Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 72
2. maí 2009 LAUGARDAGUR
P
L
Á
N
E
T
A
N
HANDBOLTI Stjarnan er einum sigri
frá því að tryggja sér Íslandsmeist-
aratitilinn í handbolta þriðja árið í
röð eftir öruggan, 27-19, sigur á
Fram í Safamýrinni í gærkvöld.
Stjarnan leiðir einvígi liðanna
2-0 og getur tryggt sér titilinn á
heimavelli á sunnudagskvöldið.
Ætli Fram að kom í veg fyrir það
þarf liðið að leika mikið betur en
í fyrstu tveimur viðureignum lið-
anna því mikill getumunur virðist
vera á liðunum.
Stjarnan hóf leikinn af krafti og
náði fljótt fjögurra marka forystu,
1-5. Þann mun náði Fram aldrei að
minnka og jók Stjarnan forystuna
jafnt og þétt þar til sjö mörkum
munaði í hálfleik, 10-17.
Stjarnan skoraði fjögur fyrstu
mörk síðari hálfleiks og gerði út
um leikinn, sem varð aldrei spenn-
andi í síðari hálfleik þótt Fram
næði að minnka muninn í sex mörk
þegar korter var eftir.
„Við þurfum að finna baráttuna
ef við ætlum að vinna þetta. Við
höfum gert okkur þetta mjög erfitt
fyrir. Þetta var ekki okkar dagur.
Ég veit ekki hvað er að okkur og
það þarf hver og einn að líta í eigin
barm,“ sagði Karen Knútsdóttir í
leikslok. Fram kastaði boltanum út
af vellinum eftir aðeins átta sek-
úndna leik, sem gaf tóninn fyrir
leik liðsins. „Það var einkennandi
fyrir leikinn. Þær fiskuðu allt of
marga bolta af okkur. Þær ruku
út úr vörninni og við stóðum bara
kyrrar, það vantaði alla hreyfingu
í þetta hjá okkur,“ sagði Karen
niðurdregin. - gmi
Stjarnan einum
sigri frá titlinum
Fram virðist ekki hafa roð við sterku liði Stjörnunnar
sem hefur unnið tvo fyrstu leiki úrslitaeinvígis N1-
deildar kvenna með samtals fimmtán marka mun.
Í FRÁBÆRUM MÁLUM Þorgerður Anna Atladóttir brýst hér framhjá Framaranum Hildi
Knútsdóttur í leik liðanna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Fram – Stjarnan 19-27 (10-17)
Mörk Fram: Karen Knútsdóttir 5/2 (10/2),
Marthe Sördal 3 (4), Stella Sigurðardóttir 3 (9/1),
Þórey Rósa Stefánsdóttir 2 (3), Hildur Knútsdóttir
2 (3), Anett Köbli 2/1 (4/1), Pavla Nevarilova 1
(1), Ásta Birna Gunnarsdóttir 1 (5), Guðrún Þóra
Hálfdánardóttir (1), Sara Sigurðardóttir (3)
Varin skot: Sunneva Einarsdóttir 15 (42 35,7%)
Hraðaupphlaup: 5 (Þórey, Marthe, Stella, Ásta,
Pavla). Utan vallar: 6 mínútur
Mörk Stjörnunnar: Alina Petrache 9 (17), Sólveig
Lára Kjærnested 6 (8), Elísabet Gunnarsdóttir
4 (6), Þórhildur Gunnarsdóttir 2 (2), Kristín
Jóhanna Clausen 2 (3), Indíana Nanna Jóhanns
dóttir 1 (1), Jóna Margrét Ragnarsdóttir 1 (1),
Harpa Sif Eyjólfsdóttir 1 (6), Þorgerður Anna
Atladóttir 1 (6), Aðalheiður Hreinsdóttir (1)
Varin skot: Florentina Stanciu 17 (34/2 50%),
Sólveig Björk Ámundardóttir (2/1 0%)Hraðaupp-
hlaup: 6 (Sólveig 2, Elísabet 2,
Þórhildur, Harpa). Utan vallar: 6 mínútur
HANDBOLTI Atli Hilmarsson, þjálf-
ari Stjörnunnar, var að vonum
sáttur við sitt lið eftir að hafa náð
2-0 forystu í einvígi Stjörnunnar
og Fram í úrslitum N1-deildar
kvenna eftir tvo auðvelda sigra.
„Þetta var mun auðveldara en
ég bjóst við og sérstaklega eftir
yfirburði okkar í fyrsta leikn-
um. Ég hélt það kæmi
meira frá þeim í
[gær],“ sagði Atli
að leiknum lokn-
um.
„Það sem þær
gerðu betur var
að vörnin og mark-
varslan var betri, en
þær gerðu mörg mistök
í sókninni og við feng-
um mörg auðveld mörk
úr hraðaupphlaupum.
Vörnin hjá okkur hélt
vel allan leikinn og Flor-
entina tekur það sem fer
í gegn,“ sagði Atli.
„Nú er bara einn dagur
á milli leikja, sem er
erfiðara fyrir mitt lið þar sem
við spilum á fáum mönnum, en ég
gat aðeins skipt í dag og er feg-
inn því. Ég er líka mjög ánægður
með það hvernig þær komu inn á;
til að hafa áhrif, skjóta og gera
hluti. Þessar stelpur urðu Íslands-
meistarar í unglingaflokki fyrir
viku og þetta er framtíðin.“
Atli vill sjá fullt hús í Mýrinni
í Garðabæ á sunnudaginn enda
ætlar liðið sér að landa titlinum
á heimavelli fyrir framan sína
stuðningsmenn.
„Þessar stelpur eiga það svo
sannarlega skilið að það verði
frábær stemning á sunnu-
daginn og áhorfend-
ur hjálpi okkur að ná í
þennan titil. Við ætlum
ekkert að bíða lengur
með það heldur klára
þetta á sunnudag-
inn,“ sagði Atli að
lokum við Frétta-
blaðið.
- gmi
Atli Hilmarsson ætlar að klára þetta á sunnudaginn:
Vill sjá fulla Mýri
ATLI HILMARSSON