Skinfaxi - 01.07.1969, Síða 20
Samtíð og framtíð
HROSSAMARKAÐUR
Skagfirðingar smöluðu saman stóði sínu
snemma vors, drógu tryppin í dilka og seldu
úrvalið til Svíþjóðar. Nokkurt fjaðrafok varð
í Svíþjóð út af þessum hrossainnflutningi
þangað. Verðið á skagfirzku tryppunum var
svo lágt, að ýmsir hrossainnflytjendur i Sví-
þjóð sáu verzlunarhagsmunum sínum hættu
búna og reyndu að breiða út óhróður um ís-
lenzku hestana,
En það er fleira selt á fæti úr landi en
hross. Við höfum t. d. flutt út nokkurt magn
af þokkadísum, sem vel hafa staðizt gæða-
mat erlendis, og gerð hefur verið tilraun
með útflutning á knattspyrnumönnum, að
vísu með rýrum árangri síðan Albert Guð-
mundsson var upp á sitt bezta. Fyrir nokkr-
um árum skýrðu íslenzku blöðin frá því, að
Sirrý Geirs (sem áður hét Sigríður Geirsdótt-
ir) hefði fengið ,,tilboð“ frá Hollywood, og
einnig að Hollendingar hefðu boðið í Þórólf
Beck, sem um þær mundir var í atvinnu-
mennsku í Skotlandi. Birtust þá m. a. þessar
tvær fyrirsagnir í blöðum hér: — „Hreppir
Hollywood Sirrý Geirs?“ og „Hollenskt lið
vill kaupa Þórólf Beck“.
Þá varð einu þjóðskáldi okkar þessi staka
á munni:
Markaðstryppin götu gulls og eirs
ganga járnuð, laus við allan hrekk.
Hollywood mun hreppa Sirrý Geirs.
Hollenskt lið vill kaupa Þórólf Beck.
Markaðstryppin . . .
20
SKINFAXI