Fréttablaðið - 27.04.2009, Síða 27
MÁNUDAGUR 27. apríl 2009 19
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
23. – 25. maí
5. – 7. maí
Verð á mann í tvíbýli:
86.900 kr.
109.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, hótelgisting í 2 nætur með
morgunverði og miði á leikinn.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, hótelgisting í 2 nætur með
morgunverði og miði á leikinn.
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Arsenal
Man. Utd.
Arsenal
Stoke
Verð á mann í tvíbýli:
Boltinn er hjá okkur!
Meistaradeildin
Úrvalsdeildin
FRÉTTABLAÐIÐ SPÁIR ÞRÓTTI 12. SÆTINU Í ÍSLENSKU ÚRVALSDEILDINNI SUMARIÐ 2009
GENGI SÍÐUSTU ÁRA 2008 10. sæti í A-deild 2007 2. sæti í B-deild 2006 4. sæti í B-deild 2005 10. sæti í A-deild 2004 2. sæti í B-deild 2003 9. sæti í A-deild
EYSTEINN PÉTUR
LÁRUSSON
HALLUR
HALLSSON
HAUKUR PÁLL
SIGURÐSSON
GENGI Á VORMÓTUNUM
Sigrar Jafntefl i TöpAÐRIR
LYKILMENN
4
5
> LYKILMAÐURINN
Dennis Danry sló í gegn með Þróttaraliðinu síðasta
sumar þar sem hann lék afar vel á miðjunni. Gunnar
Oddsson þjálfari hefur fært Danry
aftar á völlinn og í miðvörðinn.
Það þarf ekki að koma á óvart
þar sem vörn Þróttar var hriplek
í fyrra og fékk á sig 46 mörk.
Ætli liðið að halda sæti sínu
í deildinni í sumar verður
vörnin að halda og þar
verður Danry í algjöru lykil-
hlutverki.
> X-FAKTORINN
Hjörtur Hjartarson var marka-
hæsti leikmaður liðsins í fyrra með 8
mörk. Þessi reynslumikli leikmaður
þarf að gera álíka vel í sumar en
aldurinn færist yfir og spurning hvað
Hjörtur á mikið inni.
Ætlum að selja okkur dýrt
Það hafa nokkrar breytingar orðið á liði
Þróttar milli ára. Sigmundur Kristjánsson
er horfinn á braut sem og Michael Jackson,
Magnús Már Lúðvíksson, Brasilíumennirnir
og markvörðuinn Bjarki Freyr.
Þróttur hefur fengið markvörðinn Henrik
Bodker í staðinn en hann hefur meðal ann-
ars spilað í dönsku úrvalsdeildinni.
Liðið hefur einnig fengið hinn tvítuga
miðjumann Odd Inga Guðmundsson sem
hefur verið á mála hjá Esjberg og svo eru
ungir menn sem misstu af miklu vegna
meiðsla klárir í slaginn.
„Við erum með afar ungt lið í bland við
nokkra reynslumeiri. Ég persónulega tel
okkur vera sterkari nú en á sama tíma í
fyrra,“ sagði Gunnar Oddsson, þjálfari
Þróttar, sem fagnar endurkomu manna úr
meiðslum.
„Haukur Páll missti nánast af öllu tímabil-
inu í fyrra en var með betri mönnum móts-
ins fram að því. Annar strákur, Birkir Páls-
son, spilaði ekkert í fyrra en er klár núna.
Svo höfum við einnig fengið Skúla Jónsson
frá KR en það er heilmikið spunnið í þann
strák,“ sagði Gunnar.
„Við ætlum að selja okkur dýrt í sumar.
Við vitum að þeir sem eru til í að leggja
mikið á sig geta uppskorið ríkulega. Við
erum til í það. Ég veit að margir óttast
breytingarnar en það var ekki mikil eftir-
sjá að öllum sem fóru. Ég kvíði ekki þessu
sumri. Við ætlum að gera betur en í fyrra og
verðum klárir strax frá fyrsta leik.“
FÓTBOLTI „Við vorum svolítið heppnir með þennan dóm
en svona er fótboltinn furðulegur,“ sagði Sir Alex
Ferguson um vítaspyrnudóminn umdeilda sem kom
Man. Utd inn í leikinn og virkilega af stað. „Við höfum
fengið að kenna á lélegum dómum eins og í bikar-
leiknum sem þýddi að við féllum úr leik. Það geng-
ur ekki að velta sér upp úr því heldur verðum við að
halda áfram.“
Harry Redknapp, stjóri Spurs, varð alveg brjálað-
ur þegar Howard Webb flautaði vítið á Gomes mark-
vörð sem virtist fara í boltann áður en hann kom við
Michael Carrick. Redknapp var enn reiður
eftir leik.
„Þetta voru skelfi-
leg mistök hjá dóm-
a ra nu m . L ei k-
mennirnir trúa
þessu ekki enn.
Þessi dómur
gjörbreytti
gangi leiks-
ins. United
hefði ekki
u n n ið á n
svona atviks
og það sýnir að
það þarf að nota
tæknina meira í
fótboltanum. Fjórði
dómarinn ætti að sitja
fyrir framan sjónvarp
og kveða upp úr með svona
dóma,“ sagði Redknapp.
Liverpool spilaði ekki vel
og lenti meira að segja undir
pressu frá tíu leikmönnum
Hull. Hollendingurinn Dirk Kuyt kom Liverpool hins
vegar til bjargar með tveimur mörkum sem skilaði
Liverpool þremur stigum.
„Það eru allir ánægðir fyrir hans hönd. Hann er
frábær atvinnumaður sem leggur hart að sér og það
gleðjast allir
þegar hann upp-
sker svona eins
og í þessum
leik. Völlurinn
gerði okkur erf-
itt fyrir en við
verðum að vera
ánægðir með
stigin þrjú,“
sagði
Rafa
Benitez, stjóri Liverpool.
Guus Hiddink, stjóri Chelsea, hvíldi
nokkrar af sínum stjörnum gegn West
Ham en gamli West Ham-maðurinn,
Frank Lampard, spilaði eins og venju-
lega. Hann fékk óblíðar móttökur frá
stuðningsmönnum Hamranna.
„Sumir fengu að hvíla en
mér dettur ekki í hug að
biðja Frank um að hvíla því
ég veit að hann myndi horfa
á mig með augnaráði sem
segði hvað ég væri eigin-
lega að spá,“ sagði Hidd-
ink léttur en Chelsea
vann, 0-1.
„Strákar eins og
Lampard vilja spila.
Ég mun eflaust
þurfa að hvíla hann
síðar en ég mun
ekki horfa í augun
á honum þegar ég
færi honum tíð-
indin.“ - hbg
Sýning á Old Trafford
Man. Utd fór á kostum í síðari hálfleik gegn Tottenham. Þá skoraði liðið fimm
mörk eftir að hafa verið undir, 0-2. Liverpool gefur ekkert eftir og lagði Hull á
meðan Chelsea vann líka sterkan útisigur á nágrönnum sínum í West Ham.
MAGNAÐIR Ronaldo fagnar
eftir að hafa komið United yfir.
Berbatov fagnar með honum en
hann skoraði gegn sínu gamla
félagi. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Enska úrvalsdeildin:
STAÐA EFSTU LIÐA:
Man. United 33 24 5 4 61-23 77
Liverpool 34 21 11 2 66-26 74
Chelsea 34 21 8 5 56-20 71
Arsenal 34 18 11 5 60-32 65
Aston Villa 34 15 10 9 50-44 55
Everton 34 14 11 9 48-36 53
Fulham 34 12 11 11 34-28 47
FÓTBOLTI Kvennalandslið Íslands
og Hollands skildu jöfn, 1-1, í vin-
áttulandsleik í Kórnum á laugar-
daginn. Ólína Guðbjörg Viðars-
dóttir skoraði fyrir Ísland í fyrri
hálfleik en Hollendingar jöfnuðu
í þeim seinni.
„Ég var svo hissa á að hafa
skorað að ég vissi ekki hvernig
ég átti að fagna. Ég vissi ekki
hvort ég ætti að hlaupa til stelpn-
anna eða áhorfenda. Ég gerði eig-
inlega sitt lítið af hvoru,“ sagði
Ólína Guðbjörg brosmild eftir
leik en hún var að skora sitt
fyrsta landsliðsmark.
„Þetta var ágætis leikur og
góð barátta í liðinu. Við höfum
oft spilað betur en erum samt
ekkert óánægðar með okkur. Við
erum samt svekktar yfir að hafa
ekki unnið,“ sagði Ólína og bætti
við að það væri óneitanlega sér-
stakt að koma aftur heim þar sem
tímabilið væri ekki byrjað en hún
er að spila sjálf í Svíþjóð.
„Það er rosa gaman að koma
heim. Mér líður samt svakalega
vel úti þar sem allt er til fyrir-
myndar. Það er samt sérstakt að
fara í alla leiki sem eru baráttu-
leikir. Þetta er talsvert stökk
en maður er að byrja að venjast
þessu.“
Katrín Jónsdóttir fyrirliði var
ekki alveg nógu sátt eftir leik.
„Ég er ekkert voðalega ánægð
með jafnteflið en samt mjög sátt
við fyrri hálfleikinn hjá okkur.
Við stjórnuðum framan af en
duttum svo niður. Það vantaði
herslumuninn og við fengum
ekki alveg nógu góð færi. Samt
jákvætt að fá þennan leik og gott
að hittast aftur,“ sagði Katrín.
- hbg
Stelpurnar okkur gerðu jafntefli við Holland:
Vissi ekki hvernig
ég átti að fagna
BARÁTTA Rakel Hönnudóttir sést hér í slagnum í Kórnum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI „Ég stórefa að Kiel geti
tapað leik með fjórtán marka mun.
Það gerist bara aldrei,“ sagði Guð-
jón Valur Sigurðsson, leikmaður
Rhein-Neckar Löwen, aðspurður
um hvort hans lið ætti möguleika
í seinni leiknum gegn Kiel.
Guðjón og félagar voru kjöl-
dregnir í gær með fjórtán marka
mun, 37-23, og er því svo gott sem
komið í úrslitaleikina.
„Það kom okkur á óvart að við
skyldum spila eins og aumingj-
ar í þessum leik. Við höfum spil-
að geysilega vel síðustu vikur og
meðal annars lagt Flensburg og
HSV sannfærandi.
Við mættum því til leiks með
sjálfstraustið í lagi en leikmenn
voru samt greinilega ekki tilbúnir.
Við gerum meiri kröfur til okkar
en að tapa leik með svona miklum
mun. Sóknarleikurinn var í molum.
Skytturnar í tómu rugli og ég ekki
að stýra sóknarleiknum eins vel
og ég hef verið að gera síðustu
vikur,“ sagði Guðjón Valur sem
var hund svekktur en markvörður-
inn Thierry Omeyer reyndist þeim
afar erfiður enda varði hann hátt í
30 skot í leiknum.
Guðjón segir Löwen-strákana
samt ætla að nýta seinni leikinn
vel til að undirbúa sig fyrir undan-
úrslitaleikinn í þýska bikarnum en
þar mætast liðin einnig.
„Það væri mjög sterkt að vinna
seinni leikinn. Við þurfum að fá
sjálfstraust og finna að við getum
unnið þá. Við verðum að finna út
hvað virkar gegn þeim og hvað við
getum gert til þess að vinna þá,“
sagði Guðjón Valur.
Hann sagði stemninguna í klef-
anum hafa verið afar þunga og
leikmenn liðsins hlakka lítið til
átta klukkutíma rútuferðar sem
beið þeirra. - hbg
Kiel með annan fótinn í úrslitum Meistaradeildarinnar eftir stórsigur á Löwen:
Kiel tapar aldrei með 14 mörkum
GUÐJÓN VALUR Viðurkennir fúslega að
Löwen eigi litla sem enga von um að
komast í úrslit Meistaradeildarinnar.
NORDIC PHOTOS/BONGARTS