Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 70

Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 70
46 2. maí 2009 LAUGARDAGUR > LYKILMAÐURINN Valur Fannar Gíslason hefur tekið við fyrirliðabandi Fylkis af Ólafi Stígssyni en hann er mikilvægur hlekkur á miðju liðsins. Valur Fannar er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað í vörn og á miðju og þá hefur hann oftar en ekki skorað mikilvæg mörk fyrir liðið á undanförnum árum. Valur Fannar nær að öllum líkundum að spila sinn hundraðasta deildarleik fyrir Fylki snemma sumars. FRÉTTABLAÐIÐ SPÁIR FYLKI 7. SÆTINU Í PEPSI-DEILDINNI SUMARIÐ 2009 GENGI SÍÐUSTU ÁRA 2008 9. sæti í A-deild 2007 4. sæti í A-deild 2006 8. sæti í A-deild 2005 5. sæti í A-deild 2004 4. sæti í A-deild 2003 4. sæti í A-deild AÐRIR LYKILMENN FJALAR ÞOR- GEIRSSON KRISTJÁN VALDIMARSSON HALLDÓR HILMISSON GENGI Á VORMÓTUNUM Sigrar Jafntefl i Töp 3 7 > X-FAKTORINN Jóhann Þórhallsson hefur ekkert verið með Fylki á undirbún- ingstímabilinu og kemur ekki til móts við liðið fyrr en í júní. Jóhann er því mikið spurningarmerki en finni hann skotskóna sína á ný getur hann hjálp- að Fylkismönnum mikið. 3 Fylkismenn drógust niður í fallbaráttuna í lok tímabils í sumar og enduðu í annað skiptið á þremur árum í hópi neðstu liða. Fréttablaðið spáir Fylki rétt fyrir neðan miðja deild. „Er það ekki bara ágætt að vera að vera spáð 7. sætinu?“ segir Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, sem er kominn aftur í Árbæinn eftir tíu ára fjarveru. „Liðið var í níunda sæti í fyrra þannig að það væri framför að enda í 7. sætinu. Ég stefni hærra sjálfur en aðalmarkmiðið er að festa liðið í sessi ofar í deildinni,“ segir Ólafur. „Ég held að sjö leikmenn sem byrj- uðu síðasta tímabil séu farnir og ég er því að móta nýtt lið. Við höfum ekki bætt við liðið en höfum reyndar fengið einn leikmann og það er Theódór Óskarsson. Ég er með unga og fríska stráka sem munu fylla í þessi skörð,“ segir Ólafur en hann veit að reynslan er ekki mikil hjá stórum hluta hópsins. „Þetta er mjög ungt lið og þetta gæti alveg orðið strembið tímabil,“ segir Ólafur. Fylkir hefur spilað þrettán mótsleiki á undir- búningstímabilinu og farið langt í báðum mótum. „Það hefur gengið mjög vel á undirbúnings- tímabilinu, við vorum að detta út fyrir FH í Lengjubikarnum og við fórum í úrslitaleikinn í Reykjavíkurmótinu,“ segir Ólafur. Fylkir hefur verið í efstu deild síðan að Ólafur kom liðinu upp sumarið 1999. Nú fær hann tækifærið til að stýra liðinu í efstu deild en hann tók við liði ÍA strax um haustið 1999. „Ég stefni á að gera góða hluti með Fylkisliðið eins og síðast,“ segir Ólafur að lokum. Gæti alveg orðið strembið tímabil Mannauðsáætlun Evrópusambandsins - People Styrkir til rannsókna í 7. Rannsóknaáætlun ESB Markmið áætlunarinnar er að bæta þjálfun og auka hreyfanleika vísindafólks milli landa. Dagskrá: Dr. Graham Wilkie frá framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins kynnir áætlunina. Sérstaklega verður farið yfir samstarf háskóla og atvinnulífs Dr. Þórunn Rafnar frá Íslenskri erfðagreiningu segir frá reynslu sinni af þátttöku í áætluninni Rannís kynnir aðstoð við umsækjendur Fyrirspurnir Fundarstjóri Þorsteinn Brynjar Björnsson, Rannís Vinsamlegast sendið tilkynningu um þátttöku á netfangið rannis@rannis.is Fundargestum verður boðið upp á léttan morgunverð. Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is 2007-2013Kynningarfundur á vegum RannísMiðvikudaginn 6. maí Grand Hótel Reykjavík 9:00-11:00 FÓTBOLTI Kristrún Lilja Daðadótt- ir og Íris Björk Eysteinsdóttir hafa tekið við þjálfun bikarmeist- ara KR í Pespi-deild kvenna. Þær Kristrún og Íris hafa handsalað samning til tveggja ára, með möguleika á framlengingu, en skrifa undir hann á mánudaginn. KR mætir Val í Meistarakeppni KSÍ á morgun. - óój Pepsi-deild kvenna í fótbolta: Kristrún og Íris þjálfa KR-konur FÓTBOLTI Heimir Guðjónsson, þjálf- ari FH, stillti upp hálfgerðu ungl- ingaliði þegar FH tryggði sér Lengjubikarinn með sannfærandi 3-0 sigri á Breiðabliki í Kórnum í gær. FH vann einnig deildabikar- inn 2004, 2006, 2007 og er því búið að vinna hann fjórum sinnum á undanförnum fimm árum. Sjö af ellefu byrjunarliðsmönn- um FH í úrslitaleiknum í gær voru fæddir 1987 eða síðar en það var ekki að sjá á leik liðsins að stór hluti liðsins var að spila stærsta leikinn til þess á ferlinum. „Þetta var mjög gott. Ungir leik- menn verða ekkert betri ef maður notar þá ekki. Þetta er ánægjulegt vandamál fyrir mig því nú hef ég úr fleiri mönnum að velja,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir leikinn. „Það meiddust fjórir leikmenn hjá okkur í síðasta leik en sem betur fer eigum við Ásgeir og Pétur Viðar sem stóðu sig mjög vel sem hafsentar. Þeir leystu það sem Tommy og Dennis hafa verið að gera. Það hefur alltaf verið fín breidd í FH. Þegar leikmenn hafa meiðst eða farið í leikbann hafa aðrir stigið upp. Menn gerðu það í dag,“ sagði Heimir. Viktor Örn Guðmundsson lagði upp tvö fyrstu mörk FH í leikn- um. Það fyrra skoraði Björn Dan- íel Sverrisson með skalla eftir horn Viktors á 37. mínútu og það síðara skoraði Matthías Vilhjálms- son með skalla aftur fyrir sig á 65. mínútu eftir aukaspyrnu Viktors af hægri kantinum. „Þetta gekk mjög vel. Ég var í fyrsta sinn á vinstri kanti og það heppnaðist ágætlega. Það er að ganga mjög vel hjá mér á fyrsta ári í meistaraflokki,“ sagði Vikt- or. „Vonandi fæ ég að spila meira og taka áfram föstu leikatriðin. Ég lagði upp tvö mörk í dag þannig að ég hlýt að fá að taka þau áfram. Það hefði fullkomnað leikinn ef ég hefði nýtt dauðafærið mitt líka,“ sagði Viktor, sem fékk mjög gott færi áður en Atli Guðnason inn- siglaði sigurinn á 82. mínútu eftir sendingu Guðna Páls Kristjáns- sonar. „Viktor er mjög góður spyrn- umaður og hann hefur sýnt það á undirbúningstímabilinu. Ég treysti honum fullkomlega í þessi föstu leikatriði,“ sagði Heimir, sem hefur engar áhyggjur af því að halda öllum sáttum í FH-liðinu. „Það er ekkert vandamál. Ég er ekki í þessu til að eignast vini því ég er í þessu til að vinna,“ sagði Heimir ákveðinn. Leikur Breiðabliksliðsins olli vonbrigðum enda fær liðið sjald- an eins góð tækifæri að vinna titil eins og að mæta eins konar vara- liði hjá FH. Sóknarleikur liðsins var bitlaus og það er ljóst að fram- herjaskorturinn gæti háð liðinu mikið í sumar. „Þetta voru bara verðskulduð úrslit fyrir okkur því betra liðið vann klárlega í þessum leik,“ sagði Ólafur H. Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, eftir leik. „Þeir voru með mjög marga leikmenn sem hafa lítið fengið að spreyta sig en stóðu sig vel í þessum leik. Þetta voru tvö unglingalið og FH-ingarn- ir voru miklu betri,“ sagði Ólafur, sem var ekki ángður með spila- mennsku liðsins. ooj@frettabladid.is Stráklingarnir stóðu sig hjá FH FH vann deildabikarinn í fjórða sinn frá árinu 2004 eftir 3-0 sigur á Breiðabliki í Kórnum í gær. FJÓRÐA SINN Á FIMM ÁRUM Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, með Lengjubikarinn eftir öruggan sigur á Blikum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KÖRFUBOLTI Ingi Þór Steinþórsson verður þjálfari meistaraflokka karla og kvenna hjá Snæfelli næstu þrjú árin auk þess að vera yfirþjálfari yngri flokka félags- ins. Ingi Þór skrifaði undir samn- inginn í gær. „Þetta er virkilega spennandi. Við þurfum bara að byrja á því að koma mannskapnum saman og fá það á hreint hvaða leik- menn verða áfram. Flestir þeir sem fyrir voru hjá liðinu halda áfram og svo er bara spurn- ig hvaða leikmenn maður fær til við- bótar. Ég mun reyna að fá ein- hverja stráka til að koma að spila með okkur hérna í Hólminum,“ segir Ingi Þór og bætir við: „Ég held að Snæfell geti alveg verið með lið í toppbar- áttunni og haldið áfram að gera góða hluti.” „Okkur vantar fyrst og fremst bakverði í liðið og ég er viss um að það er fullt af leikmönnum sem eru til í að koma vestur eftir.“ Ingi Þór hefur þjálfað hjá KR allan sinn þjálfaraferil og gerði meistaraflokk karla að Íslandsmeistur- um á sínu fyrsta ári 2000. Hann hefur alls gert tólf KR-lið að Íslandsmeist- urum ef teknir eru allir flokkar. - bb / - óój Ingi Þór Steinþórsson þjálfar bæði Snæfellsliðin: Vantar bakverði vestur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.