Skinfaxi - 01.10.1927, Blaðsíða 32
128
SKINFAXI
Æfisaga.
Samband U. M. F. í. gaf út æfisögu Guðmundar
Hjaltasonar árið 1923. Var þetla eitt hið 'besla og sjálf-
sagðasta verk, sem samb. liefir gert. Guðmundur mun
lengi álitinn fórnfúsastur og' mestur velgerðamaður
islenskra ungmennafclaga. ]?ví er það skylt að heiðra
minningu lians sem best má verða. Enn hafa félögin
vart haft ráð á að gera það á neinn sómasamlegri liátt
en með þvi að gefa út æfisögu lians, sem hann hafði að
miklu leyti sjálfur ritað.
Ekkja Guðmundar er nú orðin öldruð kona og fá-
tæk. Hefir hún fengið andvirði þess, sem selst hefir af
bókinni og orðið hefir umfram útgáfukostnað.
Bókin mun nú komin víða um sveitir og kauptún
landsins. Flest ungmennafólög hafa keypt liana og sum
mörg eintök. pó munu nokkur félög lítið eða ékkert
hafa keypt af henni enn. Úr þessu má og þarf að bæta,
Nokkur hundruð eintök eru enn óseld af sögunni.
Var rætt um það á samb.-þinginu í vor, að nauðsyn bæri
til að selja þau sem fyrst. Til þess liggja tvær ástæður.
Ungmennafélagar þurfa að eignast hólcina af því að
hún er fróðleg og f jölbreytt að efni, og ekkert skýrir
hetur en iiún hið mikla fórnarsarf, sem Guðmundur
vann fyrir ungmennafélögin og íslenska alþýðument-
un yfir höfuð. Líka ætti það að hvetja ungmennafé-
Iaga til þess að kaupa hókina, að ekkja Guðmundar
nýtur andvirðisins.
Ungmennafélagar ættu að biðja um bókina sem fyrst
og ákveða eintakafjölda. Verð hennar Iiefir verið ákveð-
ið kr. 3,00.
Aths. Biðja vcrður lesendur Skinfaxa afsökunar á
þvi, að táknmynd hans var ekld prentuð framan á síð-
asta hefti.
i
I
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN