Skinfaxi - 01.01.1930, Blaðsíða 10
10
SKINFAXI
Fyrirlestraferð.
Aðalsteinn Sigmundsson ferðaðist um Vestur-Skafta-
fellssýsiu í desembermánuði s.l., fyrir U. M. F. I. Flutti
liann þar 15 fyrirlestra á 7 stöðum. I héraðssambandi
Vestur-Skaftfellinga eru aðeins fjögur félög með nál.
140 fclagsmenn. Auk þeirra eru i sýslunni þrjú félög
með nál. 50 félagsmenn, 'utan sambands. í Vík í Mýr-
dal er ekkert U. M. F., og gæti þó vel verið. Ætlu að
réttu lagi að vera átta félög í sýslusambandinu, og væri
þá aðslaða til starfa miklu betri en nú er. Að því ber
að vinna.
Héraðsþing.
Kjalarnessambandið og Skarphéðinn iiafa þegar hald-
ið ársþing sín. Þing Kjalnesinga var háð í Reykjavík 15.
desember. Var það fámennt. Þrastaskógur var helzta
umræðuefni þingsins. Flutti Arngrímur Kristjánsson
kennari tillögur um meðferð iians. Mun Skinfaxi geta
þeirra síðar. Samþykkt var, að verja fé nokkru úr hér-
aðssjóði til umferðar-leiðbeinara í íþróttum og viki-
vökum.
Þing Skarphéðins var háð að Þjórsártúni 4. og 5. ]).
m. Voru starfsmál héraðssambandsins rædd þar af
krai’ti og áliuga og samþykktir gerðar um jþau. Þá var
‘ambykkt einum rómi áskorun til rikisstjórnar og AI-
þingisbátíðarnefndar, að leyfa hvorki veitingar né sölu
áfengra drykkja á Þingvöllum á sumri komanda.
Athygliverð grein.
Skinfaxi vill vekja athygli U. M. F. á erindi forseta
í. S. í., því sem birt er í nýkomnu íþróttablaði (11. og
12. tbl. 15)29), með fyrirsögn íþróttamálin. Er þar eins-
konar stefnuskrá og slarfshvöt íþróttamanna um næslu
framtíð. Flestir munu vera á einu máli um það, að rctt-
ur maður sé á réttum slað, þar sem Benedikt G. Waage
er í forsæti f. S. f. Hann er einn áhugamesti, íþrótta-