Skinfaxi - 01.01.1930, Blaðsíða 4
4
SIvINFAXI
Yar því engum fremur en henni trúandi til þess, að
reka gesthús i Þrastaskógi svo, að staðnum væri sómi
að.
Samningur sá, er sambandsstjórn gerði við E. E. um
leigu á bletti undir hús hennar, er mjög strangur af
hálfu sambandsins, svo að annálað er. Þar er tryggt svo
vel, sem gert verður með samningi, að rekstur húss-
ins verður jafnan U. M. F. I. lil fullrar sæmdar. Sam-
bandið á forkaupsrétt að húsinu, og ber að keppa
að því, að það verði næsti eigandi þess. Leigumáli er
sá, að E. E. leggur skógarverði til íbúð (góða stofu),
selur honum og aðstoðardreng fæði með tilteknu, mjög
lágu verði, og sér um geymslurúm fyrir áhöld Þrasta-
skógar.
Á sumarmálum 1928 var byriað á liúsgerðinni, en
Þrastalundur opnaður almenningi 1. júli sama ár. Full-
gert var liúsið þó ekki fyr en seint í júlí. Það er reist í
íslenzkum burstastíl, eftir uppdrætti, er gert liefir Þor-
leifur Eyjólfsson húsameistari. Allt er húsið hið prýði-
legasta og stendur fyllilega á sporði sumargesthúsum í
nágrannalöndum vorum. Það er snoturt, vistlegt og
mörgum þægindum búið. Þar eru t. d. rafljós, mið-
stöðvarhitun, haðklefi, vatnsleiðsla og frárennsli i öll-
um gestaherbergjum, vatnssalerni, frysliklefi og ann-
að eftir þvi. — Skrúðgarður var gerður við Iiúsið, jafn-
snemma og það var reist, og allt umhverfis ]iað er
snyrtilegra en dæmi eru til við gesthús annarstaðar á
fslandi. Er Þrastalundur fyllilega samboðinn vorum
fagra Þrastaskógi. Enda befir Elín Egilsdóttir ekkert
látið lil sparað, að svo mætti vera. Hún hefir unnið
með fullum skilningi jþess, að hún var að vinna í helgi-
dómi islenzkrar æsku. Á hún skilið óskoraða virðingu
og þökk ungmennafélaga fyrir það. Megi fyrirtæki
hennar blessast sem bezt og njóta vinsælda og viðskifta
góðra manna.