Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 35

Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 35
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 SELLÓLEIKARINN Natalie Gutman verður með ein- leikstónleika í Salnum í dag laugardaginn 2. maí. Hún leikur þrjár sólósvítur fyrir selló eftir J.S. Bach. www.salurinn.is Annasöm helgi er fram undan hjá Ástu Valdimarsdóttur hlátur- jógakennara. „Á sunnudaginn er alþjóðlegi hláturdagurinn og því verður helgin hjá mér að stór- um hluta undirlögð af hlátri,“ segir Ásta, sem mun kenna opinn hláturjógatíma í Manni lifandi í dag frá frá 10.30 til 11.30. Á sunnudaginn mun Hláturkæti- klúbburinn, sem Ásta er í forsvari fyrir, standa fyrir hláturgöngu í Laugardalnum. „Gangan hefst klukkan 13 við gömlu þvotta- laugarnar og svo göngum við inn í dalinn,“ segir Ásta en teknar verða hláturæfingar á leiðinni, sungið og farið í leiki. En fá ekki sumir aulahroll við það að hlæja upp úr þurru? „Jú, mörgum finnst þetta asnalegt í upphafi og því reyni ég að kynna þetta vel fyrir fólki svo það líti heldur á þetta sem líkamsrækt.“ Við biðjum Ástu að segja aðeins frá hláturjóga. „Hláturjóga er aðferð sem þróuð er af indverska lækninum dr. Madan Kataria. Það er sambland æfinga og jóga- öndunar og byggist á þeirri vís- indalegu staðreynd að hvort sem hlegið er vegna ytra áreitis eða af innri hvötum þá bregðist lík- aminn eins við, og jákvæð áhrif á hann verða þau sömu,“ segir Ásta en hláturinn á að hafa bæt- andi áhrif á andlega og líkam- lega líðan, samskipti við aðra og sjálfsmat fólks sem stundar þær. En hver er tilgangurinn með hláturdegi? „Þetta er hugsjón sem miðar að því að stuðla að friði manna á milli í heiminum með því að fólk hlæi með hvert öðru,“ svarar Ásta og innt eftir því hvort hún sjálf hljóti ekki að vera yfirmáta hamingjusöm fyrst hún sé síhlæjandi svarar hún því til að hún finni æ oftar fyrir ham- ingjutilfinningu og finnist lífið dásamlegt. Hún viðurkennir þó að eiga líka sínar dökku hliðar. „Stundum gleymi ég að hlæja og verð leið en þá hugsa ég bara aftur um það að brosa og hlæja og lífið brosir við mér á ný,“ segir Ásta og hlær eins og vera ber. Ásta ætlar þó ekki að liggja í hláturkasti alla helgina. Ýmis- legt annað er á döfinni. „Ég ætla að fara í sund á morgnana eins og mér finnst oft gott að gera og reyna svo að komast eitt- hvað meira út í náttúruna. Svo var ég líka búin að lofa vinkonu minni að hjálpa henni að flytja,“ segir Ásta, sem nýtur þess einn- ig að eyða sem mestum tíma með barnabörnunum enda klárt að það veitir ekki síður hamingju en hláturinn. solveig@frettabladid.is Hlátrasköll í Laugardal Alþjóðlegi hláturdagurinn er haldinn hátíðlegur um allan heim á sunnudaginn. Hér á landi mun Hlátur- kætiklúbburinn, undir stjórn Ástu Valdimarsdóttur, efna til hláturgöngu í Laugardalnum. Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari hlær hjartanlega enda skemmtileg helgi fram undan hjá henni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Léttar og sumarlegar herra- mokkasíur úr leðri, skinn- fóðraðir og með sterkum slitsóla. litir: espresso, cognac, sahara og svart stærðir: 40 - 46 verð: 14.700 - Hefur flú starfa› í greininni í fimm ár e›a lengur og getur sta›fest fla› me› opinberum gögnum? Viltu ljúka námi í pípulögnum? Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA fræ›slusetur í síma 590-6400, frekari uppl‡singar er jafnframt hægt a› sko›a www.idan.is. Einnig er hægt a› senda tölvupóst á netfangi› radgjof@idan.is Samskonar verkefni er veri› a› vinna í málarai›n, vélvirkjun, stálsmí›i, blikksmí›i og húsasmí›i. Hófst flú nám í pípulögnum en laukst flví ekki? E in n t v e ir o g þ r ír 4 26 .0 0 4 Ebba fræðir okkur um það hvernig hægt er að útbúa einfaldan og næringarríkan mat fyrir börn frá 6 mánaða aldri. Námskeiðið nýtist líka þeim sem eru með eldri börn. Upplýsingar og skráning eru í síma 694-6386 eða á netfanginu: ebbagudny@internet.is. Verð 3.500 kr Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? Námskeið með Ebbu Guðnýu í Yggdrasil Miðvikudagana 6. og 27. maí kl. 20:00-22:00 Tvö námskeið í verslun Yggdrasils, Skólavörðustíg 16 Farið verður yfir hvernig á að meðhöndla og búa til rétti sem innihalda : Ávexti og grænmeti Heilt korn eins og quinoa, hirsi, hafra, spelt o.fl. Baunir, kaldpressaðar olíur, möndlumauk, tahini, möndlur og fræ. Veglegt uppskriftar- og fróðleiks- hefti fylgir með námskeiðinu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.