Fréttablaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 2. maí 2009 29
veiðimanna að setja í stórlúð-
ur við strendur Íslands. Einnig
er mjög eftirsóknarvert að veiða
steinbít og stóra þorska. Stórlúð-
urnar koma upp að landgrunnin-
um á vorin og þá geta menn sett
í hrikalegar stórlúður fyrir utan
Vestfirðina og stundum á ólíkleg-
ustu stöðum. Þetta er annað sum-
arið mitt sem sjóstangaveiðileið-
sögumaður fyrir Fisherman en ég
er borinn og barnfæddur Súgfirð-
ingur (fæddur 1965) og átti hér
heima í 30 ár en fluttist í Kópavog
fyrir um 14 árum síðan. Á haust-
in hef ég síðan boðið íslenskum
og erlendum gæsaskyttum upp
á gæsaveiði víða um landið með
ágætis árangri.“
Villibráðarveisla í hæsta
gæðaflokki
Það voru ánægðir veiðimenn sem
sigldu inn Súgandafjörð eftir tíu
tíma úthald. Siglt var yfir Djúpið
og gaf þá á bátinn en í Aðalvík var
skjól af fjöllum og var stórbrotið
að sjá frá sjó. Afskaplega afskekkt
vík en sögufræg því þarna tók
Friðrik Þór Friðriksson Börn nátt-
úrunnar að hluta. Gert var að afl-
anum um borð en miklu skiptir að
hamfletta fuglinn sem fyrst svo
kjötið taki ekki í sig lýsisbragð af
hamnum og þá ekki síður innyflum
– fiski sem fuglinn nærist á. Og
kom á daginn að meistaraskyttan
Róbert reyndist meistarakokkur
einnig. Hann segir að ekki skipti
síður máli þegar veiðimennska er
annars vegar að kunna að neyta
bráðarinnar.
„Talisman er sjávarréttaveit-
ingastaður en ég hef sjálfur verið
að elda villibráð fyrir sérhópa
samkvæmt óskum viðskiptavina.
Þá gjarnan blanda ég villibráð og
fiskmeti saman eins og eftirfar-
andi matseðill sýnir glögglega,“
segir Róbert sem má að ári búast
við heimsókn þess sem hér skrif-
ar.
Ferðamennska mun aukast
innanlands
Ferðaþjónusta er eitt þeirra lykil-
orða sem heyrðust mjög í kosn-
ingabaráttunni í tengslum við
atvinnumál. Ekki að ófyrirsynju.
Menn búast við verulegri aukningu
ferðamannastraums innanlands
sem þó hefur verið í sókn undan-
farin ár. Hörmuleg staða krónunn-
ar þýðir að ekki er fýsilegt fyrir
Íslendinga að ferðast til útlanda
og búast má við auknum straumi
ferðamanna til Íslands. Ólöf Ýrr
Atladóttir er ferðamálastjóri
Íslands og hún segir rétt að fólk
í ferðaþjónustu vonist eftir veru-
legri aukningu. „En fæst orð bera
minnsta ábyrgð. Við vinnum fag-
lega og nú er verið að vinna könn-
un á væntingum innan íslensku
ferðaþjónustunnar. Hvað ætla
landsmenn að gera? Hvað vænt-
ingar hafa þeir til íslenskrar ferða-
þjónustu? Niðurstaðan getur orðið
til leiðbeiningar fyrir ferðaþjón-
ustuna. Við sjáum að dregið hefur
úr framboði hjá þeim sem ferja
fólk til útlanda sem gefur til kynna
að landinn ætli að horfa sér nær í
sínum ferðalögum. Og forvitnilegt
verður hvernig fólk skipuleggur
stóru sumarfríin sín.“
Vestfjarðakjálkinn er af mörg-
um óuppgötvuð perla. Hring-
vegurinn liggur einhvern veginn
þannig að menn hafa brunað þar
hjá. „Já, það er planið að breyta
því,“ segir Jón Páll Hreinsson
framkvæmdastjóri Markaðsskrif-
stofu Vestfjarða. Hann segir menn
í ferðaþjónustu á Vestfjörðum líta
björtum augum til sumarsins. Bók-
anir hafi gengið mjög vel. „Menn
eru bjartsýnir og eru tilbúnir að
taka á móti fólki. Nú eru sá tími að
fólk er að skipuleggja sumarið og
hér fyrir vestan eru menn að und-
irbúa sig; mála, græja, helluleggja
– já, menn eru viðbúnir því að það
verði nóg að gera.“
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Róbert segir Þjóðverjana snillinga við sjóstangveiðar og Íslendingar geti margt af þeim lært. Draumurinn er að setja
í stórlúðu en menn eru einnig að veiða risavaxinn þorsk og hlýra – og lítil ástæða til að fúlsa við slíkum feng.
ÞÝSKU SJÓSTANGVEIÐIMENNIRNIR ERU NÍSKIR SNILLINGAR SEM ÍSLENDINGAR GETA ÝMISLEGT LÆRT AF
FENGURINN Þeir voru ánægðir veiði-
félagarnir með fenginn en alls féllu um
tvö hundruð fuglar.
CINTAMANI EYGLÓ
Dúnúlpa með hettu og ekta loðkraga.
Fylling er 95% dúnn og 5% fiður sem
gerir úlpuna létta og hlýja.
CINTAMANI HARALDUR
Klassískur herrajakki með Cordura®
styrkingu á öxlum og undir ermum.
Gerður úr vatns- og vindheldu Teflon
húðuðu No Wind® efni frá Pontetorto®.
CINTAMANI SKÓR
Hallveig og Hallmar. Skór með Green
Diamond sóla. Green Diamond sólarnir
hafa gríðarlegt grip sem byggist á þú-
sundum lítilla grófkorna sem eru
innbyggð í sólann.
CINTAMANI ARNA
Mjúk, vindheld skel úr No Wind® efni
frá Pontetorto® á Ítalíu. Teflon húðun.
CINTAMANI UNNDÍS
Mjúk, vindheld skel úr No Wind® efni
frá Pontetorto® á Ítalíu. Teflon húðun.
CINTAMANI HALLUR
Vindheldur jakki með Teflon húðun, úr
B3.knt® efni frá Lanificio Becagli®.
OPIÐ:
10-18 MÁN – FÖST.
11-16 LAUGARD.
AUSTURHRAUNI 3
210 GARÐABÆ
S. 533-3811
Rey
kja
nes
bra
ut
kapl
akri
ki
15.990.-áður 29.990.-
14.990.-áður 29.990.-
SPJARAÐU ÞIG
7.990.-áður 12.990.-
10.990-áður 22.990.-
10.990.-áður 22.990.-
10.990.-áður 24.990.-