Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1970, Side 16

Skinfaxi - 01.02.1970, Side 16
Við skulum skokka um okkur til góðs. Sjúkrakostnaður flestra landa heims hefur margfaldast á síðustu árum og nálgast nú óðum að vera allstaðar talinn í milljörðum króna. Þessi þróun heilbrigðismálanna hefur vakið athygli hugsandi manna og leitt til þess að ýmsar þjóðir rannsaka nú eðli þessarar þróunar, og reyna að finna leiðir til þess að gera hana hægfara og helzt að snúa henni við. Fvrirbyggjandi heilsurækt eru orð, sem Hressingar- og endurnæringaræfingar í mat- sal verksmiðju einnar í Svíþjóð. Slíkar æf- ingar geta stóraukið starfsþrekið og vellíðan manna. komið liafa fram í þeim umræðum, sem um málin hafa spunnist. Gamla máltækið, að of seint sé að byrgja brunninn, þegar barnið sé dottið ofan í virðast sumir taka alvarlega. Flug- félögin hafa afar strangar reglur um eftir- lit og fyrirbyggjandi aðgerðir í sambandi við flugvélar sínar. A ýmsum öðrum svið- um hugsa menn líkt. En, þegar komið er að umræðum um heilsu okkar, eru ráðamenn oftast tregir til að leggja fram fé til að koma í veg fyr- ir sjúkdóma, því erfitt reynist að benda ákveðið á að þetta eða hitt fáist fyrir fjár- framlagið. Á undanförnum áratugum hefur skóla- ganga unglinga yfirleitt lengst og nauð- synlegt hefur reynzt að fjölga námsgrein- um. Þetta hefur svo leitt til þess, þar sem ekki er hægt að hafa fólkið á skólabekkn- um nema ákveðinn fjölda tíma á viku, að skólaforráðendur hafa byrjað að meta námsgreinarnar og fækka tímum nem- anna í þeim efnum, sem að þeirra áliti hafa verið síður nauðsynleg en önnur. Og þótt undarlegt sé, haía íþróttatímarn- ir fallið í þessa ónáð. Sem betur fer virðist þessi þróun nú 16 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.