Skinfaxi - 01.02.1970, Side 5
FÉLAGSMÁLASKÓLI UMFÍ
tekinn til starfa
Stjórn UMFÍ tók þegar í stað eftir
sambandsþingið í fyrra að fjalla um leið-
ir til að auka félagsmálafræðslu á vegum
samtakanna. Ljóst er, að þörfin er orðin
brýn á að gefa ungu fólki tækifæri til að
kynna sér félagsmálastörf og að æfa sig
í ræðumennsku og félagslegri stjórnun.
Þjóðfélagsaðstæðurnar hafa um langt
árabil undanfarið leitt til þess að ungt
fólk hefur haft lítinn tíma til að sinna
almennum fundastörfum og komast í
lifandi tengsl við stjórnunar- og fram-
kvæmdastörf í félögum.
Fyrir nokkrum áratugum voru ung-
mennafélögin virkur og áhrifamikill fé-
lagsmálaskóli, þar sem fjöldi æskufólks
komst í kynni við hugsjónabaráttu og
lærði að tjá skoðanir sínar í orði og á
borði. í umróti og örri tækniþróun síð-
ustu áratuga hefur fólk gefið sér lítinn
tíma til virkrar þátttöku og starfs í fé-
lagssamtökum. í kapphlaupinu um efna-
leg gæði, sem krafðist langs vinnudags
og lítilla frístunda minnkaði almenn þátt-
taka í félagsstörfum og störfin hlóðust
gjarnan á herðar þeirra, sem voru eldri
°g þrautseigari. Ekki bætir það úr skák,
að skólarnir hafa til þessa lítið sem ekk-
ert sinnt félagsmálakennslu og er það
vissulega brotalöm í íslenzka skólakerf-
inu.
Þessi þróun hefur leitt til þess, að í
öllum stærstu félagshreyfingum landsins
er orðinn tilfinnanlegur skortur á ungu
fólki með félagslega þekkingu, æfingu og
reynslu, sem er nauðsynleg til farsællar
forystu í félagasamtökum. Á þetta ékki
hvað sízt við um æskulýðs- og íþrótta-
félög, og ungmennafélögin hafa ekki far-
ið varhluta af þessari þróun.
Nú er líka svo 'komið, að unga fólkið
finnur sjálft að hér er þörf á að bæta
fyrir vanrækslu liðinna ára. Það hefur
forysta UMFÍ orðið vör við undanfarið
í undirbúningi sínum fyrir aukna félags-
FÉI.AGSMAI.ASKUl.I
UMFl
skinfaxi
5