Fréttablaðið - 27.04.2009, Page 30
22 27. apríl 2009 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ SEGIR MAMMA?
LÁRÉTT 2. jurt, 6. tveir eins, 8.
umfram, 9. meðal, 11. gelt, 12. ávöxt-
ur, 14. hnupla, 16. í röð, 17. í hálsi,
18. skelfing, 20. mun, 21. land í asíu.
LÓÐRÉTT 1. kvk nafn, 3. guð, 4. brá,
5. skjön, 7. heimilistæki, 10. ílát, 13.
segi upp, 15. engi, 16. tæki, 19. skst.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gras, 6. rr, 8. auk, 9. lyf,
11. gá, 12. akarn, 14. stela, 16. tu, 17.
kok, 18. ógn, 20. ku, 21. laos.
LÓÐRÉTT: 1. erla, 3. ra, 4. augnlok,
5. ská, 7. ryksuga, 10. fat, 13. rek, 15.
akur, 16. tól, 19. no.
„Taugarnar liggja til Íslands, það
fer ekki á milli mála,“ segir Erla
Dögg Ingjaldsdóttir arkitekt, en
hún og eiginmaður hennar Tryggvi
Þorsteinsson arkitekt hafa opnað
listagallerí í Santa Monica í Kali-
forníu. Galleríið er í sama húsi
og arkitektastofan Minarc sem
þau hjón hafa rekið síðustu níu ár,
en Gallery Skart sýnir fyrst og
fremst íslenska list og er markmið-
ið að opna íslenskum listamönnum
leið inn á bandarískan markað.
„Við vorum heima í lok septemb-
er 2008 og sáum hörmungarnar
skella á. Við erum með skrifstof-
una okkar í hjarta Santa Mon-
ica, nálægt aðalmiðstöð menn-
inga og lista í Kaliforníu, og þar
sem við vorum með aukarými
fyrir framan skrifstofuna í sama
húsi fannst okkur tilvalið að nota
okkar öfl til að koma íslenskum
listamönnum á framfæri. Þetta
er okkar framtak til að hjálpa,“
útskýrir Erla Dögg, spurð um til-
urð gallerísins. „Skartbúðin er
tileinkuð íslenskum iðnaði og er
hugmyndin að hægt sé að nýta
galleríið til kynningar á Íslandi,
hvort sem er á list eða til annars
brúks,“ bætir hún við.
Gallery Skart hefur vakið mikla
athygli í Los Angeles, en meðal
annars hefur verið fjallað um það
í LA Times og á útvarpsstöðinni
KCRW. Nýlega hélt Bjarni Sigur-
björnsson myndlistarsýningu í
galleríinu, en nú stendur yfir ljós-
myndasýning GroupLA 2008 þar
sem 25 ljósmyndarar sýna staf-
rænar myndir á flatskjá sem þeir
tóku í sínu nánasta umhverfi í Los
Angeles árið 2008. „Fram undan
er sýning Friðgeirs Helgasonar
ljósmyndara og seinna í sumar
verður sýning sem kallast Fairy
Tales þar sem hugmyndin er að
listamenn taki þátt í vinnustofu
með börnum sem minna mega
sín,“ segir Erla Dögg, en áhuga-
sömum er bent á heimasíðu gall-
erísins galleryskart.com.
alma@frettabladid.is
ERLA OG TRYGGVI: OPNUÐU LISTAGALLERÍ Í LOS ANGELES
Opna Íslendingum leið inn
á bandarískan listmarkað
KYNNA ÍSLENSKA LIST Í BANDARÍKJUNUM Arkitektahjónin Erla Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Þorsteinsson opnuðu Gallery Skart í
Santa Monica þar sem þau reka stofuna Minarc.
„Ég vinn bara svona, ætli það sé ekki ástæðan
fyrir því að ég er enn í þessu djobbi,“ segir Jón-
atan Garðarsson, liðsstjóri íslenska Eurovision-
hópsins. Hópurinn fékk á föstudag yfirlit frá
Jónatani yfir dagskrá hópsins í Moskvu. Óhætt
er að fullyrða að hver einasta mínúta, hvert
skref, sé skipulagt. Eiginlega er hvergi autt gat
í tímaætluninni sem nær frá klukkan fjögur að
morgni sunnudagsins 3. maí til klukkan fjögur
síðdegis sunnudagsins 17. maí. Meðal þess sem
Jónatan var búinn að setja niður á blað voru
matmálstímar og háttatíminn. „Þegar svona
mikið gengur á þarf oft að minna fólk á þessa
annars sjálfsögðu hluti.“
Jónatan segist alltaf hafa gert svona skjöl
fyrir þá Eurovision-hópa sem hann hefur farið
með út. Og þeir eru þó nokkrir. „Þetta skjal
hefur verið svona tvö ár í mótun, fyrstu árin
skrifaði ég dagskrána bara frá degi til dags en
það þótti ekki heppilegt enda finnst fólki betra
að vita með góðum fyrirvara hvað sé að gerast,“
útskýrir Jónatan.„Það er mjög nauðsynlegt á
svona stórum viðburði að allir gangi í takt.“
Að sögn Jónatans er öryggisgæslan nokk-
uð mikil í Moskvu, menn þurfa til að mynda
að vera með öll sín skjöl á sér því annars gætu
þeir verið í vondum málum. „Öryggisgæslan
er alltaf meiri eftir því sem austar dregur í
álfunni, við verðum með einn til tvo öryggis-
verði og svo sérstaka rútu undir hópinn og
einn fólksbíl,“ útskýrir Jónatan sem kveðst
ekki hafa hugmynd um hvernig týpa sú ágæta
bifreið verður. „Í fyrra vorum við á Skoda og
svo höfum við verið á Benz, hins vegar skiptir
mestu máli að hann geti komið manni á milli
staða.“ - fgg
Hver mínúta skipulögð hjá Eurovision-hópnum
„Já, ég er bæði spenntur og kvíðinn,“ segir leik-
stjórinn Arnar Már Brynjarsson en hann er á leið-
inni til Cannes hinn 14. maí ásamt félögum sínum,
þeim Hlyni Björnssyni og Gunnari Antoni Guð-
mundssyni. Þeir, ásamt fjórða manninum, Hirti A.
Guðmundssyni, gerðu stuttmyndina HUX sem vann
Stuttmyndadaga Reykjavíkur í fyrra. HUX tekur
þátt í svokölluðu Short Film Corner sem haldin er
í tengslum við hina eiginlegu kvikmyndahátíð en
myndin segir frá tvítugum dreng sem reynir að
bjarga móður sinni undan klóm krabbameins.
Undirbúningur fyrir stuttmyndadaga Reykjavík-
ur í ár er nú í fullum gangi, Silja Hauksdóttir og
Ólafur H. Torfason auk Sigmundar Dúa Mássonar
verða í dómnefnd en hátíðin verður sett hinn 28.
maí. Arnar segir þá félaga ekki ætla að endurtaka
leikinn í ár. „Nei, við höfðum hreinlega ekki tíma en
stefnum á að vera með mynd á næsta ári.“
Arnar segir það hálf ógnvekjandi að vera að fara
á þessa frægustu kvikmyndahátíð heims sem hald-
in er við sólríkar strendur Miðjarðarhafsins. „Ég á
reyndar eftir að útvega mér smóking en það bjarg-
ast alveg örugglega,“ segir Arnar og viðurkennir að
þegar þeir gerðu myndina leiddu þeir aldrei hugann
að því að hún gæti verið farseðill til Frakklands.
Arnar, sem er 22 ára, hefur verið með ólæknandi
kvikmyndagerðardellu í ansi langan tíma. „Hún
kom þegar ég fékk myndbandsupptökuvél í ferm-
ingargjöf. Hún hefur eiginlega ekki farið síðan,“
segir Arnar en hann rekur ásamt félögum sínum
vélaleigu fyrir kvikmyndagerðarfólk undir nafninu
Royal & Zlátur. - fgg
Ungur leikstjóri til Cannes
Í FERÐAHUG Arnar Már Brynjarsson og Gunnar Anton Guð-
mundsson eru á leiðinni til Cannes og eru bæði spenntir og
kvíðnir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SKIPULAGÐUR Jónatan Garðarsson hefur skipulagt
hverja einustu mínútu hjá Eurovision-hópnum enda er
mikilvægt að allir gangi í takt.
„Hún hefur allt-
af verið mjög
skapandi. Hún
hefur þetta ekki
frá mér, þessi
elska, en það er
mikið af lista-
fólki í föðurætt-
inni. Mér finnst
þetta bara
æðislegt hjá henni, er rosalega
stolt og styð hana í öllu sem hún
gerir, því allt sem hún tekur sér
fyrir hendur tekur hún alla leið
og gerir það vel.“
Margrét Árnadóttir um dóttur sína, Andr-
eu Róbertsdóttur, en Jórunnarhjörtun
sem hún hannar njóta mikilla vinsælda.
Hún hannaði meðal annars hjörtu fyrir
Dorrit Moussaieff sem afhenti þau gest-
um á ráðstefnu sem hún sat um sérþarfir
barna í síðustu viku í Katar.
ATH TILBOÐIÐ GILDIR AÐEINS Í DAG
MÁNUDAG OG MORGUN ÞRIÐJUDAG.
ALLIR FISKRÉTTIR
990 KR/KG
GLÆNÝR
RAUÐMAGI
Tæknilið og fréttamenn RÚV blóta
væntanlega blaðaljósmyndara sem
staddur var á kosningavöku
Samfylkingarinnar í sand
og ösku. Sjónvarpið skipti
beint yfir á sigurræðu
Jóhönnu Sigurðar-
dóttur sem hún hélt
skömmu eftir að
fyrstu tölur voru
komnar í hús og allt
benti til stórsigurs
flokksins. Til einhverra stympinga
kom milli myndatökumanns RÚV og
ljósmyndarans sem endaði með því
að sá síðarnefndi sagði keppinautn-
um til syndanna. Því miður fyrir RÚV
var kveikt á hljóðnema þannig að
blótsyrðin hljómuðu undir orðum
formanns Samfylkingarinnar.
Og ögn meira af alþingiskosning-
unum. Því hljóðvarp Ríkisútvarpsins
var einnig með sína kosningavöku.
Útvarpsmaðurinn Guðmundur
Pálsson átti stutt spjall við fulltrúa
Borgarahreyfingarinnar,
Baldvin Jónsson, en
hann átti góða mögu-
leika á að komast inn
á þing í nótt. Baldvin
upplýsti að hann og
Þór Saari, verðandi
þingmaður hreyfingar-
innar, hefðu bundist
fastmælum um að
leggja fram tillögu um að háls-
bindatíska karlmanna yrði afnumin.
Ekki er víst hvernig hinn ópólitíski
armur búsáhaldabyltingarinnar hefði
brugðist við ef þetta hefði verið
fyrsta mál hreyfingarinnar þegar
þing verður kallað saman.
Og loksins komu góðar fréttir af
íslenskum útrásarvíkingum sem
hafa verið sagðir í felum undanfarna
daga og mánuði. Því Sunday Times
greindi frá því í gær að Björgólfur
Thor Björgólfsson sé meðal þrjátíu
ríkustu manna Bretlands. Skýtur eig-
anda knattspyrnuliðsins New-
castle ref fyrir rass. Meira að
segja Bakkavararbræðurnir
Ágúst og Lýður Guðmunds-
synir komast inn á listann
þótt þeir falli um
rúmlega hundrað
og fimmtíu sæti.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Auglýsingasími
– Mest lesið