Skinfaxi - 01.02.1970, Blaðsíða 9
VERKEFNIN
FRAMUNDAN
Það sem af er ári 1970 hafa ýmis
straumhvörf orðið í liöfuðstöðvum sam-
takanna í Reykjavík. UMFÍ liefur flutt
skrifstofu sína úr Lindarbæ, þar sem hún
hefur verið um árabil, að Klapparstíg 16.
Þar fær UMFÍ nú mjög rúmgott húsrými
fyrir starfsemi sína.
Félagsfulltrúi hefur verið ráðin í fullt
starf, hinn ágæti íþróttamaður og félagi
Sigurður Geirdal. Þá hefur skrifstofu-
stúlka einnig verið ráðin, Ester Óskars-
dóttir frá Selfossi, og er skrifstofa UMFÍ
nú opin alla virka daga á venjulegum
skrifstofutíma.
Með ráðningu þessara ágætu starfs-
krafta er langþráðu takmarki náð um
starfsmannahald. Mörg verkefni bíða
þessa fólks, og verður það sambands-
stjórnar að ákveða í hvaða röð og með
hverjum hraða að þeim verður unnið.
Sambandsstjórn væntir þess, að með
tilkomu þessara starfskrafta verði hægt
;uð stórauka alla fyrirgreiðslu við sam-
bandsfélögin, auk þess sem hægt verði
að koma ýmsum aðkallandi verkefnum
hjá heildarsamtökunum á traustari
grundvöll en verið hefur um ára bil.
Ég mun nú geta helztu stórverkefna
sem sambandsstjórn vinnur að, og auk
þess verður einstökum þáttum þeirrar
starfsemi gerð ítarlegri skil á öðrum
stað í blaðinu.
Félagsmálaskóli UMFI er nú orðinn
að veruleika, og hefur sambandsstjóm
gengið frá reglugerð þar að lútandi, er
síðar verður lögð fyrir næsta sambands-
þing UMFÍ til samþykktar.
Utgáfustarfsemi hefur verið og verður
stóraukin á vegum samtakanna. Kaup-
endafjöldi að Skinfaxa hefur nær tvö-
faldast á einu ári, og sambandsstjóm hef-
ur gefið út fræðslurit um hreyfinguna, er
nefnist „Störf og Stefna“. Unnið er að
endur-fjölritun fræðslurita um starfs-
íþróttir, og samningu nýrra í nýjum
greinum.
Vasasöngbók UMFÍ mun koma út fyrir
vorið, unnið er að efnisvali og niðurröð-
un, og leitað hefur verið tilboða um
prentun.
Leikritasafn UMFI verður nú sett á
laggirnar að nýju, og leitast við að stór-
auka það að efni og gæðum. í því sam-
bandi mun verða leitað til allra ung-
SKINFAXI
9