Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.1930, Síða 13

Skinfaxi - 01.01.1930, Síða 13
SKINFAXI 13 3. Hveri’a álirifa fannst þér gæta í félaginu og hverra mest? 4. Hvaða áhrif telur þú liugsjónir U. M. F., félags- skapinn og einstaka félaga, liafa haft á sjálf- an þig, liugsunarhátt þinn, störf og lífs- stefnu? Svör við spurningum þessum bið ég góða menn að senda mér eða ritstjóra Skinfaxa sem fyrst, og eigi síðar en fyrir næstu sumarmál. Þórhallur Bjamarson, Laufásveg 71, Reykjavík. Landssýningin 1930. Landssýningin stendur fyrir dyrum. Ungmennafélög landsins liafa átt góðan þátt í því, að und- irbúa landssýninguna, meS því aS vinna aS stærri og smærri sýningum um land allt á undanförnum árum. Sumar sýslur eiga enn eftir, aS hafa héraðssýningar til undirbúnings landssýningunni, en ráðgera, að hafa þær um sumarmál, eða í síðasta lagi um miðjan mai í vor. Hreppasýningar hafa viða verið lialdnar i sýslum þessum, ýmist með tilstyrk ung- mennafélaga eða kvenfélaga, eða meS aðstoð beggja í sam- einingu. Nú er þaS ósk okkar og von, að ungmennafélög láti þetta mál sem fyr til sín taka og hrindi héraðssýningunum áfram, þar sem þær eru enn óhaldnar. Æskilegt er, að sam- vinna sé sem best um þctta mál, milli ungmennafélaga og kvenfélaga. Bæði vinna að sama göfuga marki. Samvinna er því nauðsynleg og sjálfsögð. Þess er vert að minnast í þessu sambandi, að þótt búið sé að hafa sýslusýningar, og velja muni úr til landssýningar, þá er ekkert til fyrirstöðu því, aS bæta munum við í vetur, ef talan, sem héraðið liefir ætlað sér að hafa, er ckki full, eða cf nefndin vill skifta um til liins betra, eða ef hún hins vegar telur sig vanta einhvern hlut, sem einkennir héraðið og sýn- ingin sé því of einhliða. Nefndirnar verða að gera sér Ijóst, hvað þær vilja sýna, og gera svo hvað þær geta til að fá þá

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.