Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1970, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.02.1970, Blaðsíða 6
málafræðslu. Sú uppörvun hefur orðið til þess að flýta fvrir aðgerðum. Er skemmst frá því að segja, að stjóm UMFÍ ákvað s.l. haust að hefja þegar á þessum vetri starfsemi Félagsmálaskóla UMFÍ í formi námskeiða þar sem tiltækilegt þótti og óskir um slíkt komu fram. Undirbúningstími var mjög stuttur þegar tekið er tillit til þess að kennslu- Sigurfinnur Sigurðsson. gögn eru lítil fyrir hendi til slíkrar fræðslu. En þarna var rösklega að unnið. Reglugerð var sett fyrir félagsmála- fræðsluna, kennslugögn fyrir námsgrein- arnar samin og fjölrituð og skólanum hleypt af stokkunum með stórhug og bjartsýni og í trausti á áhuga og góðar undirtektir ungmennafélaga og annarra félagshyggjumanna. Hafsteinn Þorvalds- son, formaður UMFÍ, vann mest að und- irbúningnum og samdi nokkra kennslu- þætti varðandi uppbyggingu og starf ungmennafélaga og UMFI, um félags- heimilin o. fl. Hann hefur einnig annazt kennslu til þessa ásamt Sigurfinni Sig- urðssyni, sem kennt hefur ræðumennsku og fundarstjórn á námskeiðunum með ágætum árangri. Sigurfinnur hefur bæði mikla þekkingu á þessum efnum og langa reynslu í slíkri kennslu. Fvrsta námskeið Félagsmálaskólans var haldið í íþróttaskólanum í Haukadal 21.—22. febrúar 1970. Hér var um helg- arnámskeið að ræða og tókst það mjög vel. Er frá námskeiðinu greint sérstak- lega hér á eftir. Þá hófst í marzbyrjun námskeið fyrir ungmennafélögin á Suður- nesjum, og fer kennsla fram eitt kvöld í viku hverri í Félagsheimilinu Stapa í Njarðvík. Þátttaka er mjög góð — 24 ungmennafélagar frá öllum fjómm ung- mennafélögunum á Suðumesjum taka þátt í námskeiðinu. Stjórn UMFÍ starfar sem skólanefnd Félagsmálaskólans, a. m. k. fyrst í stað. Ætlunin er að halda áfram með slík nám- skeið í ýmsu formi, eftir því sem bezt hentar á hverjum stað, og þannig verður skólinn þróaður í samræmi við kröfur tímans og þarfir hreyfingarinnar og þjóð- félagsins. Allt er þetta að sjálfsögðu fjár- málunum háð, en vonandi tekst að halda þessari starfsemi áfram og efla hana, þannig að hún nái til ungmennafélaga í öllum héruðum landsins. Stjórn UMFÍ mun kynna sambands- aðilum um árangur og reynslu af þess- urri fyrstu námskeiðum og leita tillagna þeirra um fram'hald skólans. Þess er líka vænzt að sambandsaðilar láti sem fyrst í Ijós álit sitt og beri fram fyrirspurnir varðandi þennan nýja þátt í félagsstarf- inu. 6 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.