Fréttablaðið - 02.05.2009, Page 73
LAUGARDAGUR 2. maí 2009 49
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i
– Mest lesið
HESTAR Sigurbjörn Hreiðarsson
hjá Líflandi, tryggði sér sigur-
inn í Meistaradeild VÍS eftir frá-
bæran lokadag. Sigurbjörn vann
töltið og varð í 2. sæti í fljúgandi
skeiði.
Lið Málningar sigraði liða-
keppnina með yfirburðum og
fékk 386 stig eða 76 stigum meira
en næsta lið. Lið Málningar er
skipað þeim Sigurði V. Matthías-
syni liðsstjóra, Eyjólfi Þorsteins-
syni og Valdimar Bergstað. - óój
Meistaradeild VÍS 2009:
Sigurbjörn átti
flottan lokadag
MEISTARINN Sigurbjörn Bárðarson.
MYND/ÖRN KARLSSON
HANDBOLTI Haukar og Valur leika
í dag þriðja leik sinn um Íslands-
meistaratitilinn í N1 deild karla í
handbolta. Staðan er 1-1 eftir 32-29
sigur Valsmanna í framlengingu í
síðasta leik. Leikurinn í dag fer
fram á Ásvöllum og hefst klukk-
an 16.
„Staðan er bara góð og við erum
allir tiltölulega heilir. Við erum
búnir að nýta þessa tvo daga vel
í undirbúning og erum búnir að
laga nokkrar bilanir í vélinni. Við
erum búnir að fínpússa nokkra
hluti og erum tilbúnir í þetta,“
segir Haukamaðurinn Sigurbergur
Sveinsson, sem hefur spilað mjög
vel í úrslitaeinvíginu þrátt fyrir
að glíma við meiðsli. Sigurberg-
ur hefur skorað samtals 18 mörk í
fyrstu tveimur leikjunum.
„Ég hef ekki fundið mikið fyrir
þessu síðustu daga og er bara
nokkuð góður. Þetta hefur ekki
verið að hrjá mig mikið,“ segir Sig-
urbergur en einhverjir höfðu mikl-
ar áhyggjur af honum eftir að hann
skoraði aðeins 7 mörk og nýtti 29
prósent skota sinna í fyrstu tveim-
ur leikjunum í undanúrslitunum á
móti Fram. Sigurbergur nýtti 7 af
8 skotum sínum í oddaleiknum og
hefur skorað 8,3 mörk að meðaltali
og nýtt 63 prósent skota sinna í síð-
ustu þremur leikjunum.
„Ég fór aðeins í smá hugarfars-
breytingu. Hugur minn var eigin-
lega bara í meiðslunum og ég var
ekki að finna mig. Ég fór aðeins
inn í hausinn á mér og byrjaði að
hugsa aðeins öðruvísi og þá byrj-
aði þetta að koma,“ segir Sigur-
bergur.
„Ég er mjög ánægður með að
finna mikið fyrir þessu núna. Það
hefði verið svekkjandi að vera að
hakkast á hnénu á þessum tíma-
punkti. Ég er búinn að bíða eftir
því í allan vetur að spila þessa
leiki,“ segir Sigurbergur.
Sigurbergur segir að sárt tap í
síðasta leik sitji ekki í Haukunum.
„Ég held að það hafi verið sigur út
af fyrir sig að sýna þennan kar-
akter að ná að jafna leikinn eftir
að hafa verið fimm mörkum undir
þegar lítið var eftir. Það er til að
efla okkur,“ segir Sigurbergur og
bætir við: „Það vantaði aðeins upp
á að við værum að gera þetta sem
ein heild í síðasta leik og við þurf-
um að gera þetta sem lið. Þá hef
ég bullandi trú á því að við eigum
eftir að klára þetta,“ segir Sigur-
bergur en hann vonast eftir betri
mætingu en á síðasta leik.
„Ég býst við góðri mætingu.
Það var frekar illa mætt á síð-
asta leik en þar kemur inn í að
það var Meistaradeildarleikur á
sama tíma. Þetta er toppskemmt-
un. Menn eru að taka virkilega vel
á í þessum leikjum,“ segir Sigur-
bergur að lokum. - óój
Þriðji úrslitaleikur Hauka og Vals er á Ásvöllum í dag:
Sigurbergur tók
sjálfan sig í gegn
18 MÖRK Sigurbergur Sveinsson hefur
reynst Valsmönnum erfiður í úrslitaein-
víginu um Íslandsmeistaratitilinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LOKASTAÐAN Í DEILDINNI
1. Sigurbjörn Bárðars., Lífland 69 stig
2. Eyjólfur Þorsteinsson, Málning 57
3. Sigurður Sigurðars., Skúfslækur 50
4. Hinrik Bragason, Hestvit 46
5. Valdimar Bergstað, Málning 41
6. Sigurður V. Matthíass., Málning 34