Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 2

Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 2
2 2. maí 2009 LAUGARDAGUR Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is -5kr. við fyrstu no tkun TB W A \R EY K JA VÍ K \ SÍ A og síðan alltaf 2 kr. ásamt Vildarpunktum með ÓB-lyklinum Ólöf, ertu ekkert hrædd um að smitast af flensunni? „Nei, en þetta verður samt örugg- lega svínslega erfitt.“ Ólöf Jara Skagfjörð hefur verið ráðin til að leika Sandy í söngleiknum Grease, sem settur verður upp í Loftkastalanum. Hlut- verkið er krefjandi og einkaþjálfarinn Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillz, ætlar að koma leikkonunni ungu í form. SKOÐANAKÖNNUN Mikill meirihluti landsmanna telur að viðskipta- lífið sé spillt, eða áttatíu prósent landsmanna. Þetta kemur fram í niðurstöðum Þjóðarpúls Gallup sem RÚV segir frá. Sjö af hverjum tíu telja að stjórnmálaflokkarnir séu spillt- ir og helmingur aðspurðra að spilling viðgangist á fjölmiðlum landsins. Fleiri eru þessarar skoðunar en í sambærilegri könn- un sem gerð var fyrir tveimur árum, þó með þeirri undantekn- ingu að færri telja dómstóla landsins spillta. Helmingur fólks telur að mútum sé beitt innan viðskipta- lífsins til stjórnvalda í þeim til- gangi að hafa áhrif á stefnu- mótun. Þegar afstaða fólks eftir flokkum er skoðuð eru sjálf- stæðis menn ólíklegri til að telja að spilling þrífist hér, en kjós- endur Borgaraflokks og Vinstri grænna mun fremur. - shá Þjóðarpúls Gallup: Telja spillingu í viðskiptalífinu ÚTFLUTNINGUR Hjálmar Helgason, eigandi Vélafls, segir fyrirtækið hafa selt gríðarmikið af vinnuvél- um úr landi eftir bankahrunið. „Ég hef ekki töluna á vélunum sem við höfum selt síðan í október en í síðustu viku seldum við fjór- tán vélar úr landi,“ segir Hjálm- ar. Frá því hrunið varð í október hefur Vélafl haft stórt svæði við Hafnarfjarðarhöfn þar sem not- aðar og verkefnalausar vinnuvél- ar standa í löngum röðum. Hjálm- ar kveður fyrirtækið selja eigin vélar og vélar fyrir einstaklinga, verktaka og fjármögnunarfyrir- tækin. Útlendingar séu mjög iðnir að notfæra sér ástandið. „Við fáum nokkra erlenda gesti í hverri viku sem eru að skoða og kaupa. Það er alþekkt að það kemur hafsjór af mönnum yfir land sem er í þessari stöðu. Það sama gerðist í Finnlandi í kreppu þar 1995. Þá flugu vélabraskarar þangað á mánudögum og keyptu og keyptu af mönnum sem voru í neyð og flugu svo aftur heim á föstudögum,“ segir Hjálmar og bendir á að staðan á verktaka- markaðnum sé auðvitað mjög erfið og mikil yfirgeta í kerf- inu. „Enda er innflutningur síð- ustu ára búinn að vera fáránlega mikill. Margir hafa lent í vand- ræðum og viljað minnkað við sig fjárfestingu eins og hægt hefur verið en sumur hafa því miður misst tækin.“ Aðspurður segir Hjálmar að það verð sem fáist fyrir vélarnar með sölu úr landi sé ekki gott þótt fall krónunnar hjálpi mikið til. Í landinu sé einfaldlega enn svo mikið af verkefnalausum vinnu- vélum og vörubílum að verðið sé afar lágt. „Ég held að um áramótin hafi verið um tólf hundruð beltagröfur í landinu. Ég veit ekki hversu mikið þeim hefur fækkað en giska á að um 25 til 30 prósent þessara tækja sé í notkun í dag. Í þessari stöðu er hægt að gera góð kaup, auk þess sem það er talsvert af verkum í gangi og aðeins að lifna yfir markaðnum hér innanlands. Á morgun [í dag] er Vegagerð- in til dæmis að skrifa undir 850 milljóna króna verk á Austur- landi,“ segir Hjálmar. Að sögn Hjálmars eru ýmis önnur tæki en vinnuvélar og vöru- bílar seld úr landi, meðal annars fólksbílar og rútur. „Ég veit um menn sem hafa keypt sportbáta og verið að baksa við að setja þá upp á vörubíla sem er verið að flytja út,“ segir Hjálmar. Margar vinnuvélanna eru seld- ar til Hollands þaðan sem þær fara til viðtakenda um víða ver- öld. „Sjálfir höfum við líka selt vélar til Rússlands, Póllands, Afr- íku og til Mið-Austurlanda,“ nefn- ir Hjálmar sem dæmi. gar@frettabladid.is Vinnuvélabraskarar nýta neyð Íslendinga Eigandi Vélafls í Hafnarfirði segir útflutning vinnuvéla gríðarlegan enda hafi innflutningur þeirra verið fáránlega mikill fyrir kreppuna. Í hverri viku komi margir útlendir vinnuvélakaupendur til landsins til að nýta sér neyð Íslendinga. SÉR GREFUR GRÖF Gunnþór Sigurgeirsson sölumaður hjá Vélafli gengur um vinnu- vélaskóginn við Hafnarfjarðarhöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ég veit um menn sem hafa keypt sportbáta og verið að baksa við að setja þá á sportbíla sem er verið að flytja út. HJÁLMAR HELGASON EIGANDI VÉLAFLS LÖGREGLUMÁL Tveggja bíla árekst- ur varð á gatnamótum Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar á þriðja tímanum í gær. Annar bíllinn var að beygja vestur á Sæbraut af Kringlu- mýrarbraut en hinn ók austur Sæbraut. Að öðru leyti liggja til- drög slyssins ekki ljós fyrir. Um tvo fólksbíla er að ræða, og hafn- aði annar þeirra á grindverki, sem rifnaði upp og skekktist. Nokkurt lið lögreglu kom á staðinn ásamt sjúkrabíl, en ekki er þó talið að neinn hafi hlotið alvarleg meiðsl. Töluvert eigna- tjón varð á hins vegar á báðum bílunum. - sh Engan sakaði alvarlega: Lentu saman á gatnamótum AF SLYSSTAÐ Bílarnir voru nokkuð illa farnir eftir áreksturinn. Enginn slasaðist hins vegar að ráði. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL LÖGREGLUMÁL Söngvari bandarísku hljómsveitarinnar The Virgin Tongues, Duncan McKnight, slas- aðist lífshættulega þegar hann féll ríflega tíu metra niður af þaki fjögurra hæða húss við Skóla- vörðustíg í gærmorgun. Honum var í gærkvöldi haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. McKnight fannst liggjandi stór- slasaður í blóði sínu fyrir utan Skólavörðustíg 3 á áttunda tíman- um í gærmorgun. Lögregla telur að hann hafi fallið af þaki húss- ins þegar hann var að reyna að klifra á milli glugga. Fallið er um tíu metrar. McKnight var fluttur meðvit- undarlaus á sjúkrahús. Að sögn læknis á gjörgæslu var honum í gærkvöldi haldið sofandi í öndun- arvél. Hann er höfuðkúpubrotinn með mikla innvortis áverka. Lækn- ir segir líðan hans eftir atvikum. McKnight og hljómsveit hans ætluðu að troða upp ásamt íslensku hljómsveitinni Singapore Sling á Sódómu í kvöld. Í gærkvöldi stóð til að tónleikarnir yrðu eftir sem áður haldnir og að sveitin Kid Twist leysti The Virgin Tongues af hólmi. Ágóðinn myndi síðan renna óskiptur til McKnights. Áætlað er að húsið verði opnað klukkan tíu. Miðaverð er 1.500 krónur. - sh Söngvara bandarísku hljómsveitarinnar The Virgin Tongues haldið sofandi: Slasaðist við fall af fjórðu hæð HÁTT FALL Talið er að McKnight hafi verið að reyna að klifra á milli þakglugga þessa húss þegar hann féll til jarðar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Sundlauginni lokað Sundlauginni á Blönduós hefur verið lokað og rekstri hennar hætt. Verið er að byggja nýja sundlaug á Blönduósi og er stefnt að því að opna hana á næsta ári. BLÖNDUÓS Nýr útivistartími Nýr útivistartími barna og unglinga tók gildi í gær, 1. maí. Börn 12 ára og yngri mega nú vera úti til tíu á kvöldin og unglingar 13 til 16 ára mega vera úti til miðnættis. Bregða má út af reglunum þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri samkomu. FJÖLSKYLDUMÁL SAMFÉLAG „Ég vildi kalla eftir skilgreiningu frá lögreglunni, um hvað hún eigi við. Hvort „útlendingslegur“ eigi við um ljóshærða og bláeyga sænska stráka eða dökkhærða og brúna – það gæti átt við um Austfirð- inga, til dæmis,“ segir Katla Þor- steinsdóttir, stjórnarformaður Alþjóðahúss. Hún vísar hér til eftirlýsing- ar lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu síðan á þriðjudag, en þar var lýst eftir þremur þjófum um þrítugt. Þeir voru sagðir útlend- ingslegir á að líta. Katla segist almennt séð á móti því að fólk sé skilgreint svona. „En ég get ekki séð að þetta sé móðgun við útlendinga, mér finnst nú stundum vera sagt til hróss að einhver sé útlend- ingslegur. Ég veit bara ekki hvað þeir eiga við, það er til fullt af myndarlegu fólki á Íslandi,“ segir hún. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir að orðalagið hafi vakið upp spurningar. Lögreglan hafi ekki nein viðmið um útlendingsleg- heit. „Ég held að þetta sé nú bara óheppilegt orðalag, sem þarna hafi farið út frá okkur, ekkert öðruvísi en það. Lögreglan vildi koma að þeim upplýsingum, að menn töldu að þarna væru á ferð- inni menn af erlendum uppruna. Það byggist nú ekki bara á útliti þeirra,“ segir hann. Slíkar upp- lýsingar geti hjálpað til við að koma fólki og lögreglu á sporið. - kóþ Lögreglustjóri segir eftirlýsingu þriðjudagsins hafa verið óheppilega orðaða: Alþjóðahús spyr um útlendingsleika Frumkvöðlasetur opnað Opnað hefur verið frumkvöðlasetrið Kvikan við Strandgötu í Hafnarfirði. Í Kvikunni geta tíu til fimmtán frum- kvöðlar fengið aðstöðu til að vinna að viðskiptahugmyndum undir faglegri handleiðslu sérfræðinga. Frumkvöðl- arnir fá þar góða vinnuaðstöðu, tengslanet og stuðning við stofnun fyrirtækis. HAFNARFJÖRÐUR Minni grásleppuveiði Grásleppuveiðin það sem af er vertíðinni er um fjórðungi minni en á sama tíma í fyrra þrátt fyrir að bátar á veiðum séu fleiri. Innan við 5.000 tunnur eru komnar á land. Sjávarútvegsráðuneytið varð við ósk Landssambands smábátaeigenda um að veiðitíminn yrði framlengdur um viku vegna aflasamdráttarins, úr 55 dögum í 62 daga. SJÁVARÚTVEGUR DÓMSMÁL Sjómenn eiga að njóta slysatryggingaverndar almanna- trygginga á ferðum sínum á vegum útgerða frá heimilum sínum. Þetta er niðurstaða dóms í máli Hraðfrystistöðvar Þórs- hafnar gegn Tryggingastofnun ríkisins (TR). Málið snerist um kröfu skip- verja á hendur TR sem slasaðist í umferðarslysi árið 2007 á leið sinni til skips. Í dómnum sagði að ákvæði lögheimilislaga væru skýrð með þeim hætti að lögheimili manns og raunverulegur dvalarstaður færu að jafnaði saman. - shá Réttindamál sjómanna: Tryggðir á leið sinni til skips KATLA ÞORSTEINSDÓTTIR Stjórnarformaður Alþjóðahúss kallar eftir skilgreiningu lögreglu á hvað það sé að vera útlendingslegur. Hún er almennt á móti skilgreining- um af þessu tagi. STEFÁN EIRÍKSSON Lögreglustjóri segir umrætt orðalag óheppi- legt en upplýs- ingar af þessu tagi geti hjálpað lögreglu að kom- ast á sporið. SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.