Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.01.1930, Page 22

Skinfaxi - 01.01.1930, Page 22
22 SKINFAXI sig. En því miður liafa |þeir verið allt of fáir. Einu sinni þótti þetta upphefð á landi voru, að bera „fordanskað“ heiti, en nú er sá tími fyrir alllöngu liðinn. En nöfn þessi höfum við eftir, sem leifar og minningar frá auð- mýktarinnar og undirgefninnar tímabili. Fáum þeim, sem skyn bera á íslenzkt mál, mun bland- ast bugur um, að réttmætt sé, að færa forn staðarheiti til hins rétta máls. Og það mun verða gert. En erfiðara mun að fást við hin hálfdönsku og aldönsku heiti á mannfólkinu íslenzka. Og er það þó engu óréttmætara og engu síður þess þörf. Ragnar Ásgeirsson. Bækur. (Skinfaxi telur skyldu sína, að benda á bækur þær, inn- lendar og erlendar, sem hann telur eiga erindi til æskumanna. Mun hann því birta stuttorðar bókafregnir framvegis. — Er hér með til þess mælst, að útgefendur sendi Skinfaxa til at- hugunar bækur |iær, er þeir gefa út og ætla má, að hann láti sig skifta). Eitt aðalhlutverk U. M. F. hlýtur að vera það, að vinna að síauknum þroska æskumanna, andlega og líkamlega. Félögin eiga að vera eins konar skóli unglinga á viðkvæmu og hættu- legu skeiði æfi þeirra, gelgjuskeiði eða byltingaaldri. f skóla þeim eru allir félagsmenn hvorttveggja: Kennarar og nem- endur. En mest veltur að sjálfsögðu á forystumönnum og ráðsettum félögum, að vel sé stýrt og gagn megi af hljótast starfinu. Má því ljóst vera, að áhrifamönnum U. M. F. er geysiáríðandi, að þekkja sem gerst æskulýð þann, sem þeir eiga að vinna með og hjálpa til þroska og afkasta. Nægir ekki, að kynnast hverjum einstaklingi persónulega, heldur ber hverjum æskulýðsleiðtoga að heimta af sjálfum sér almenna þekkingu á sálarlífi unglinga. Hún fæst þvi aðeins víðtæk og haldgóð, að hennar sé aflað mcð hvorutveggja: hóklestri og samvinnu og viðkynningu við ungt fólk.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.