Skinfaxi - 01.01.1930, Blaðsíða 19
SKINFAXI
19
3. Viljið þér af fremsta megni stuðla að því, að við fá-
um að byggja búð í fornmn stíl á Þingvöllum?
Skýr svör við þessum spurningum vorum óskast sem
fyrst og eigi síðar en 1. april n.k., þvi að við þurfum að
skrifa öllum félögunum áður en jþau hætta störfum á
komandi vori. En vinnan ætlumst við til að liefjist sein-
ast í maí.
Við erum reiðubúnir til að mæta á fundi hjá yður
hvenær sem er, og óskum þess helzt, lil að skýra nefnd-
inni sem nánast frá hug okkar öllum í þessu máli og
áliti annarra ungmennafélaga á framkomu nefndarinn-
ar gagnvart vinnu þeirra.“
Nokkru eftir að nefndin fékk Jietta bréf okkar, vor-
um við kallaðir á fund framkvæmdastjóra Alþingishá-
tiðarinnar. Kvað liann nefndina viðurkenna réttmæti
gremju okkar og biðja afsökunar á, hve illa tókst til.
Væri nefndin fús að þiggja vinnu okkar sem fyr og
skyldi nú betur fyrir öllu séð. Væru nú næg verkefni
fyrir hendi, svo sem: að leggja veg inn í Bolabás, að
slétta einhverjar flalir og að liyggja upp Þingvallabæ-
inn. Að vísu væru þetta alt stærri verk en svo, að við
gætum einir afkastað þeim og yrðum við því að vinna
þau með öðrum verkamönnum ríkissjóðs.
Þessu vinnulagi neituðum við hiklaust, því við litum
svo á, að þvi aðeins gætum við farið fram á það við
félögin, að þau legðu fram vinnukraft, að unnið væri
að einhverju því, sem staðið gæti sem sýnilegur vottur
um fórnfýsi félaganna og þau gætu lielgað sér, til minn-
ingar um hátíðina miklu, jafnframt þvi, sem þau sýndu
sérstaklega hug sinn til jþessa helgistaðar þjóðarinnar.
Þess vegna vildum við fá að byggja búð i fornum stíl
eftir fyrirsögn þeirra, er nefndin teldi færa til slikra
leiðbeininga. En bvaða svar fáum við þá ? Að við getum
ekki fengið að byggja búð vegna þess, að búið sé að
leyfa Iðnaðarmannafélaginu í Reykjavík búðarbygg-