Fréttablaðið - 27.04.2009, Page 24
16 27. apríl 2009 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Iðnaðarráðuneytið úthlutaði
nýlega eitt hundrað milljón-
um króna til fjörutíu ferða-
þjónustuverkefna um allt
land. Styrkirnir eru fjár-
magnaðir af byggðaáætlun
og er ætlað að renna frekari
stoðum undir uppbyggingu
atvinnugreinarinnar á lands-
byggðinni.
Alls bárust 210 umsóknir
um styrkina sem þykir lýsa
þeirri grósku sem er í ferða-
þjónustu hér á landi. Styrk-
ir til menningar- og heilsu-
ferðaþjónustu eru áberandi
en einnig til náttúruskoðun-
ar ýmiss konar.
Stærsta styrkinn, eða 11
milljónir, hlaut Þjónustuhús
við Akureyrarhöfn. Verkefnið
Viskubrunnur í Álfalandi við
Akranes hlaut átta milljónir.
Uppbygging aðstöðu í Grund-
arfjarðarhöfn hlaut 6,3 millj-
ónir. Verkefnin Vatnaset-
ur á Vestfjörðum, Jöklaver-
öld í Hoffelli og Þjónustuhús
á hjólum við Ísafjarðarhöfn
hlutu fimm milljónir hvert.
Ferðaþjónustu-
verkefni styrkt
UPPBYGGING ATVINNUGREINA Verkefnið Þjónustuhús við Akureyrar-
höfn hlaut ellefu milljóna króna styrk.
MERKISATBURÐIR
1858 Póstgufuskipið Victor Em-
anuel (síðar nefnt Arctur-
us) kemur til Reykjavíkur
í fyrstu áætlunarferðinni
frá Kaupmannahöfn. Áður
hafa seglskip haldið uppi
þessari þjónustu.
1915 Gullfoss leggur af stað
til New York og kemur
þaðan mánuði síðar.
Hann er fyrstur íslenskra
skipa með íslenskum
skipstjóra og íslenskri
skipshöfn til að sigla á
milli Íslands og Amer-
íku síðan á dögum Leifs
heppna.
1944 Niðurstöður eru kynnt-
ar í samkeppni um hátíð-
arljóð fyrir Lýðveldishátíð-
ina 17. júní 1944. Bestu
kvæðin eru eftir Huldu og
Jóhannes úr Kötlum.
UNNUR STEINSSON ER 46 ÁRA.
„Pönkið kom og fór en disk-
óið lifði.“
Unnur Steinsson athafnakona
lét þessi orð falla eftir sýn-
inguna Ástin er diskó, lífið er
pönk. Unnur sigraði í keppn-
inni Ungfrú Ísland árið 1983,
starfaði sem fyrirsæta og var
áberandi á skemmtistaðnum
Hollywood um það leyti sem
diskóið var í algleymingi.
„Ég held að Íslendingar séu áhuga-
samir um að læra um Pólland,“ svar-
ar Michal Gierwatowski, aðstoðar-
ræðismaður Póllands á Íslandi, þegar
hann er spurður út í Pólsku dagana sem
haldnir eru á Grand hóteli í Reykjavík
frá 27. apríl til 3. maí í samstarfi við
pólska sendiráðið. „Við viljum gjarn-
an sýna fram á að landið okkar hefur
upp á margt að bjóða.“ Talið berst að
dagskránni. „Bíódagurinn er í dag og
hefur grunnskólabörnum verið boðið
að sjá pólskar teiknimyndir,“ segir Mi-
chal, en í kvöld geta kvikmyndaunnend-
ur séð klassískar, pólskar kvikmynd-
ir eftir heimsþekkta pólska leikstjóra
eins og Michal orðar það. Hann nefnir
í því samhengi nöfn leikstjóra eins og
Krzysztof Kieslowski, Jan Jakub Kolski
og Jerzy Stuhr.
Möguleikarnir á samstarfi pólskra og
íslenskra fyrirtækja verða svo kynnt-
ir í fyrirlestri á morgun. „Sá sem fer
fyrir viðskipta- og fjárfestingarráði
pólska sendiráðsins í Ósló ætlar að
fjalla um viðskiptaumhverfið í Pól-
landi og tækifærin þar,“ nefnir Michal.
Miðvikudagurinn verður notaður í að
kynna Pólland sem ákjósanlegan ferða-
mannastað. Fulltrúi frá pPólsku ferða-
mannasamtökunum kynnir landið og
veitir upplýsingar um ferðatilhaganir
og segir frá þeim stöðum sem sérstak-
lega sé vert að skoða. „Við eigum einn-
ig von á fulltrúum frá pólska golfsam-
bandinu og frá borginni Szczecin, sem
hefur að geyma einn besta golfvöllinn
í Austur-Evrópu,“ segir hann.
„Grand hótel umbreytist síðan í
djassklúbb á fimmtudagskvöldið þegar
Aga Zaryan, ein þekktasta djasssöng-
kona okkar Pólverja, heldur tónleika,“
segir Michal glaður. Þorleifur Friðriks-
son tekur fyrir ákveðið tímabil í sögu
Póllands í fyrirlestri á föstudag. Síðan
hefst pólsk matarkynning í umsjá sjón-
varpskokksins Roberts Maklowicz, þar
sem íslenskir kokkar taka þátt. „Róbert
er með sinn eigin sjónvarpsþátt í Pól-
landi,“ útskýrir hann og segir frá því
að teknir verði upp þrír sjónvarpsþætt-
ir hér með Robert. Einn þáttanna verð-
ur helgaður pólsku dögunum. „Þættirn-
ir ganga út á að Robert kynnir rétti sem
byggja á matarhefð þeirrar þjóðar sem
hann heimsækir hverju sinni.“
Pólskur markaður verður haldinn á
laugardag þar sem pólskir listamenn
búsettir á Íslandi sýna verk sín. „Ljós-
myndir eftir Filip Faferko verða meðal
annars til sýnis,“ segir Michal um Faf-
erko sem á einnig heiðurinn að ljós-
myndasýningunni í Bankastrætinu,
þar sem andlitsmyndir af börnum blasa
við vegfarendum. Á markaðnum gefst
fólki líka kostur á að bragða hefðbund-
inn heimalagaðan, pólskan mat.“
Á þjóðhátíðardegi Póllands 3. maí
verða haldnir klassískir tónleikar og
er aðgangur ókeypis. Miðar eru fáan-
legir í anddyri Grand hótels. Pólsku
dögunum lýkur síðan með gala-kvöld-
verði á þjóðhátíðardeginum. „Þetta er
fimm rétta matseðill sem byggir á hefð-
bundinni pólskri matseld og útfærður
af sjónvarpskokknum sjálfum,“ nefnir
Michal spenntur og bendir á að Brass-
erí Grand bjóði einmitt upp á pólsk-
an matseðil meðan á Pólskum dögum
stendur.
vala@frettbladid.is
PÓLSKIR DAGAR: STANDA YFIR DAGANA 27. APRÍL TIL 3. MAÍ
Grand hóteli breytt í djassklúbb
ÁHUGAVERÐ UPPLIFUN Michal Gierwatowski og Danuta Szostak, aðstoðarræðismaður og
ræðismaður Póllands á Íslandi, lofa góðri skemmtun á Pólskum dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Tonny Margrethe Muller
Hrafnistu í Hafnarfirði,
áður Tjarnarbraut 17, Hafnarfirði,
sem lést mánudaginn 20. apríl, verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 28. apríl kl.
13.00.
Kristinn Guðjónsson
Tryggvi Anton Kristinsson
Snorri Lorentz Kristinsson Anna Gréta Arngrímsdóttir
Reynir Kristinsson Lilja Guðmundsdóttir
Ingvi Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Erlings Ottóssonar
(Albrektsen)
Lækjasmára 58, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans við
Hringbraut, deild 13D.
Vilma Mar
Jette Frydendahl Erik Frydendahl
Jörgen Erlingsson Hallfríður Arnarsdóttir
Irena Erlingsdóttir
John Mar Erlingsson Hildur Björk Betúelsdóttir
Inger María Erlingsdóttir Árni Eðvaldsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
Vals Guðmundssonar
frá Efra-Apavatni.
Þórdís Skaptadóttir
Skapti Valsson Jórunn Gunnarsdóttir
Dóra Sjöfn Valsdóttir Birgir Sveinsson
María Ýr Valsdóttir Rúnar Sigurðsson
Guðmundur Valsson Marta K. Lárusdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
90 ára afmæli
90 ára er í dag, 27. apríl,
Þorsteinn Sigurðsson
Frostafold 24, Reykjavík áður til heimilis að
Skólavegi 77, Fáskrúðsfi rði. Eiginkona hans,
Aðalbjörg Magnúsdóttir, varð 85 ára hinn
17. desember sl. Í tilefni þessara tímamóta
taka þau á móti vinum og ættingjum í
safnaðarheimilinu Grafarvogskirkju
föstudaginn 1. maí kl. 15.00. Allar g jafi r og
blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem
vilja gleðja afmælisbörnin verður gefi nn
kostur á að leggja framlag til Líknar og
vinafélagsins Bergmáls.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Kvikmyndahátíðin Stutt-
myndadagar í Reykjavík
var fyrst haldin á þess-
um degi árið 1992 og
svo samfellt allt til ársins
2002. Hún var svo end-
urreist 2008.
Upphaflega var hátíð-
in haldin af Kvikmyndafé-
lagi Íslands, fyrirtæki Júlí-
usar Kemp og Jóhanns
Sigmarssonar. Á Hótel
Borg voru myndirnar
sýndar dagana 27. til 29.
apríl. Meðal mynda sem voru sýndar má nefna
Spurning um svar eftir Sævar Guðmundsson og
Filmumenn.
Hátíðinni var breytt í keppni árið 1993 og veitt
voru verðlaun fyrir bestu myndina. Alls bárust
um 40 myndir þetta árið
en fyrstu verðlaun hreppti
stuttmyndin Athyglis-
sýki eftir Reyni Lyngdal og
Arnar Jónasson.
Róbert Douglas og
Ragnar Bragason eru á
meðal þeirra sem hafa
hlotið verðlaun hátíðar-
innar en þeir hafa verið
býsna áberandi í gerð
kvikmynda í fullri lengd.
Sama ár og keppnin
var endurreist, eða árið
2008, var haldin í fyrsta skipti kvikmyndahátíðin
Reykjavík Shorts & Docs þar. Verðlaunin Silfurref-
urinn voru veitt þar bæði fyrir bestu stuttmynd-
ina og bestu heimildarmyndina.
heimilid: wikipedia.org
ÞETTA GERÐIST: 27. APRÍL 1992
Stuttmyndadagar í fyrsta sinn