Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1970, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.06.1970, Blaðsíða 3
SKINFAXI Tímarit Ungmennafélags (slands — LXI árgangur — 3. hefti — 1970 — Ritstjóri Eysteinn Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju, hvert 32 síður. ~SumcirliátC&ir oc^ liéra&ámót Allt frá stofnun fyrstu ungmennafélaganna hér á landi hefur það stöðugt og í vaxandi mæli lent í verkahring ungmennafélaganna að metta félags- og skemmtanaþörf fólksins í hinum dreifðu byggðum landsins Arangur þessa starfs og kunnátta til fram- kvæmda kemur bezt í Ijós í dag í fram- kvaemd glæsilegra héraðs- og sumarhátíða, sem héraðssambönd ungmennafélaganna eða einstök ungmennafélög standa fyrir um allt land. Þessi mót verða stöðugt stærri í snið- um og draga að sér mikinn fjölda samkomu- gesta. Það er engin tilviljun, að þróast hefur inn á verksvið ungmennafélaganna að standa fyrir framkvæmd þessara stórhátíða víðast hvar; forráðamönnum þeirra er bezt trúað til þess að hafa þessa vandasömu framkvæmd á hendi vegna reynslu og félagsþroska. Óhætt mun að fullyrða, að framkvæmd Þessara stórhátíða hafi i flestum tilfellum tekizt mjög vel og verið hreyfingunni og þeim, sem að hafa staðið, til hins mesta sóma. Fátt er nú í þeirri framkvæmd sem brugðist getur til beggja vona, annað en veður. Framkvæmd þessara stórhátíða er mik- ið félagslegt átak, og reynir oft alvarlega á Þolrif fárra forystumanna; þeir mæta jafnan hverjum vanda, sem að höndum ber, með festu og ró. Það er ekki eðli ræktunarmanns- ins að gefast upp þótt erfiðlega gangl á stundum heldur erja sinn akur á ný í von um betri uppskeru og bættan hag. Kóróna þessa samkomuhalds eru svo Landsmót UMFÍ, sem eru orðin einskonar þjóðhátíðir, og stöðugt fleiri héraðssambönd fá nú tækifæri til þess að framkvæma. Góðir ungmennafélagar, reynum eftir föng- um að vanda allt samkomuhald á okkar veg- um. Við höfum hér forustuhlutverk með hönd- um, vandinn er að valda þessu verkefni og láta það ekki vaxa okkur yfir höfuð. Verum þess jafnan minnug, að hollur er heimafeng- in baggi. Heimafengið skemmtiefni er ódýrara og að öllu jöfnu vinsælla Forðumst samkeppni hver við annan, eflum samstarf og samvinnu okkar í milli á þessum vettvangi sem öðrum. H. Þ. SKINFAXI 3

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.