Skinfaxi - 01.06.1970, Blaðsíða 24
um fagran verðlaungrip sem þjálfari USVS,
Gylíi Þ. Gíslason, gaf til að keppa um. Ung-
mennafélagið Ármann vann gripinn í þetta
sinn, hlaut 1471/2 stig alls. Umf. Drangur
hlaut 144V2 stig.
í knattleikjunum var keppt um bikar sem
Gylfi hafði einnig gefið og þann bikar hlaut
hið nýstofnaða ungmennafélag Drangur í
Vík. Drangur sigraði í handbolta og knatt-
spyrnu fullorðinna, en Ármann í knatt-
spyrnu drengja.
Um laugardagskvöldið var efnt til sýning-
ar á sjóskíðaíþróttum á Hæðargarðsvatni og
að lokum dansað í Kirkjuhvoli.
SUMARHÁTÍÐ í SVARTSENGI
Ungmennafélag Grindavíkur hélt sumar-
hátíð sína á hinum gamla samkomustað
Grindvíkinga, Svartsengi, helgina 18. og 19.
júlí. Umf. Grindavíkur hefur undanfarin ár
unnið að endurbótum á þessum sérstæða
útisamkomustað og endurvakið hinar gamal-
kunnu Svartsengisskemmtanir í nýju formi.
Dagskrá mótsins var fjölbreytt: íþróttir,
tónlist, gamanþættir og fallhlífastökk, og
tókst hún í alla staði mjög vel. Formaður
UMFÍ, Hafsteinn Þorvaldsson, flutti ávarp
á mótinu. Dansað var á palli bæði laugar-
dags- og sunnudagskvöld. Sólskin var báða
dagana og veður hið ákjósanlegasta, enda
komu margir með alla fjölskylduna og
bjuggu í tjöldum á mótssvæðinu.
Var það mál mótsgesta, að sumarhátíð
Umf. Grindavíkur hef,i farið hið bezta fram,
og skemmtu allir sér prýðilega. Svartsengis-
hátíðin er einn liður í víðtækri starfsemi
ungmennafélaganna í þá átt, að koma á i
hverju héraði glæsilegri sumarhátíð fyrir
fólk á öllum aldri, þar sem það getur komið
saman og skemmt sér á heilbrigðan hátt úti
í náttúrunni.
Myndir frá Svartsengishátíðinni í sumar. Sú til
vinstri er tekin við innganginn, en á hinni myndinni
sést yfir mótssvæðið. (Ljósm.: S. Geirdal)
24
SKI N.FAXI