Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.07.1969, Side 25

Skinfaxi - 01.07.1969, Side 25
Lif og daudi í myndlist Skinfaxi var yngdur upp á sextugs- afmælinu og honum gefið nýtt andlit. Nýju kápuna gerði ungur teiknari og listmálari, Ragnar Lár, sem lesendur þekkja væntanlega af verkum hans. Ungmennafélagar munu eflaust eftir hinu gullfallega merki Landsmótsins á Laugarvatni, en það merki er verk Ragnars. Hann er sonur hins góðkunna ungmennafélaga og íþróttaleiðtoga Lárusar Halldórssonar, fyrrum skóla- stjóra á Brúarlandi í Mosfellssveit. Ragnar nam í tvo vetur í Handíða- og myndlistarskólanum og síðar undir handleiðslu Gunnars Gunnarssonar. Hann hefur haldið nokkrar sýningar á teikningum og málverkum á undan- förnum árum, en næsta sýning hans verður í haust. Ragnar Lár hefur unnið að margskonar störfum um dagana, ,,allt frá sjómennsku niður í blaða- mennsku“, eins og hann orðar það sjálf- Framtíðin hlýtur að vera komin undir yngra fólkinu en ekki því eldra, sem með athöfnum sínum eða getuleysi hrekur hundr- uð íslendinga til annarra landa og fjarlægra heimshorna. Þetta land á ærinn auð. Vonandi lærist íslendingum að meta hann og nota hann, ekki sízt þann hluta hans, sem felst í hæfileikum einstaklinganna og vinnuafli þeirra, Þá mætti takast að stöðva flóttann úr landinu. E. Þ. Ragnar Lár svarar spurningum Skinfaxa í skrifstofu Spegilsins. ur. Hann hefur myndskreytt fjölda bóka og gert margar bókakápur. Hann skrifaði og teiknaði myndasöguna um Mola litla, sem krakkarnir hafa mikl- ar mætur á og búið er að prenta í tveimur upplögum. Þá munu börn á öllum aldri hafa skemmt sér við að horfa á Valla víking í sjónvarpinu, en Ragnar er höfundur og teiknari þeirra vinsælu þátta. Myndirnar um Valla víking hafa einnig verið sýndar í finnska og norska sjónvarpinu. Ragnar rekur nú eigin teiknistofu og vinnur að útgáfu Spegilsins ásamt Ása í Bæ og fleiri mönnum. Ragnar féllst á að svara nokkrum spurningum Skinfaxa: — Manni virðist myndlistarmenn SKINFAXI 25

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.