Fréttablaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 58
34 2. maí 2009 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
JÓN BÖÐVARSSON ÍSLENSKU-
FRÆÐINGUR ER SJÖTÍU OG NÍU
ÁRA Í DAG.
„Meira að segja við, þessir
gömlu karlar, vorum einu
sinni ungir.“
Jón Böðvarsson var skóla-
meistari Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og er þekktur fyrir
fyrirlestra og námskeið um ís-
lensku fornsögurnar.
MERKISATBURÐIR
1615 Þrettán skip farast og átta-
tíu menn drukkna í aftaka-
veðri á Breiðafirði.
1822 Tuttugu og tveir erlendir
skipbrotsmenn af tveimur
skipum sem höfðu farist
í hafís komast til lands á
Austurlandi.
1897 St. Paul, franskt spítala-
skip, strandar við Klöpp í
Reykjavík en næst út.
1945 Sovétmenn lýsa því yfir að
Berlín sé fallin í hendur
þeirra.
1957 Tvær nýjar millilandaflug-
vélar, Hrímfaxi og Gullfaxi,
koma til landsins.
1968 Maíuppþotin í París hefj-
ast.
1992 Jón Baldvin Hannibalsson,
þá utanríkisráðherra, undir-
ritar samninginn um Evr-
ópska efnahagssvæðið.
Vígsla virkjunar-
innar við Búrfell
fór fram þenn-
an dag árið 1970
að viðstöddum
um 600 gest-
um. Hún var
mesta mannvirki
sem Íslendingar
höfðu ráðist í og
fyrsta stórvirkj-
un Landsvirkj-
unar, 210 mega-
vött. Mest unnu tæplega 800 manns við bygg-
ingu hennar og á tímabili urðu verktafir vegna
skorts á vinnuafli.
Vígsluræðuna flutti dr. Kristján Eldjárn forseti
og með skírskotun til eyðingar byggðar í Þjórsár-
dal fyrr á tímum
komst hann svo
að orði: „Þjóðin
hefur nú endur-
heimt Þjórsár-
dal.“
Að ræðuhöld-
um loknum ræsti
forsetinn aflvél-
arnar og þungur
gnýr barst að
eyrum gesta
þegar straumur
Þjórsár tók að snúa hverflum þessa stóra orku-
vers.
Á framhlið stöðvarhússins er stór lágmynd eftir
Sigurjón Ólafsson og fyrir framan það er einnig
verkið Hávaðatröllið eftir hann.
ÞETTA GERÐIST: 2. MAÍ 1970
Búrfellsvirkjun vígð
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
Elísabet Gunnarsdóttir
Ægisgötu 16, Akureyri,
lést í Sjúkrahúsi Akureyrar aðfaranótt miðvikudags-
ins 29. apríl. Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju
fimmtudaginn 7. maí kl. 13.30.
Hreinn Sverrisson
Gunnar B. Hreinsson Vilborg Helgadóttir
Guðbjörn S. Hreinsson Kalína Klópóva
og barnabörn.
Okkar ástkæra
Guðrún Ragna Sveinsdóttir
lést á Vífilsstöðum 13. apríl sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Eiríkur Sigfinnsson
Veronika G. Sigurvinsdóttir Björn H. Kristjánsson
Páll Grétar Viðarsson Trine Ch. Andreassen
Þorbjörg Gunnlausdóttir Benedikt Þór Kristjánsson
Ingibjörg Lára Þorbergsd. Joao Petro Duarte
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Hannes Þorsteinsson
fyrrverandi aðalféhirðir Landsbanka
Íslands, áður til heimilis að Melhaga 6 í
Reykjavík,
lést á Dvalar og hjúkrunarheimilinu Grund laugardags-
kvöldið 25. apríl. Útförin fer fram frá Neskirkjunni í
Reykjavík kl. 15.00, þriðjudaginn 5. maí.
Hjörtur Hannesson Sigrún Axelsdóttir
Guðrún Hannesdóttir Vilhjálmur Þór Kjartansson
Una Hannesdóttir Geir Ingimarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Margrét Herdís Thoroddsen
Sólheimum 25, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfaranótt
sumardagsins fyrsta, 23. apríl. Útförin fer fram frá
Langholtskirkju mánudaginn 4. maí kl. 15.00.
María Louisa Einarsdóttir Hannes Sveinbjörnsson
Egill Þórir Einarsson Hlaðgerður Bjartmarsdóttir
Þórunn Sigríður Einarsdóttir Halldór Árnason
Sigurður Thoroddsen Jórunn Erla Sigurjónsdóttir
Einarsson
Margrét Herdís Einarsdóttir
barnabörn, makar þeirra og barnabarnabörn.
MOSAIK
AFMÆLI
VALTÝR BJÖRN VALTÝSSON
fjölmiðlamaður er 46 ára.
GARÐAR THOR CORTES söngvari
er 35 ára.
Elsta félag faglærðra kvenna á Íslandi
fyllir níunda tuginn í dag. Það er Ljós-
mæðrafélag Íslands sem stofnað var
af tuttugu konum árið 1919. „Sá texti
sem skrifaður var þá getur allt eins átt
við nú,“ segir Guðlaug Einars dóttir,
formaður félagsins. „En þó grunnur
starfsins sé alltaf sá sami hefur margt
breyst frá því í öndverðu. Mæðravernd
hefur rutt sér til rúms síðustu þrjátíu til
fjörutíu árin og í verkföllunum tveimur
sem við háðum á síðasta ári og eru þau
fyrstu í sögu félagsins, sýndum við al-
þjóð fram á að ljósmæður gera fleira en
að grípa fullburða, heilbrigð börn.“
Guðlaug segir afmælinu fagnað með
margvíslegum hætti. „Við gefum út
afmælisritið Lausnarsteinar og í gær
héldum við veglega ráðstefnu en það
sem hæst ber í dag er nítugasti aðal-
fundur félagsins sem verður með há-
tíðlegu yfirbragði. Til dæmis eru ljós-
mæður hvattar til að mæta í þjóðbún-
ingi. Svo er viðhafnar kvöldverður á
Grand hóteli.“
Félagið hefur alltaf verið hrein-
ræktað kvennafélag að sögn
Guðlaugar. „Aðeins einn karlmað-
ur hefur lokið námi í yfirsetufræð-
um á Íslandi. Það var á átjándu öld en
honum var mismunað á grunni kyn-
ferðis og fékk aldrei laun fyrir sín
störf,“ upplýsir hún.
Sögu formlegrar menntunar ljós-
mæðra hér á landi segir Guðlaug mega
rekja aftur til 1760 er Bjarni Pálsson
landlæknir gaf út tilskipun um að koma
henni á fót. Nú eru ljósmóðurfræði
eitt lengsta grunnnám sem kröfur eru
gerðar um hér á landi, eða sex ár. „Árið
1982 óskaði félagið eftir að menntun
ljósmæðra yrði endur skoðuð en hún
fólst þá í tveggja ára námi. Ráðuneyt-
in brugðust við þeirri ósk með því að
skella hjúkrunarnáminu framan við,“
lýsir formaðurinn og segir lengd náms-
ins fæla margar frá.
Ellefu ár eru frá því Guðlaug útskrif-
aðist. Hún kveðst hafa unnið fyrst sem
ljósmóðir á fæðingardeild Landspítal-
ans og eftir það á Ísafirði og Selfossi.
Einnig í Hollandi og Danmörku.
Hvað telur hún skemmtilegast við
starfið? „Það sem ég fæ mesta pústið út
úr er að taka þátt í þroskaferli foreldr-
anna. Það er mjög gefandi. Ég er fyrst
og fremst áhugamaður um að konur fái
að fæða á eðlilegan hátt, eins og þær
vilja sjálfar og gerir þær að sterkari
einstaklingum.“
Sem betur fer eru flestar meðgöngur,
fæðingar og sængurlegur eðlilegar
en alltaf eru frávik frá því. Guðlaug
segir mestu áskorun ljósmæðra felast
í að greina réttilega þar á milli. „Nú
höfum við aðstæður til að bjarga ýmsu
sem ekki voru tök á áður en megum
í staðinn passa okkur á að túlka ekki
allt sem sjúklegt. Þess vegna þurfum
við, öllum til heilla, að fjölga eðlileg-
um meðgöngum og fæðingum. Það er
ósk okkar á afmælisárinu að vinna að
stefnumótun í því með heilbrigðisyfir-
völdum.“
gun@frettabladid.is
LJÓSMÆÐRAFÉLAG ÍSLANDS: VAR STOFNAÐ ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1919
Einn karlmaður hefur lokið
ljósmæðranámi á landinu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
FORMAÐURINN Guðlaug með nýfæddan
herra Guðmundsson.