Skinfaxi - 01.10.1927, Side 30
126
SKINFAXI
niusteri, sem náttúran sjálf hefir svo dásamlega húið
þar, að veglegra guðshús getur ekki að líta.
Að lokinni guðsþjónustu gengu allir undir fána til
Lögbergs, en þar flutti Gísli Sigurðsson kennari ítarlegt
erindi um pingvelli og sögu þeirra, skýrði hversu þing
var háð o. s. frv. Á eftir lýsti Helgi Valtýsson fyrsta
sambandsþingi U. M. F. í., sem háð var á pingvöllum
1907 er Sanibandið var stofnað. Var síðan hlé frá kl.
g—5 og notuðu ýmsir þann tíma til að skoða og fræð-
ast um sögustaði, en aðrir gengu til leikja uppi í gjá.
KI. 5 söfnuðust allir aftur saman í Almannagjá. Flutti
þá Guðm. Benediktsson cand. jur. snjalla ræðu fyrir
minni íslands, Guðhjörn Guðmundsson talaði nokkur
orð til A. Skásheim, sem var gestur U. M. S. K. á ping-
völlum þennan dag, en Skásheim svaraði aftur með
hvatningaræðu til íslenkra ungmennafélaga. Guðrún
Björnsdóttir mintist nýafstaðins sambandsþings og að
lokum flutti Guðbj. Guðmundsson nokkur kveðjuorð
til félaga og sleit samkomunni kl. rúmlega 6 og kl. 7
liéldu allir heim glaðir í Iund íneð góðar endurminn-
ingar dagsins. Veður var hið ákjósanlegasta, og átti
það sinn þátt i ánægju manna, jafnframt því sem það
gerði tign og fegurð staðarins enn meiri.
Samkoman hófst stundvíslega á tilteknum tíma og
mættu margir af því læra, þeir sem um likar samlcom-
ur sjá og hinir sem þær sækja.
Vinna sú sem U. M. S. K. gekst fyrir að framkvæmd
væri á pingvöllum siðastl. sumar af hálfu ungmenna-
félaga lil undirbúnings hátíðahöldunum 1930 fór fram
á tímabilinu 13. júní til 9. júli. Voru þar unnin 167 dags-
verlc við sléttun á flöt, sem ætluð er sem tjaldstæði
1930, og við breytingu á vegi, sem um flöt þessa lá.
Gekk vinnan vonum betur þegar tillit er tekið til þess,
að margir piltarnir voru óvanir jarðabótavinnu. Fé-
lagslíf var hið hesta með þeim. Iðkuðu þeir íþróttir á
kvöldin, syntu í Öxará, gengu á fjöll, nutu fræðslu um