Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 42

Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 42
 2. maí 2009 LAUGARDAGUR8 Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs Sveitarfélagið Garður óskar eftir að ráða bæjarstjóra sem getur tekið til starfa sem fyrst. Um er að ræða tímabundna ráðningu út yfi rstandandi kjörtímabil. Starfssvið bæjarstjóra: • Framkvæmdarstjórn sveitarfélagsins og hagsmunagæsla þess. • Vinna við framkvæmd ákvarðana sem teknar eru af bæjarstjórn. • Yfi rumsjón með rekstri og starfsmannahaldi bæjarins. • Samskipti við stofnanir, samtök, fyrirtæki og íbúa. Menntunar- og hæfniskröfur: • Reynsla af stefnumótun, rekstri og stjórnun. • Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi . • Hæfni í mannlegum samskiptum. • Frumkvæði og áhugi á uppbyggingu bæjarfélagsins. • Þekking á stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum æskileg. Sveitarfélagið Garður er á Suðurnesjum vestast á Reykja- nesskaganum. Á Garðskaga er byggðasafn og veitinga- staður, hvítur skeljasandur í fjörunni og Garðskagaviti sem stendur vaktina. Sveitarfélagið varð 100 ára árið 2008. Íbúar eru um 1.550 talsins og er áhersla lögð á fjölskyldu- vænan íþrótta- og skólabæ. Í Gerðaskóla eru um 250 grunnskólanemendur og um 90 leikskólabörn á leikskól- anum Gerfnarborg. Starfsmenn bæjarins eru 100 talsins. Upplýsingar um bæinn er að fi nna á heimasíðu hans www.svgardur.is og á bæjarskrifstofunni í síma 422 7150. Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofu Garðs að Sunnu- braut 4, 250 Garður eða á netfangið gardur@svgardur.is eigi síðar en 8. maí 2009. Upplýsingar um starfi ð veitir Oddný G. Harðardóttir bæjarstjóri í síma 892 3465, netfang: odd- ny@svgardur.is og Laufey Erlendsdóttir forseti bæjarstjórnar, sími 898 0999, netfang: laufey@gerdaskoli.is. Aðalfundur Reykjavíkurdeildar Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga verður haldinn 6. maí n.k. kl. 17:00 í húsnæði félagsins að Suðurlandsbraut 22. Efni fundarins er: 1. Kosning í stjórn Reykjavíkurdeildar. 2. Önnur mál. Formaður Reykjavíkurdeildar er sjálfkjörinn í stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem kosin verður á aðalfundi félagsins 12. maí. n.k. Í Reykjavíkurdeild, sem nær yfi r Reykjavík, Kópavog, Garða- bæ, Bessastaðahrepp, Hafnarfjörð, Mosfellsbæ, Kjósarsýslu og Seltjarnarnes, eru 2.572 hjúkrunarfræðingar af 3.451 félagsmönnum sem teljast til svæðisdeildanna níu. Stjórn Reykjavíkurdeildar TB W A \R EY KJ A V ÍK \ S ÍA Reiknistofnun Háskóla Íslands auglýsir þrjú störf Reiknistofnun sér um alla hugbúnaðargerð skólans. Stofnunin er vel staðsett þjónustu- stofnun í mjög fjölbreyttu rekstrarumhverfi . Hugbúnaðarumhverfi ð er Windows, Unix, Linux, MacOSX. Áhersla er lögð á hátækni og símenntun í starfi . Í boði eru áhugaverð og krefjandi störf þar sem sjálfstæði og skipulagshæfi leikar fá að njóta sín. Verkefnis- og gæðastjóri ytri vefs Leitað er að áhugasömum einstaklingi með háskólamenntun sem nýtist í starfi , reynslu af vinnu við og innleiðingu stórra vefja. Reynsla af verkefnis-, mannauðs- og gæðastjórnun stórra vefverkefna er kostur. Sérfræðingur í hönnun vefja fyrir ytri vef Leitað er að áhugasömum einstaklingi með reynslu af hönnun vefja og forritun í HTML og CSS-kóðun ásamt vinnu við stóra vefi . Reynslu af grafískri vinnslu er krafi st. Sérmennt- un á þessu sviði er kostur. Þjónustufulltrúi á þjónustuborði Reiknistofnunar Leitað er að áhugasömum einstaklingi með reynslu af vinnu við stóra vefi og vefumsjón- arkerfi . Krafi st er reynslu af aðgengisstýringum og prófunum vefkerfa, og háskólamennt- unar sem nýtist í starfi . Hæfi leikar í mannlegum samskiptum og hópstarfi ásamt sjálfstæðum vinnubrögðum er nauðsynlegt í öll störfi n auk góðrar íslensku- og enskukunnáttu. Umsóknafrestur er til 18. maí. Sjá nánar á www.starfatorg.is og www.hi.is/is/skolinn/laus_storf Ungbarnaleikskólinn Bjarmi Ungbarnaleikskólinn Bjarmi í Hafnarfi rði auglýsir laust til umsóknar starf leikskólakennara. Í leikskólanum er unnið með fl jótandi námskrá og dag- skipulag, uppeldisfræðilegar skráningar og teymisvinnu kennara. Hver kennari er lykilpersóna fyrir fjögur börn. Hugtökin umhyggja og virðing eru höfð að leiðarljósi og áhersla er lögð á skapandi starf og tónlist. Hægt er að sækja um starfi ð á heimasíðu skólans http://www.leikskolinn.is/bjarmi. Einnig er hægt að senda umsókn ásamt starfsferilsskrá á netfangið bjargir@gmail.com Nánari upplýsingar veita Helga Björg í síma 690 2709 og Svava Björg í síma 695 3089 Tilkynningar Auglýsingasími – Mest lesið 5

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.