Skinfaxi - 01.07.1969, Blaðsíða 6
Tekst okkur að glæða neistann . . .
á því, hve allt starf ungmennafélaganna
er mikilvægt og mikils virði, ef það
væri allt til verðs reiknað.
Úr röðum ungmennafélaga hafa kom
ið margir beztu forystumenn þjóðarinn
ar. Þau voru og eru enn á margan hátt
alþýðuskóli uppvaxandi kynslóða og
þá um leið hins fullþroska og starfandi
manns.
Ég er mjög í vafa um, hvort það
dekur við æskuna, sem gætir í ræðum
og ritum margra manna, sé henni hollt.
Mér virðist það ganga út í hreinar öfg-
ar, þegar því er haldið fram, að öll mis-
tök æskunnar séu hinum eldri að
kenna. Uppeldið hafi mistekizt, hinir
fullorðnu brugðist skyldu sinni í hand-
leiðslu æskunnar. Mistök og víxlspor
hennar séu því eingöngu hinum eldri
að kenna. Það er vissulega rétt, að
mörg víxlspor æskunnar má rekja til
mistaka hinna eldri í uppeldi hennar
og forsjá. Hinir eldri eru ekki nógu
góðar fyrirmyndir hinum yngri.
En í hverjum einstakhngi vakir sá
neisti, sem veldur mestu um fram-
síðarheill hvers og eins. Þennan neista
á að glæða og styrkja. Það er okkar
hlutverk. Ég tel það mjög misráðið að
svipta æskuna þeirri ábyrgðartilfinn-
ingu, sem fylgir því að forsvara gerðir
sínar og ákvarðanir í stað þess að
skjóta sér bak við aðra í því tilfelli.
Meira er um það vert að glæða og
auka þessa ábyrgðartilfinningu meðal
barna og unglinga og hjálpa þeim til
þess að geta staðið sem fyrst á eigin
fótum og gera sér sem fyrst grein fyrir
þeirri ábyrgð, sem í raun hvílir á þeim
í síauknum mæli eftir því sem þroski
vex. Þeirra er framtíðin. Undir hana
eru þau að búa sig, og það þýðir að þau
eru að búa sig undir að taka fullan þátt
í framvindu mála og ábyrgð á ákvörð-
unum og framkvæmdum. Sviptum því
ekki æskuna þeim mikilsverða þætti
uppeldis hvers einstaklings, sem er í
því fólginn að gera sér grein fyrir mikil
vægi sjálfs sín og þeirri ábyrgð, er á
honum hvílir.
Aðalverkefni ungmennafélaganna
varðandi þessi mál er að sjá um, að
holl verkefni séu fyrir hendi á hverri
stundu og á hverjum stað fyrir þetta
. . . eða er æskan ábyrgðarlaus ?
6
SKINFAXI