Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 4

Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 4
4 2. maí 2009 LAUGARDAGUR Nánari upplýsingar í síma 525 4444 og á endurmenntun.is VERKEFNASTJÓRNUN – LEIÐTOGAÞJÁLFUN Fræðileg og hagnýt verkefni Efling leiðtogahæfileika Alþjóðleg vottun Lotubundin kennsla – hentar með vinnu Umsóknarfrestur til 11. maí SAMGÖNGUR Iceland Express er hætt að fljúga til Stansted-flug- vallar í Essex á Suður-Eng- landi. Í staðinn flýgur félagið til Gatwick- flugvallar, sem er rétt sunnan við London, en þaðan er flogið til allra átta. „Við höfum um skeið verið að velta fyrir okkur að færa okkur yfir til Gatwick, þaðan er styttra í miðborgina og að mörgu leyti þægilegra fyrir okkar farþega,“ segir Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, í tilkynningu. Iceland Express verður með aðstöðu á suðurhluta vallarins. - ghs Iceland Express: Flýgur nú til Gatwick MATTHÍAS IMSLAND LÖGREGLUMÁL Þrjár sautján ára stúlkur hafa gengist við því að hafa haft sig mest í frammi þegar fimmtán ára stúlka var numin á brott frá heimili sínu á mið- vikudag og ekið upp í Heiðmörk þar sem gengið var hrottalega í skrokk á henni. Fjórar stúlknanna sjö sem voru á staðnum gáfu sig fram við lögreglu í fyrrakvöld. Þær voru yfirheyrðar í viðurvist forráðamanna, enda ekki orðnar lögráða. Systir stúlkunnar hefur sagt að stúlkan hafi verið nær óþekkjanleg eftir árásina, svo bólgin hafi hún verið í andlitinu. Högg voru látin dynja á henni og var talað um að hún væri heppin að hafa ekki örkumlast. Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir málið að mestu upplýst. Ekki komi til greina að fara fram á gæsluvarðhald yfir stúlkunum. Þær séu ungar að árum, áverkar stúlkunnar séu ekki taldir alvarlegir og enn fremur séu engir rannsóknarhags- munir í húfi. - sh Mannrán og hrottafengið líkamsárásarmál í Heiðmörk er að mestu upplýst: Þrjár játa á sig mestu sökina SJÁVARÚTVEGUR Friðrik J. Arngríms- son, framkvæmdastjóri LÍÚ, telur að hafa megi reynslu bygginga- verktaka á árunum 1999 til 2002 til hliðsjónar í umræðunni um breyt- ingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu og uppboði á aflaheimildum í kjöl- far innköllunar þeirra. Í yfirstandandi stjórnarmynd- unarviðræðum Samfylkingar og Vinstri grænna er svokölluð fyrn- ingarleið á dagskrá, eða að fimm prósent veiðiréttar verði innköll- uð og verði endurúthlutað. Lengi hefur verið horft til uppboðsleiðar- innar og tekist á um hvort hún sé til bóta eður ei. Heimildir Frétta- blaðsins herma að fyrningarleið- in hafi ekki komið til umræðu enn sem komið er í umræðum flokk- ana, en margir stjórnarliðar telji að ekki sé hægt að setja aflaheim- ildir á frjálsan markað skilyrðis- laust. Útfærslan sé eftir og sam- ráð verði haft við greinina við þá vinnu. Friðrik segir að reynsla verk- takanna sé samanburðarhæf við þær hugmyndir sem nú eru uppi um breytingar á fiskveiðistefn- unni. Þriðjungur verktaka fór í þrot eftir að hafa keypt lóðir háu verði vegna ótta við verk- efnaleysi. „Þetta er bara mun verra hvað varðar sjávarútveg- inn vegna þess að upptaka og upp- boð aflaheimilda leiðir til þess að langtímasjónarmiðum um ábyrga umgengni við auðlindina er fórn- að. Það hefur sýnt sig að þeir sem ekki eiga trygga aflahlutdeild sýna auðlindinni ekki sömu virðingu og þeir sem hafa fjárfest í aflahlut- deild. Þetta er eini munurinn og að öðru leyti algjörlega samanburðar- hæft.“ Þorsteinn Víglundsson, varafor- maður Samtaka iðnaðarins, vakti athygli á þeim vanda sem kom upp í byggingariðnaðinum eftir að útboðsleiðin var reynd fyrir ára- tug. „Það er enginn vafi í mínum huga að það er hægt að draga samlíkingu þarna á milli“, segir Þorsteinn. „Þegar uppboðsmarkað- ur er settur á fót þar sem kaupand- inn er settur í þá aðstöðu að fá allt eða ekkert, en þannig var þetta í lóðauppboðum þar sem þeir fengu sem voru nógu kaldir að bjóða, þá skaparðu hættu á því að verðlagn- ing verði óraunhæf. Ef þú býrð til skort þá hækkarðu verð.“ Þorsteinn segir spurninguna liggja í því hvort tilgangurinn sé að hækka verð eða innheimta sanngjarnt endurgjald. „Það getur varla verið markmiðið að sprengja upp verðið á aflaheimildunum, heldur að greinin sjálf sé arðbær, borgi skatta og skapi störf. Hættan er sú að ríkið tekur til sín megin- þorrann af væntanlegum arði af veiðunum.“ svavar@frettabladid.is Reynslan kennir að uppboðsleið er ófær Lóðauppboð í Reykjavík leiddi til fjöldagjaldþrota í byggingaiðnaði. Útvegs- menn telja að „upptaka og uppboð aflaheimilda“ skuli skoðast í þessu ljósi. Sjávarútvegur hefur ekki verið ræddur í stjórnarmyndunarviðræðum. FRÁ VESTMANNAEYJUM Útgerðarmenn telja að uppboð aflaheimilda í kjölfar fyrning- ar aflaheimilda skuli skoðast með hliðsjón af reynslu annarra atvinnugreina af þeirri leið. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Það er enginn vafi í mínum huga að það er hægt að draga samlíkingu þarna á milli. ÞORSTEINN VÍGLUNDSSON VARAFORMAÐUR SAMTAKA IÐNAÐARINS GETUR EKKI VIKIÐ STÚLKUNUM ÚR SKÓLA Stúlkurnar sem stóðu fyrir árásinni í Heiðmörk eru allar nemendur við Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Skóla- meistari Flensborgar segir málið hins vegar ekki í lögsögu skólans. Hann gæti ekki vikið stúlkunum úr skóla jafnvel þótt hann vildi. „Atvikið varð ekki í skólanum og það var ekki milli nemenda skólans,“ segir skólameistarinn Einar Birgir Steindórs- son. Það sé því ekki á forræði skólans. Einar segist hafa leitað eftir lögfræðiáliti vegna málsins og í ljós hafi komið að hann geti í raun ekkert aðhafst. EINAR BIRGIR STEINÞÓRSSON VEÐURSPÁ Alicante Bassel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 20° 24° 23° 17° 17° 23° 17° 16° 16° 19° 17° 20° 17° 31° 15° 20° 18° 14° Á MORGUN Hægviðri, 4-8 m/s. MÁNUDAGUR Hæg breytileg átt en hvasst sunnantil. 7 5 5 4 6 4 8 6 5 6 1 8 10 9 10 9 13 10 14 6 14 10 7 6 7 6 8 6 6 8 8 9 VÆTUSAMT Í dag verður heldur blautt eins og undanfarna daga en minnst rignir á Suðausturlandi. Það rofar heldur til er kvöldar. Síðdegis á morgun hvessir heldur suðvestan- lands og það bætir heldur í úrkomu. Hiti breytist lítið næstu daga. Soffía Sveinsdóttir Veður- fréttamaður HOLLAND, AP Karlmaður sem varð fimm manns að bana þegar hann reyndi aka á bíl hollensku kon- ungsfjölskyldunnar í bænum Apeldoorn, lést af sárum sínum á spítala í gærmorgun. Áður en maðurinn, sem var 38 ára gam- all, gaf upp öndina játaði hann að hafa ætlað að vinna kóngafólk- inu mein. Ekki liggur fyrir hvers vegna. Maðurinn ók svörtum bíl sínum í gegnum þvögu fólks og lauk ferð sinni með því að aka á styttu. Opin rúta kóngafólksins slapp naumlega við árekstur. Fimm manns létust og tólf liggja slasað- ir á spítala. - sh Reyndi að aka á kóngafólkið: Lést af sárum sínum á spítala VINNUMARKAÐUR Iðnnemar verða að vera með meistara á vinnu- markaði í minnst eitt ár til að geta klárað nám sitt og lokið sveinsprófi. Stefán Rafn Sigur- björnsson, formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema, óttast að iðnnemar detti úr námi vegna þessa, námskeið verði lögð niður og skortur verði á sérfræðimenntuðum iðnaðar- mönnum. „Í atvinnuleysinu eru iðn- nemar fyrstir til að fjúka. Margir gefast því upp á náminu. Ef þetta verður víðtækt vanda- mál sjáum við kannski fram á algjöran skort á iðnaðarmönnum í framtíðinni, sérstaklega í byggingariðnaði, þar sem þetta fólk dettur úr námi,“ segir hann. - ghs Stefán Rafn Sigurbjörnsson: Iðnnemar fyrst- ir til að fjúka KAMBÓDÍA, AP Yfirfangavörður Rauðu Kmeranna, sem nú er fyrir rétti fyrir að vera valdur að dauða þúsunda „óvina ríkisins“ á áttunda áratugnum, sagðist hafa þjálfað börn bænda til að starfa sem fangaverðir í fangabúðum Kmeranna. Börnin voru á aldrin- um tólf til sautján ára. Kaing Guek Eav, sem gengur undir nafninu Duch, stjórnaði S-21 fangelsinu í Phnom Penh, þar sem allt að 16.000 manns eru taldir hafa verið pyntaðir til dauða. Duch sagði að vegna þess hve ung börnin voru hafi verið auðveldara að móta þau og þjálfa. Duch er einn af fimm yfir- mönnum Rauðu Kmeranna sem nú er fyrir rétti. - ss Háttsettur Rauður Kmeri: Þjálfaði börn sem fangaverði RÓM, AP Veronica Lario, eigin- kona Silvios Berlusconi, forsætis- ráðherra Ítalíu, er allt annað en ánægð með fréttir af vali á frambjóð- endum Frels- isflokks eigin- manns síns fyrir kosning- ar til Evrópu- þingsins, sem fara fram í júní. Í opnu bréfi til ítalskra fjölmiðla segir Lario framboðslistann fullan af ungum leikkonum og stjörnum sem enga reynslu hafi af stjórnmálum. „Ég vil að það sé ljóst að ég og börnin mín erum fórnarlömb en ekki samsek í þessum gjörn- ingi. Við verðum að sætta okkur við þetta og þjáumst fyrir vikið,“ segir Lario. - kg Forsætisráðherra Ítalíu: Eiginkonan alls ekki ánægð SILVIO BERLUSCONI GENGIÐ 30.04.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 207,6007 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,95 127,55 188,33 189,25 168,92 169,86 22,676 22,808 19,321 19,435 15,769 15,861 1,2929 1,3005 190,21 191,35 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.