Skinfaxi - 01.10.1927, Page 15
SKINFAXI
111
fólk, aðallega úr Dýrafirði og Önundarfirði,' en þó einn-
ig nokkuð úr Súgandafirði og ísafirði.
Formaður héraðssambandsins Björn kennari Guð-
mundsson að Núpi setti samkomuna með góðri tölu.
Siðan var lialdin guðsþjónusta. Illjóðfæri hafði verið
flutt á staðinn og söngurinn hljómaði liið hesta, þó úti
væri, enda eru, þar á Núpi, söngkraftar ágætir. — Séra
Sigtryggur flutti gagnorða prédikun. — Að messu lok-
inni hélt Björn Hermann Jónsson kennari á ísafirði
aðal-samkomuræðuna.
par næsl fóru fram iþróttir. Fimleikar og íslenskar
glímur. Fimleika sýndi stúlknaflokkur frá pingeyri
með stjórn Viggós íþróttakennara Natanaelssonar.
Sýndu stúlkurnar leikni sína á grasflöt, því leikpallur
var enginn né nokkur slíkur viðbúnaður. Sýningin tókst
mæta vel. Höfðu stúlkurnar þó þvi nær enga hentug-
leika haft til undirbúnings eða samæfingu að þessu
sinni. — Glímumennirnir voru (5 úr Mýrahreppi og
pingeyrar. Var Viggó sjálfur einn þeirra. Höfðu þeir
heldur ekki haft nokkrar æfingar til undirbúnings. En
glíman var ein með þeim allra hestu og fegurst glimdu,
sem eg hefi urn langt skeið séð. Hcfði eg vart trúað,
nenra af eigin sjón, að hér væru svo slyngir glímumenn
og samhentir Mér var þó sagt, að nokkrir, eigi síðri,
glímumenn væru fjarverandi.
Hlé var þá gert til veitinga, en þær liöfðu á hendi kon-
ur frá pingeyri. Að því loknu voru ræðuhöld frjáls. Töl-
uðu þá tveir eða þrir. En á eftir var hreppa-reiptog
millum Mýrahreppsmanna og pingeyrarlirepps. Varð
að því ágæt skemtun. Ekki þori eg að lialda því fram
að reiptog þetta hafi verið eftir ströngustu fyrirmæl-
um íþróttalaga, en með allra skemtilegustu reiptoguní
þótti mér það, þeirra sem eg hefi séð. Vildi svo skemti-
lega til, að ekki varð um tíma séð hvorir ynnu. Að lok-
um höfðu sinn vinninginn hvorir hreppsbúar.
Auk þess, sem hér er þegar talið, var einnig skoðað-