Fréttablaðið - 02.05.2009, Side 60
36 2. maí 2009 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hérna stendur
að hringitónn-
inn á símanum
þínum hafi verið
„Highway to
Hell“.
Á einhvern undar-
legan hátt kann
ég ágætlega við
þessi tvö!
Ég er nú
ekki viss
um þessi
tvö,
frekar
furðuleg!
Nei, eruð
það þið?
Hvar ertu
litli minn?
Næstum
blind,
getur
maður
treyst
svona
fólki?
Sjáðu Günther,
fyrstu leðurbux-
urnar þínar hafa
skroppið saman!
Þú getur
notað þær
þegar þú ferð
í ræktina!
Ekki séns!
Ég er búinn
að leita úti
um allt!
Hefur
einhver
séð skóna
mína??
Hvernig er hægt
að láta það fara
framhjá sér sem
er sjáanlegt
héðan?
Hvernig kemst
maður til
Norður-Afríku?
Leiðbeiningar
með
Mjása og
Lalla
Hvað? Ættirðu ekki að vera
með eyrnahlífar?
Hvað með þig?
Hættu!
Ég segi
mömmu!
Vaaaaa-
aa!!!
Hættu
sjálf!
MAMMA!
Kvikmyndastjörnur frá Hollywood eru ákveðið fyrirbæri í menningarsögu Vesturlanda. Áhuginn á því sem þær
gera, borða og kaupa er hálf-sjúkur en vel
skiljanlegur; þetta er liðið sem dregur millj-
ónir manna í kvikmyndahúsin, setur ný við-
mið í tísku og er fyrirmyndir ungra sem
aldinna. Þær eru moldríkar, á þeim kjaftar
hver tuska og ástalífið er alla jafna
ákaflega fjörugt. Brúðkaupin til-
komumikil sýning, skilnaðarnir
orrustur þar sem engum er hlíft og
hver króna skiptir öllu máli.
Sjálfur hef ég alltaf
heillast mest af þeim kvik-
myndastjörnum sem stand-
ast allar freistingarnar. Til
að mynda var Paul heitinn
Newman í miklu uppá-
haldi hjá mér, var í brans-
anum í meira en hálfa öld
og var giftur sömu konunni. Newman þótti
ákaflega heillandi maður en samkvæmt goð-
sögninni lét hann aldrei glepjast af gylliboð-
um einhverra grúppía og gála og var bara
við eina fjölina felldur. Ég fékk því hálf-
gert áfall þegar ég las á mbl.is að hann hefði
hugsanlega átt fleiri en eina hjákonu. Hug-
myndin um hina viljasterku stórstjörnu var
smátt og smátt að falla til grunna.
En svo kom Michael Caine til bjargar.
Þessi breski eðalleikari hefur verið giftur
Shakiru Caine frá árinu 1973 og á með
henni eitt barn. Og ég fékk aftur trúna á að
til væru leikarar sem gætu þrifist í kvik-
myndageiranum án þess að vera með bux-
urnar á hælunum eins og virðist eiga við um
flesta kvikmyndaleikarana í dag. Kannski
sem betur fer. Því fréttir af kvikmynda-
stjörnum væru kannski ekki skemmtilegar
ef þær væru allar eins og Michael Caine og
Paul Newman.
Elskulegar stórstjörnur
NOKKUR ORÐ
Freyr Gígja
Gunnarsson
Betur sjá augu en auga og því eru allar athugasemdir vel þegnar hvað mæ betur fara varðandi llögu að verndaráætlun fyrir verndarsvæði Mývatns og
Laxár. Umhverfisstofnun auglýsir llögu að verndaráætlun
fyrir verndarsvæði Mývatns og Laxár, sbr. 6. gr. laga nr.
97/2004 um vernd Mývatns og Laxár. Öllum er frjálst að
koma með athugasemdir við llöguna og skulu þær berast
innan sex vikna, eða fyrir 9.júní.
Tillöguna má nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar,
umhverfisstofnun.is, ásamt frekari upplýsingum. Einnig má
nálgast llöguna á skrifstofum sveitastjórna Skútustaðahrepps,
Þing-eyjarsveitar og Norðurþings, gestastofu Umhverfisstofn-
unar að Hraunvegi 8 í Reykjahlíð og hjá Umhverfisstofnun að
Suðurlandsbraut 24, Reykjavík.
Athugasemdum skal skilað skriflega l:
Umhverfisstofnun
Verndaráætlun Mývatns- og Laxár
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík
eða í gegnum tölvupóst á ne angið: ust@ust.is
Þann 4. maí kl. 20.30 verður haldinn opinn fundur í Skjólbrekku
og llagan kynnt.
Nánari upplýsingar vei ar hjá Umhverfistofnun í síma
591 2000
Hvernig ber að vernda
Mývatn og Laxá?
Velkomin á tónleika
Harmonikufélags Reykjavíkur í
Ráðhúsi Reykjavíkur í dag,
laugardag kl. 15:00.
Harmonikufélag Reykjavíkur
DAGUR
HARMONIKUNNAR
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Hart í bak
Sædýrasafnið
Creature - gestasýning
Í Óðamansgarði
ópera í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík
Skoppa og Skrítla í söng-leik
Kardemommubærinn