Skinfaxi - 01.01.1930, Blaðsíða 11
SKINFAXI
11
fróðasti og þrautæfðasti iþróttamaðúr vor, og kennir
það eitt, sem hann lifir eftir sjálfur. Ættu ungir menn
að laka orð Iians um íþróttamál til náinnar athugunar.
Vikivakabókin.
Hún er nú komin út og mun vera fyrsta íslenzk
bók, sem ber ártalið 11)30. „Guð láti á gott vita“.
Bókin er 74 bls. í 8 bl. broti, með 15 góðum mynd-
um. Hefir Helgi Valtýsson samið hana, en U. M. F. í.
Mynd úr Vikivakabók: Hringur.
gefið út. Er fyrst almenn lýsing á vikivökum, lýst tök-
um, sporum, hring og hringbroti, og allt skýrt með
myndum. Þá koma 18 vikivakar, lýsingar þeirra, ljóð
og lög á nótum. Er þetla allt skýrt og skipulegt. Þessu
fylgir formáli og eftirmáli.
Bók þessi er leiðarvísir eða kennslubók i vikivökum,