Fréttablaðið - 02.05.2009, Síða 64
40 2. maí 2009 LAUGARDAGUR
OKKUR
LANGAR Í
…
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Æðislega silfurlita tösku
frá Soniu Rykiel. Fæst í
Kisunni, Laugavegi.
Varasalva úr íslenskum
jurtum frá Sóley sem
heitri „Kiss me“!
Fiðrildanælu í skærum
litum frá Soniu
Rykiel. Fæst í Kis-
unni, Laugavegi.
Kúrekahattar, ponsjó í heitum litum, svartir kjólar með beltum og
kúrekastígvél eru svöl útgáfa af sumartískunni í sumar. Línan frá
franska lúxusmerkinu Hermes minnti á gamlar Clint Eastwood-
myndir og spagettívestra. Með þessu útliti er tilvalið að nota leður-
reimar um hálsinn, leðurbelti ýmiss konar og jafnvel skartgripi með
hauskúpum. - amb
KÚREKAR SUÐURSINS
Mexíkósk sveifla
einkenndi sumar-
línuna frá Hermes
SVALT Rendur og rúskinn hjá Hermes.
Þessi fyrirsæta er meira að segja með
vindil í stíl.
SÍTRUSGRÆNT Fallegur grænn silkikjóll
við kúrekahatt úr rúskinni.
GLÆSILEGT
Fallegur
svartur kjóll
við svartan
hatt.
> FLÓAMARKAÐUR Í KREPPUNNI
Í dag verður haldinn skemmtilegur flóa-
markaður sem allar tískuskvísur bæjarins ættu
að kynna sér. Hann verður til húsa á Lindargötu
6 en þar verða vinkonurnar og tískudrottning-
arnar Elma Lísa Gunnarsdóttir, Silja Hauksdóttir
og Nína Björk Gunnarsdóttir að tæma fataskáp-
ana sína. Allir eru velkomnir og tískuráðgjöf
verður einnig á boðstólum ásamt heitu kaffi.
RENDUR Töff
samsetning af
skyrtu ofan í
þröngar svartar
buxur
við
klút og
kúrekahatt.
KVENLEGT
Flottur víður
svartur kjóll
með breiðu
leðurbelti,
sólgleraugum
og hatti.
Kvikmyndaleikstjórinn David Lynch er meistari alls sem er skrýtið
og súrrealískt og í tilefni þess að hann er mættur á klakann er vert
að skoða hvaða áhrif hann hefur haft á tískuheiminn. David Lynch
hafði hug á því að gerast myndlistarmaður þegar hann var ungur
en eftir fimm ára listnám sneri hann sér alfarið að kvikmyndagerð.
Hann gerði í framhaldinu kvikmyndir sem hafa öðlast algjöran „költ-
status“ – Eraserhead, The Elephant Man, Blue Velvet og Dune sem
allar hafa haft áhrif á tískuhönnuði. Eraserhead með sinn skrýtna og
óhugnanlega „fifties“-stíl, þokkagyðjan Isabella Rossellini í kvenleg-
um svörtum kjólum með rauðan varalit í Blue Velvet og svo auðvit-
að geimfantasían Dune sem hönnuðir eins og Alexander McQueen og
Nicholas Ghesquiere segjast vera innblásnir af. En nafn Davids Lynch
er fyrir flestum óneitanlega samtvinnað sjónvarpsþáttunum Twin
Peaks þar sem kvenpersónurnar Shelley Johnson, Audrey Horne og
Donna Hayward gengu um með rauðan varalit í kynþokkafullri blöndu
af hnésíðum pilsum, strigaskóm og þröngum peysum. Twin Peaks hafa
ekki einungis haft áhrif á tískuhönnuði heldur veitt tískuljósmynd-
urum innblástur síðustu tuttugu árin. Lynch er þó farinn að tengjast
tískuheiminum á mun áþreifanlegri hátt, en hann fór til dæmis í sam-
starf við franska skóhönnuðinn Christian Louboutin árið 2007 eftir
að Lynch hafði beðið Louboutin um að gera „fetish“- eða blætis-skó
fyrir sýningu. Í framhaldinu héldu þeir áfram „fetish“-skógerðinni og
létu meðal annars búa til skó með 26 sm háum hælum sem voru sýnd-
ir af kviknöktum ljóshærðum fyrirsætum. Á síðasta ári leikstýrði svo
David Lynch auglýsingu fyrir Gucci-ilmvatn þar sem þrjár frægar
fyrirsætur dönsuðu við Blondie-lagið Heart of
Glass. Það kemur eflaust mörgum á óvart að
Lynch hefur í gegnum árin leikstýrt auglýsing-
um fyrir Armani, Yves Saintt Laurent, Calvin
Klein og Adidas. Fyrir þá sem af einhverjum
ástæðum hafa ekki enn uppgötvað þennan stór-
kostlega snilling er núna kjörið tækifæri til
þess að leigja alla Twin Peaks-seríuna, Eraser-
head eða Mulholland Drive, bæði til þess að
auðga andann og fá innblástur í fataskápinn.
David Lynch og tískan