Skinfaxi - 01.07.1969, Blaðsíða 12
Félagar úr HSK við Iandgræðslustörf á
Biskupstungnaafrétti
Haustið 1966 birtist í Skinfaxa, tíma-
riti Ungmennafélags Islands, viðtal við
Ingva Þorsteinsson, magister, um gróð-
urvernd og landgræðslu, þar sem hann
lýsir í stuttu máli þróun þessara mála
frá því er land byggðist. Ég vil leyfa
mér að taka hér upp niðurlagsorð þess-
arar greinar. Ingvi segir þar:
„Ég er ekki í neinum vafa um, að
allir landsmenn vilja að eyðingin verði
stöðvuð, og að þróuninni verði snúið
við, þannig að Island taki að stækka
sem nytjaland, en haldi ekki áfram að
minnka. En hversu margir eru reiðu-
búnir að leggja fram raunhæfan skerf
í þessu starfi? Það sem Landgræðsl-
unni kæmi bezt, væri almennur stuðn-
ingur fólksins í sveitum landsins, og ég
þykist vita, að einmitt í dreifbýlinu beri
fólk sérstaklega góðan hug til þessa
máls, eins og reynsla mín af kynnum
við bændur landsins hefur sýnt. Á sviði
landgræðslu hefur verið unnið mikið
starf á undanförnum árum. En æski-
legast væri að unga fólkið gerði gróð-
urvemdina og landgræðsluna að sínu
áhugamáli. Það er æska landsins, sem
hér á mest í húsi, og henni er bezt
trúandi til að legja fram krafta sína,
bæði með siðferðilegum stuðningi og
raunhæfu starfi, til að leiða þessi mál
til sigurs. Uppi á öræfum landsins bíða
eyðiflákarnir eftir vinnandi höndum.“
Skömmu eftir að grein þessi birtist 1
Skinfaxa höfðum við forráðamenn Hér
aðssambandsins Skarphéðins samband
við Ingva og buðum fram aðstoð okkar
félagsskapar. Ekki var það vegna þess,
að okkur skorti svo mjög verkefni,
heldur töldum við, að hér væri um að
ræða þroskandi viðfangsefni, þar sem
æskufólk gæti í verki sýnt hug sinn til
fósturjarðarinnar.
Er ekki að orðlengja það, að skipu-
lögð var og farin landgræðsluferð inn
á Biskupstungnaafrétt í júlíbyrjun
1967. Þótti hún vel takast og vakti all-
mikla athygli, enda var tilgangurinn að
öðrum þræði sá að vekja rækilega at-
hygli landsmanna allra á málefninu.
Á sl. sumri voru svo farnar 9 slíkar
landgræðsluferðir víðsvegar um land-
ið á vegum ungmennafélaganna og i
nánu samstarfi við Landgræðslu ríkis-
ins og voru í flestum tilfellum fulltrúar
landgræðsluinar með í ferðum.
Árangur af starfinu á sl. sumri virð-
ist góður, og örvar það mjög til frekari
starfa. Þeir Ingvi Þorsteinsson og Ólaf-
ur Ásgeirsson samstarfsmaður hans
hafa skipulagt ferðirnar og stjórnað
þeim af hálfu Landgræðslunnar. Hefur
samstarf ungmennafélaganna við þa
verið mjög ánægjulegt.
Landgræðsla ríkisins lagði til áburð
og grasfræ og stóð yfirleitt undir ferða-
kostnaði, enda hefur félagsskapur eins
og ungmennafélögin ekki fjármagn af-
lögu og á yfirleitt fullt í fangi með að
afla fjár til hinnar fjölþættu starfsemi
sinnar á sviði íþrótta- og félagsmála.
Það hefur síður en svo reynzt nein-
um vandkvæðum bundið að fá ungt
12 SKINFAXI