Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1970, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.06.1970, Blaðsíða 12
bæði þessi stórmenni í sama flokki, en það er önnur saga. — Hvað finnst þér eftirminnilegast frá stjórnarárum þínum í UMSS? — Það er margs að minnast t.d. hér- aðsmótsins 1930. Til þess var sérstak- lega vandað, og þar tókum við á móti Vestur-íslendingum, sem komu til ls- lands vegna Alþingishátíðarinnar. Þetta mót var haldið að Garði í Hegranesi, hin- um forna þingstað Skagfirðinga. Ekki er ég heldur búinn að gleyma baráttu skag- firskra ungmennafélaga fyrir vemdun þessa merka sögustaðar. Þarna em um 80 búðarústir, sumar sennilega frá þjóð- veldistímanum. Við lögðum mikla áherzlu á, að UMSS fengi þetta svæði til varðveizlu og sem liátíðastað. Landeig- endur vildu hins vegar ekki selja okkur landið þrátt fvrir ítrekaðar umleitanir /----------------------------------- Skagfirðingar Ferðafólk ★ Vanti ykkur eitthvað í matinn, þá líitiS við. ★ IVIATVÖRUBÚÐIN s.f., Aðalgötu 8 - Sauðárkróki Sími (95)5303 ---------------------------------f okkar. Svo kom að því, að ábúandi liugð- ist plægja upp landið til ræktunar, en það varð til þess að þjóðminjavörður tók staðinn á fornminjaskrá og bannaði allt jarðrask þar, og áttum við í stjórn UMSS hlut að því, að svo var gert. — Finnst þér ungmennafélögin vera frábrugðin því, sem þau voru í upphafi? — Að sjálfsögðu hafa störf þeirra og verkefni breytzt og aukizt með tíman- um. Þjóðfélagið hefur tekið miklu breyt- ingum, einkum urðu breytingamar stór- stígar á styrjaldarárunum. Mér sýnist starf ungmennafélaganna vera orðið miklu fjölbreyttara en áður var, og er það að vonum, því aliar ytri aðstæður eru nú betri. Við kvöddum Sigurð á hlaðinu á hinu forna höfðingjasetri, Glaumbæ, þar sem hann tekur á móti gestum úr ýmsum heimshornum. Þetta var á björtum sum- ardegi og við blöstu Glaumbæjareyjarn- ar, þar sem óvænt leikhlé varð í knatt- spyrnukeppni fyrir 54 árum. Meðal ungl- inganna, sem kepptu, voru þeir Jón á Reynistað og Sigurður á Kárastöðum. Sá, sem leikrofinu olli, var þáverandi rit- stjóri Skinfaxa, Jónas Jónsson. Um það leyti var hann enn að berjast af sinni al- kunnu hörku fyrir því, að ungmennafé- lögin næðu að festa rætur með þjóðinni, jafnframt því sem hann hellti úr skálum reiði sinnar yfir filisteana. Þótt langt sé nú síðan þeir Jón og Sigurður hættu knattspyrnukeppni, hafa þeir marga hildi háð um dagana, og, eitt er víst: Ung- mennafélagshreyfingin og Ungmenna- samband Skagafjarðar skuldar þeim stórar þakkir, því þeir eiga mikinn þátt í því að ungmennamélögin standa nú traustum fótum í byggðum Skagafjarð- ar. 12 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.