Fréttablaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 32
4 fjölskyldan þegar hann er að keppa í mótor- krossi. Eiginmaðurinn á heimil- inu er sennilega sá forfallnasti af þeim öllum og á bæði götu- og tor- færuhjól af öllum toga. Keppir á alþjóðamótum Áhugi Freys á mótorhjólum hefur síst minnkað með árunum og í dag eiga þau hug hans allan. Hann keppir í mótorkrossi fyrir Kawasaki-liðið og Bílanaust er stuðningsaðili þess. Hann hefur hampað Íslandsmeistaratitli tvisvar og keppt á alþjóðamót- um. Freyr segir mótorkrossið, sem fer fram í stuttri hringlaga braut með stökkpöllum og kröpp- um beygjum, bæði ótrúlega skemmtilegt og reyna verulega á úthald og styrk. „Þetta er svolít- ið „hardcore“, maður fær drullu upp í sig og getur ekki andað í tuttugu mínútur á meðan maður er að klára brautina.“ Blaðamanni finnst lýsingin hljóma heldur ógn- vekjandi. Þegar Freyr lýsir því hvernig þrjátíu manns mætast í einni beygju á ógnarhraða segir mamman: „Það er sko langmest spennandi!“ Það er ekki á henni að heyra að hún óttist um krakkana sína í brautunum. „Þau eru svo vel varin, með hálskraga, nýrnabelti og allan mögulegan búnað. Það er ekki startað nema allt sé örugg- lega í lagi. En æsingurinn verður samt stundum svo yfirþyrmandi að ég verð örmagna af spennu. Þá þarf ég skyndilega að sýsla eitt- hvað annað, eins og að hella upp á kaffi.” Endúró frekar en mótorkross Systurnar Sigrún og Sólveig, fjór- tán og tíu ára, eru fullar stolts yfir afrekum bróður síns. Þær eru þó líka á kafi í sportinu og eiga báðar sín eigin hjól. „Mér finnst endúró langskemmtilegast,“ segir Sigrún. Það snýst um að keyra á löngum og þröngum slóðum sem lagðir eru í náttúrulegu umhverfi. „Mér finnst nefnilega skemmtilegra að keyra í náttúrunni en á brautum. Og ég hef heldur engan sérstak- an áhuga á að keppa.“ Yngri syst- ur hennar, Sólveigu, finnst hvort tveggja jafn skemmtilegt. Henni finnst gaman að keyra í braut- um og er að melta það með sjálfri sér að keppa þegar hún verður eldri. Og hún verður ekkert bara að keppa við stráka, enda margar stelpur farnar að stunda sportið. „Í dag eru um þrjátíu stelpur að keppa. Sumar þeirra eru orðn- ar svo góðar að maður sér ekki mun á þeim og strákunum,“ segir Sigurlaug. Þegar fjölskyldan byrjaði í mótor sportinu voru ekki margir sem deildu áhuga hennar. Í dag hefur það heldur betur breyst og hjóla nú í kringum þrjú þúsund manns í frístundum. Í takt við auk- inn fjölda iðkenda hefur aðstað- an snarbatnað og er fjölda góðra brauta að finna víða um land. „Við höfum fengið alveg frábærar viðtökur og það er greinilegt að það var þörf fyrir svona skóla,“ segir Örn Sævar Hilmarsson. Hann og æfingafélagi hans, Aron Ómarsson, stofnuðu Motocross-skólann hinn 9. janúar á þessu ári. Þeir ákváðu að ráðast í rekstur- inn eftir að hafa haldið nokkur námskeið sem gríðarleg aðsókn var í. Þeir Örn og Aron bjóða bæði mótorkross og endúró-námskeið fyrir unga sem aldna, stelpunámskeið, byrjendanámskeið, krakkanámskeið og líkamsræktarnám- skeið sem miða sérstaklega að því að koma þátttakendum í form fyrir átökin á hjólinu. Námskeiðin fara fram í einhverri þeirra fimm brauta sem eru í nálægð við Reykjavík. Vinsælast er að vera í Bolöldu, til móts við Litlu kaffistofuna, þar sem aðstaðan er best. Staðsetningin stjórnast þó algjörlega af veðri og ástandi brauta. Aron ráðleggur þeim sem eru að byrja að fara á einkaþjálfunarnámskeið. „Þau henta sérstaklega vel fyrir byrjendur. Flestir sem hafa mætt á þau námskeið ná mjög góðum árangri á stuttum tíma. Þetta er bara svipað og með aðra líkamsrækt, einkaþjálfunin skilar bestum árangri á stystum tíma.“ Skólinn útvegar þeim hjól sem ekki eiga slíkt sjálfir. Svo eru þeir með ljósmyndara á sínum snærum svo nemendur geta keypt mynd af sér á diski á námskeiði loknu. Frekari upplýsingar um skólann er að finna á vefsíðunni www.mxs.is. - hhs Lært að hjóla í mótorhjólaskóla ÞESSU FYLGJA svo margir góðir kostir. Við erum til dæmis saman flestar helgar á sumrin, keyrum um landið og leitum uppi gamla slóða eftir bændur og búalið,“ E IN N , T V E IR O G Þ R ÍR 2 48 .1 02 fjölskyldusport hjólum saman um landið ... Litla systir Sólveig er tíu ára en hún byrjaði að keyra mótorhjól sex ára. Í fullum skrúða Sigurlaug og Sólveig fylgjast með Frey fyrir keppni. FRAMHALD AF FORSÍÐU ÖRYGGIÐ FYRST Fáar íþróttagreinar krefjast eins mikils hlífðarbúnaðar og torfæruvélhjólaakstur. Góður hjálmur, hálskragi, brynja, hnéhlífar, hlífðarvettlingar og góðir skór eru nauðsynjar sem allir sem ætla að stunda sportið fyrir alvöru þurfa að eignast. Nokkrar verslanir sérhæfa sig í búnaði fyrir mótó- kross, meðal annars Púkinn, JHM Sport, Nítró og MX Sport. Feðgar Torfi er sjaldan langt undan þegar Freyr er að keppa. Freyr á flugi Tvisvar sinnum hefur Freyr unnið Íslandsmeistaratitil. Íslenska liðið Freyr keppti fyrir Íslands hönd á Norðurlanda- móti árið 2005.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.