Fréttablaðið - 02.05.2009, Síða 8
2. maí 2009 LAUGARDAGUR
Inntökupróf í læknadeild Háskóla Íslands fyrir nám í læknisfræði og sjúkraþjálfun
verður haldið í Reykjavík fimmtudaginn 11. og föstudaginn 12. júní 2009. Nánari
upplýsingar verða sendar próftakendum eftir að skráningu er lokið.
Þátttakendur þurfa að skrá sig sérstaklega í inntökuprófið og er skráning opin til
og með 20. maí 2009. Skráning fer fram á netinu (www.hi.is). Staðfestu afriti af
stúdentsprófsskírteini skal komið til skrifstofu læknadeildar, Vatnsmýrarvegi 16,
101 Reykjavík, ekki síðar en 20. maí 2009.
Skráning í inntökuprófið getur farið fram þótt nemandi hafi ekki lokið stúdentsprófi
en þá skal skila staðfestingu til skrifstofu læknadeildar ekki síðar en 20. maí 2009
um að stúdentsprófi verði lokið áður en kemur að inntökuprófinu. Þegar inntöku-
prófið er þreytt skal nemandinn hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi
og skilað inn staðfestingu því til sönnunar.
Nánari upplýsingar um prófið og dæmi um próf-
spurningar má finna á heimasíðu læknadeildar
Háskóla Íslands, www.laeknadeild.hi.is
Inntökuprófið er eitt próf sem tekur tvo
daga, með þremur tveggja tíma próf-
lotum hvorn daginn, eða 12 klst. alls.
Niðurstaða prófsins birtist í einni einkunn
sem verður reiknuð með tveimur auka-
stöfum. Reiknað er með að niðurstaða
liggi fyrir ekki síðar en um miðjan júlí.
Árið 2009 fá 48 nemendur í læknisfræði
og 25 í sjúkraþjálfun rétt til náms í lækna-
deild Háskóla Íslands og skulu þeir hafa
skráð sig hjá Nemendaskrá fyrir 1. ágúst.
Þeir sem ekki öðlast rétt til náms í lækna-
deild, eiga þess kost að skrá sig, innan
sömu tímamarka, í aðrar deildir gegn
greiðslu skrásetningargjalds skv. reglum
Háskóla Íslands.
Inntökupróf í læknadeild HÍ
Læknisfræði og sjúkraþjálfun
Nánari upplýsingar á www.reykjavik.is og í síma 411 1111
RÍKISSAKSÓKNARI Karlmaður á þrí-
tugsaldri hefur verið ákærður
fyrir margvísleg brot. Honum er
gefið að sök að hafa kveikt í bíl og
hesthúsi. Einnig svikið út vörur
með stolnu greiðslukorti.
Samkvæmt ákæru ríkissak-
sóknara eru manninum gefin að
sök stórfelld eignaspjöll, með því
að hafa aðfaranótt mánudagsins
7. apríl 2008 borið eld að bíl sem
stóð utan Kaldárselsvegar. Bifreið-
in eyðilagðist.
Þá er maðurinn ákærður fyrir
að hafa sömu nótt borið eld að
innan stokksmunum í hesthúsi við
Sörlaskeið 9, Hafnarfirði. Miklar
skemmdir urðu á suðvesturhluta
hússins vegna elds, hita og reyks.
Hita- og reykskemmdir urðu á lofti
og veggjum í hnakkageymslu húss-
ins, og reykskemmdir í hlöðu og
vesturhluta hússins.
Í þriðja lagi er maðurinn ákærð-
ur fyrir fjársvik. Hann notaði
greiðslukort í eigu annars manns í
fimm skipti og sveik út vörur fyrir
tæpar níu þúsund krónur í versl-
un Skeljungs og Snókerbarnum.
Þá er maðurinn ákærður ásamt
öðrum manni fyri að stela bíl og
velta honum.
Annað mál á hendur manninum
vargnum er fyrir dómstólum nú.
Í því tilviki stakk hann mann
tvívegis með hnífi. - jss
HESTHÚSIÐ Hesthúsið sem maðurinn er grunaður um að hafa kveikt í stendur við
Sörlaskeið í Hafnarfirði.
Ákærður fyrir stórfelld eignaspjöll, íkveikju og fjársvik:
Sakaður um að
bera eld að hesthúsi
UMHVERFISMÁL Sérfræðingar á
vegum Veiðimálastofnunar settu
upp fiskteljara í Varmá í Ölfusi
nýlega. Teljarinn er íslensk smíði
frá fyrirtækinu Vöku. Búnaður-
inn er staðsettur ofan við helstu
hrygningarsvæði laxfiska í ánni.
Teljaranum er ætlað að telja fisk á
göngu upp og niður Varmá, en lág-
marksstærð fiska sem hann nemur
er um tuttugu sentimetrar.
Umtalsverður fiskdauði varð
í Varmá í nóvember 2007 þegar
mikið magn af klór lak til árinn-
ar frá sundlauginni í Laugarskarði
í Hveragerði. Seiðarannsókn-
ir í fyrra bentu til þess að seiða-
búskapur árinnar væri á uppleið
eftir slysið, en litlar upplýsingar
liggja enn fyrir um ástandið hjá
stærri fiski. Vonir standa þó til að
upplýsingar úr teljaranum muni
bæta þar verulega úr. - shá
Sérfræðingar Veiðimálastofnunar rannsaka lífríkið:
Fiskteljari settur í Varmá
FRÁ VARMÁ Áin hefur sérstöðu á Íslandi
og rannsóknir standa yfir.