Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1958, Síða 8

Skinfaxi - 01.11.1958, Síða 8
104 SKINFAXI ir bindindismenn, gefi þeir út eins konar yfirlýsingu um, að þeir treysti sér ekki til að standa gegn öfgakröfum Bakkusar. Þarna ber sittlivað að taka til rækilegrar athugunar. 1 fyrsta lagi, bvort ekki sé forsvaranlegt, að ungur maður neiti sér um áfengi vegna allra þeirra mörgu, sem ekki reynast færir um að liafa það um hönd án vansa og tjóns á fjármunum, heilsu og hamingju. I öðru lagi, hvort það sé ekki verjandi afstaða að neyta ekki víns vegna bróður, frænda eða vinar, sem kynni að vera eða verða veikur fyrir áfengi — eða sakir hugsjónar, sem er manni kær, svo að ekki sé glevnit fram- tíðarheill þjóðarinnar. Og svo liver getur verið viss um sjálfan sig, þar sem Bakkus er annars vegar? Menn hafa sagt, að þeir, sem eyðileggja hamingju sína og heilsu á drykkjuskap, væru slikar van- metakindur að eðli og upplagi, að ef þeir hefðu ekki farið i liundana á vegum Bakk- usar, liefðu þeir týnt gæfu sinni á ein- hvern annan hátt. Ég, sem þetta skrifa, hef rannsakað allnákvæmlega réttmæti þessara raka, og þau liafa reynzt með öllu haldlaus. Ég hef þekkt fjölmarga menn, sem hafa verið hinar ágætustu horg- arar áður en þeir tóku að neyta vins, en urðu á stuttum tíma ofurseldir Bakkusi, þá er þeir höfðu rétt honum litla fing- urinn, og ég hef þekkt menn, sem ungir hafa lent í drykkjuskap, en orðið nýtir og dugandi þjóðfélagsþegnar, strax og þeir Iiafa sloppið undan seiðmagni áfengisins. Ég hvgg, að alls elcki verði sagt fyrir fram, liver sé þar í hættu og hver ekld. Þess vegna mundi að minsta kosti vera fyllilega mannsæmandi sú afstaða, að neyta alls ekki víns. Og slílc afstaða sem allra flestra einstaklinga innan ungmenna- félagssamtakanna mundi vekja á þeim smátt og smátt almenna virðingu og veita þeim áhrifavald langt út fyrir vettvang starfsemi þeirra. Hún mundi og á fáum árum reynast traustur hornsteinn nýs og heilhrigðs almenningsálits og valda gjör- hreytingu á sviði áfengismálanna með þjóðinni allri. Mokkur merkisár í sögu áfengis- málanna á Islandi 1. 1733: Jón Árnason hiskup gengst fyr- ir hænaskrá til konungs um áfengis- bann. 2. 1760: Magnús Gíslason amtmaður fer fram á takmörkun á innflutningi á- fengis. 3. 1844: Stofnað hindindisfélag Islend- inga í Kaupmannahöfn. !. 1884: Stofnuð góðtemplarastúka á Akureyri. 5. 1888: Gefin út lög um hann við smá- sölu áfengis við búðarborð og um lieimild fyrir sveita- og héraðabönn- um gegn vínveitingum. 6. 1900: Gengu i gildi lög um héraða- bönn gegn allri sölu áfengis, og enn- fremur landsbann gegn tilbúningi allra áfengra drykkja. 7. 1908: Samþykkt aðflutningsbann á áfengi við þjóðaratkvæðagreiðslu. 8. 1915: Algert bann gegn sölu áfengis. 9. 1923: Veitt leyfi til innflutnings á léttum vínum. 10. 1935: Algert afnám áfengishanns. 11. 1954: Stofnað áfengisvarnaráð. 12. 1955: Stofnað Landssamhand gegn áfengisbölinu.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.