Skinfaxi - 01.01.1930, Blaðsíða 23
SKINFAXI
23
Á islenzka tungu er ekkert ritað um sálarlíf unglinga á þvi
skeiði, er U. M. F. mega frckast áhrif hafa á þroska þeirra.
Uppeldismál séra Magnúsar Helgasonar fjalla um bernsku-
árin, en almenn sálarfræði Ágústs háskólakennara Bjarna-
sonar ræðir einkum um fullþroska menn. Hér liggur æskan
á milli, en þá gerast ærnar byltingar i likama og sál. Skal
hér nú bent á bækur tvær um æskulýðssálarfræði, þær er
telja má áhrifamönnum U. M. F. hollt og enda nauðsynlegt að
kynnast til hlítar. Höfundar beggja eru merkir æskuleiðtog-
ar, hvor með sinni þjóð.
Ynglingaáldern och dess psykologiska utveckling eftir Axel
Hearberger, prest og skátaforingja í Oxelösund í Svíjjjóð, er
lítil bók, aðeins 78 bls. i litlu 8 hl. hroti, og kostar 1,50 s. kr.
Á þessum fáu hlöSum er furðulega miklu efni þjappað sam-
an, og svo er skýrt og skipulega fram sett, að unun er að lesa.
Bókin segir höf. í formála, að ætluS sé forystumönnum æsku-
lýðshreyfinga. Hún er í 9 köflum, og eru fyrirsagnir þeirra
þessar: I. Likamleg þroskun. II. Iíynlífið. III. Vitlífið. IV.
Tilfinningalifið. V. Viljalífið. VI. Siðlegt líf. VII. Trúarlif.
VIII. Félagslega lífið. IX. Starfslífið. Gefa kaflaheitin hug-
mynd um efni kversins.
Eg mæli fastlega með þvi, að bókasöfn U. M. F. og þeir ein-
staklingar, sem skilja vilja æskumenn, nái sjer i bók þessa.
Hún er skýrasta og viðráðanlegasta yfirlit, sem eg þekki, um
sálarlíf æskumanna. Verðið er engum manni ofvaxið og mál-
ið létt og falleg sænska.
De unges Sjæleliv i Overgangsaarene, eftir Alfred Christian-
sen kennaraskólastjóra í Khöfn, er mun stærri bók en hin.
241 bls. í Skinfaxabroti. Kostar 8 d. kr. i kápu, en 14 í skinn-
bandi. Hér er miklu ýtarlegri æskulýðssálarfræði en í bók
Hearbergers, en langdregnari og naumast jafnskýr. Vafalaust
gæti bók þessi verið leiðtogum U. M. F. mjög mikils verð
leiðbeining. „Aðalhlutverk bókarinnar er það, að vera starfs-
mönnum æskulýðshreyfinga hvöt og leiðbeining til betri
starfa.-----Ilún er skrifuð vegna æskulýðsins, til að hjálpa
honum til þess, sem hann þarfnast mest og á heimtingu á:
skilnings", segir höf. Bók þessi hefir náð miklum vinsæld-
um í Danmörku og komið í tveimur útgáfum (1. útg. 1926).
Jafnframt bókum þessum vil eg nefna Pojken och ledaren.
Handbok i kristligt pojkarbete, eftir Hugo Cedergren, fram-
kvæmdastjóra landssambands K. F. U. M. i Svíþjóð, og Arvid