Skinfaxi - 01.02.1970, Blaðsíða 15
3. Vinnu sjálfboðaliða að friðun
ákveðinna staða og raunhæfa fram-
kvæmd friðunar þeirra.
Stjórnarkosning
Auk starfsáætlunar voru ræddar nokkr-
ar tillögur til ályktunar á fundinum.
Þessar tillögur eru mjög mikilvægar og
vannst ekki tími til að afgreiða þær, en
ákveðið var að boða til annars fundar í
fulltrúaráðinu í aprílmánuði. Verða álykt-
anirnar þá afgreidar, og verða þær birtar
síðar hér í blaðinu.
Stjórn samtakanna var kosin á aðal-
fundinum og er hún þannig skipuð: for-
maður: Hákon Guðmundsson, yfirborgar-
dómari; varaformaður: Karl Eiríksson,
forstjóri; ritari: Ingvi Þorsteinsson, land-
græðslufulltrúi; gjaldkeri: Jóhannes Sig-
mundsson, bóndi; meðstjórnendur: Jónas
Jónsson, ráðunautur, Sturla Friðriksson,
erfðafræðingur, Eyþór Einarsson, grasa-
fræðingur; til vara: Snorri Sigurðsson,
framkvæmdastjóri, Páll Bergþórsson, veð-
urfræðingur, Arnþór Garðarsson, dýra-
fræðingur.
Landverndarmenn
leKfíja áherzlu á að’
þjóðgörðum verði
fjölgað, enda hafa slík
svæði þegar sannað
ágæti sitt. Myndin er
ár þjóðgarðinum í
Skaftafelli í Öræfum.
SKINFAXI
15