykjanesbæ.
Gylfi Þór kveðst einungis hafa
boðið þjónustu sína á netinu til
þessa og þó nokkuð hafi verið að
gera. „Ég er í sambandi við kín-
versku listamennina næstum
daglega,“ segir hann. Sem dæmi
um verkefni sem þeir taki að sér
nefnir hann málverk eftir litlum
passamyndum, að sameina fólk af
fleiri en einni ljósmynd í eitt og
að breyta bakgrunni. En hversu
langan tíma tekur að fá málverk-
in? „Það tekur svona þrjár vikur
að mála en þrír til fimm dagar
fara í sendingu frá Kína hingað,“
svarar hann og kveðst ábyrgjast
að fólk sé ánægt með afrakstur-
inn með því að fá fyrst senda ljós-
mynd af málverkinu og sýna við-
skiptavininum hana. „Málarinn
sendir mér myndina svo kaup-
andinn geti metið hana. Þetta eru
olíumálverk og auðvelt er að mála
yfir og laga eða hreinlega byrja
upp á nýtt ef með þarf. Það er
ekki fyrr en kaupandinn er orð-
inn hæstánægður sem myndin er
send af stað.“
Áður en Gylfi Þór fann hina
kínversku listamenn hafði hann
leitað talsvert erlendis að svona
þjónustu. „Þar er urmull af svindl-
urum og sumir voru jafnvel að
rukka nálægt einni milljón fyrir
portret-málverk,“ lýsir hann. En
hvað skyldi þá meðalmynd kosta
hjá honum? „Málverk í stærð-
inni 60x90 af einstaklingi kostar
52.500 krónur,“ upplýsir hann og
bendir á heimasíðuna www.por-
tret.is. „Verðið hefur verið það
sama frá byrjun og ekkert breyst
í kreppunni. Ég ætla að halda mig
við það, að minnsta kosti út sum-
arið.“ gun@frettabladid.is
Ljósmynd verður að málverki
Myndum má breyta á ýmsan máta. Á þessari mynd
hefur bakgrunninum verið breytt. Einnig geta
kínversku listamennirnir sameinað fólk af mörgum
ljósmyndum í eitt málverk.
Málverk af stúlku máluð eftir ljósmynd.
Klukka úr málbandi er
skemmtileg hönnun eftir
tyrkneska hönnuðinn Burak
Kaynak.
Tíminn er mældur á ýmsan
hátt, með dagatölum, úrum og
klukkum en þó sjaldnast með
málbandi.
Hönnuðurinn Burak Kayn-
ak hefur hins vegar búið til
klukku í líki málbands. Er þetta
veggklukka þar sem málband-
ið rennur áfram undir gleri
en rauð lína segir til um hvað
klukkan er.
Fleiri skemmtilegar hug-
myndir Kaynak má finna á vef-
síðunni www. burakkaynak.
com. - sg
Tíminn
mældur
Málbandsklukkan er falleg hengd
upp á vegg.
Ef fólk langar í stórt málverk af einhverju sem það á aðeins litla ljós-
mynd af þá sér fyrirtækið portret.is um slíka þjónustu. Þar verður
Gylfi Þór Markússon fyrir svörum.
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17
VIKUNA 27. APRÍL – 1. MAÍ
Þriðjudagurinn 28. apríl
Sálrænn stuðningur - Fjallað er um áhrif alvarlegra
atburða á andlega líðan fólks og viðbrögð þess í kjölfar
slíkra atburða. Tími: 12.30-14.00.
Prjónahópur - Við ætlum að koma saman,
prjóna, hekla, fá okkur kaffi og hafa það notalegt.
Allir velkomnir. Tími: 13.00-15.00.
Skák - Félagar úr Skákfélagi Vinjar og Hróknum sitja að
tafli í Rauðakrosshúsinu. Tími: 13.30-15.30.
Endurlífgun og hjartarafstuðtæki - Stutt verklegt
námskeið sem getur gert þér kleift að koma fólki til
bjargar þegar mínútur skipta máli. Tími: 15.30-17.00.
Miðvikudagurinn 29. apríl
Fimmtudagurinn 30. apríl
Ókeypis námskeið og ráðgjöf
Mánudagurinn 27. apríl
.
Áhugasviðskönnun - Ef þú hefur ákveðið starf eða
nám í huga, getur könnunin staðfest hugmyndir þínar.
Skráning nauðsynleg. Tími: 13.00-14.30.
Hugarflugsfundur - Hvernig sérðu starfsemi Rauða-
krosshússins fyrir þér? Hvaða viðburði viltu sjá á dagskrá?
Tími: 15.00-16.00.
Að segja sögu sína - Hvernig getur lífssögunálgun
hjálpað fólki að finna styrk sinn og leiðarsteina í lífinu?
Tími: 15.00-16.00.
Tölvuaðstoð - Þarftu aðstoð við að læra á tölvur, vafra
um netið eða senda tölvupóst? Komdu í heimsókn.
Tölvur á staðnum. Tími: 13.30-15.30.
Enter og Eldhugar - Kynning á verkefninu Enter og
Eldhugar sem snúa að ungmennum af íslenskum og
erlendum uppruna. Tími: 13.00-13.30.
Bókaklúbbur - Lestu þér til yndisauka og spjallaðu við
aðra um innihaldið yfir kaffibolla. Tími: 14.00-15.00.
Gönguhópur -Tími: 15.00-16.30.
Slökun og öndun - Kennsla í slökun og djúpöndun.
Allir velkomnir. Tími: 16.30-17.00.
Föstudagurinn 1. maí
Fjöltefli - FIDE meistarinn Róbert Lagerman stendur fyrir
fjöltefli. Tími: 13.00-15.00.
Uppeldi sem virkar; færni til framtíðar - Foreldra-
námskeið. Skráning nauðsynleg, takmarkaður fjöldi
(fyrsta námskeið af þremur) Tími: 13.00-15.00.
Jóga - Viltu prófa jóga? Langar þig að slaka á? Nú er
tækifærið. Tími: 15.00-16.30.
Lokað