Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1969, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.07.1969, Blaðsíða 23
fréttamat drjúga máls- og myndamáltíð og smjöttuðu svo ákaft á kræsingunum frammi fyrir alþjóð, að það er víst engin furða, þótt margur hafi freistast til að fá sér bita. Hvað var það svo, sem gerðist ? í fyrsta lagi var hegðun unga fólksins eng- an veginn eins slæm og fjölmiðlunartækin vilja vera láta. Hins vegar má enginn loka augunum fyrir því, að drykkjuskapur og ó- læti unglinga á Þingvöllum, svo og umgengni öll, var til stórrar vanvirðu eins og raunar oft áður. Landspjöll skrifast hins vegar að verulegu leyti á reikning veðurfars og árs- tíma. Hverjum á þá að færa til skuldar drykkju- skapinn og óspektirnar? Um það mætti skrifa langt mál, því ástæð- urnar eru margþættar. Það mætti t. d. byrja svarið með annarri spurningu: Hverra kosta eiga unglingar völ varðandi skemmtanir um hvítasunnuhelgina, sem haldin er tvíheilög? Þessa löngu helgi ber upp á þann tíma, þeg- ar þúsundir framhaldsskólanema eru ný- sloppnir frá vorprófunum. Vegna þröngsýnna og staðnaðra kirkjusiða má ekki halda skemmtisamkomur laugardagskvöld fyrir slík- ar hátíðir. Ungt fólk kemur alls staðar að lokuðum dyrum um slíkar helgar, þegar það leitar sér upplyftingar eftir skólaerfiðið, og þá verður hendi næst að ana eitthvað út í buskann, úr borgum og bæjum út í sveitir, og háttalagið verður oft líkt og hjá kálfum, sem hleypt er út í fyrsta sinn á vorin. Nokkra spennu er hægt að verða sér úti um, vegna þess að enginn aðili ákveður samkomustað- inn fyrirfram og hann er breytilegur frá ári til árs. Þegar svo meðfæddar ratsjár og inni- byggð fiskileitartæki unga fólksins hafa smal- að því öilu á einhvern klakablautan útilegu- stað í hrákaldri vornepjunni, er mesta ánægj- an búin. Þá er reynt að tjalda, ef tjaldið hef- ur þá ekki gleymzt, og þá eru pytlurnar ó- spart opnaðar, því þær gleymast síður. Síðan er ranglað um eða ekið, — og drukkið, Sum- ir lenda í slagsmálum, aðallega út úr leiðind- um eða þá að einn skúrkur kemur djöflagang- inum af stað. Hér er ekki verið að afsaka Unglingar að snyrta gróðurlendi á Þingvöll- um eftir hvítasunnu. (Ljósm. Ástþór) drykkjulæti og slark eða að skjóta unga fólkinu undan þeirri ábyrgð, sem því ber. En það þarf engan að furða á því að svona tak- ist til, þegar ungu fólki í byrjun langþráðs sumars er ekki boðið annað en borgarstræti og úthagar sem vettvangur fyrir eðlilega skemmtanaþörf að loknu vetrarstarfi í skól- um. Svo óheilbrigður sem drykkjuskapur unglinga er, þá er skemmtanalöngun þeirra heilbrigð og eðlileg tilhneiging. Hún þarf að- eins að fá útrás við menningarlegar og mann- sæmandi aðstæður. Nú eru líka ýmsir ágætir menn farnir að ræða um það, að líklega þurfi að fara að skipuleggja skemmtanahald um hvítasunn- una likt og um verzlunarmannahelgina. Jé, ætli það sé ekki kominn tími til. Hitt er svo jafnvíst, að þetta verður aldrei gert svo að viðhlítandi verði nema hin frjálsu félagsam- tök unga fólksins sjálfs gangi‘ hér fram fyrir skjöldu, og þá mega engar kreddur vera hindrun á leið æskufólks til heilbrigðs skemmtanalífs. Eftir hvítasunnuhelgina gekkst ÆSÍ fyrir hópferð til Þingvalla og voru forráðamenn SKINFAXI 23

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.