Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1970, Blaðsíða 27

Skinfaxi - 01.02.1970, Blaðsíða 27
„FRAM TIL ORUSTU' heitir bók, sem út kom fyrir jólin og vakið hefur mikla ánægju allra íþrótta- unnenda. Bókina skrifar hinn ágæti og gamalkunni íþróttafréttamaður, Frímann Helgason. I bókinni er rakinn íþróttafer- ill fjögurra frægra afreksmanna í íþrótt- um, Jóns Kaldals, Arnar Clausen, Rík- harðs Jónssonar og Geirs Hallsteinssonar. Þetta eru líflegar og skemmtilegar frásagnir og geyma miklar heimildir um íþróttalíf og íslenzka íþróttasögu. Þetta er bók fyrir fólk á öllum aldri, og ekki sízt er unglingum hollt að lesa slíkar bækur sem þessa og kvnnast því, hvernig ungir menn ná árangri á alþjóðamæli- kvarða með góðri ástundun og viljakrafti. Frímann Helgason er Nestor íslenzkra Frímann Helgason íþróttablaðamanna og hefur skrifað um íþróttir að staðaldri í um 30 ár. Engum íslendingi, sem um íþróttir rita, hefur tekizt að gæða frásagnir sínar og lýsing- ar slíku lífi sem Frímanni Helgasyni. Veldur því ekki sízt víðtæk og nærfærin þekking hans á íþróttum og íþróttamönn- um og löng reynsla hans sem virks íþróttamanns. Vonandi koma fleiri bæk- ur um íþróttir og íþróttamenn frá Frí- manni, því vitað er að hann á í fórum sínum mikið og merkilegt efni úr íþrótta- sögu okkar. Verðlaunagripir og félagsmerki Framleiði alls konar verðlaunagripi og fé- lagsmerki. Hefi ávallt fyrirliggjandi ýmsar stærðir verðlaunabikara og stytfur fyrir flestar greinar íþrótta. LEITIÐ UPPLÝSINGA. S MAGNUS E. BALDVINSS□ N LAUGAVEGI 12 - REYKJAVÍK - GÍMI 22BG4 V SKINFAXI 27

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.