Skinfaxi - 01.10.1927, Blaðsíða 28
124
SKINFAXI
kenna börnunum erlend tungumál, áður en þau eru
læs á sitt eigið móSurmál, áður en þau liafa kynt sjer
það, sem getur gert þau að sönnum mönnum og góð-
um Islendingum, áður en þau kunna að velja og hafna
með skynsemd.
Og þó hefir þessi ósiður verið tekinn upp i kaupstöð-
unum og jafnvel upp í sveitum, að börnunum eru kend
erlend tungumál áður en þau eru læs á sitt eigið móð-
urmál.
petta getur haft afskaplegar afleiðingar fyrir þjóð
vora. Hér er beinlínis verið að vinna að þvi, að svifta
hörnin fótfestunni, svifta þau hinu besta veganesti sem
hægt er að fá þeim í hendur, áður en þau leggja út í
h'fið, og kasta þeim út á gaddinn.
Og hverjar verða afleiðingarnar?
Tungumálaþekkingin, sem þau fá í barnaskólunum,
kemur þeim að engu liði. pau eru ekkert betur búin
undir framlialdsnám í þessum málum lieldur en þótt
þau liefðu ekkert lært í þeim. — Merkir kennarar, sem
siðar meir hafa haft þau börn undir liöndum, liafa lýst
yfir þessu sama.
Og þekking þeirra er auðvitað svo lítil í þessum
málum, að þau geta ekki lesið neinar gagnlegar bækur
á þeim, þau geta ekkert lesið nema reifararusl, léleg-
ustu skrílsögurnar, úrkastið úr bókmentum annara
þjóða.
En þetta er nóg til þess að spilla bókmentasmekk
þeirra, nóg til þess að leiða þau inn á villigötur, sem
liggja til andlegrar tortímingar.
Og nú er komið svo, að fjöldi ungra manna hefir
aldrei lesið íslendingasögurnar, — les yfirleitt ekkerl
af íslenskum hókum, — ekkert nema erlenda reyfara.
Geta þessir menn orðið þjóðlegir, geta þeir orðið ann-
að en mentunarlaus skrill, stefnulaus, viljalaus og
óþjóðlegur?
pað gegnir að minsta kosti furðu, ef svo verður ekki.