Skinfaxi - 01.06.1970, Blaðsíða 4
■ m 1 ■ i
1 ^
Þetta er landsmóts-
nefndin, sem annast
undirbúning og fram-
kvæmd 14. landsmóts
XJMFÍ. Talið frá
vinstri: Stefán Guð-
mundsson, Sigurður
Guðmundsson, Þór-
oddur Jóhannsson,
ritari, Stefán Pedersen,
formaður, Magnús
Sigurjónsson, Gísli
Felixson og Sigfús
Ólafsson. Myndin er
tekin á fullskipuðum
fundi nefndarinnar á
Sauðárkróki í júlí-
mánuði.
LANDSMÓTIÐ NÆSTA SUMAR
Þriðja hvert ár mætast ungmennafélagar
hvaðanæva af landinu á landsmóti UMFÍ
og gleðjast við leik og skemmtan og keppni.
Starf ungmennafélaganna milli landsmóta
tekur jafnan mið af þessum stórhátíðum, og
nú er aðeins eitt ár til næsta landsmóts.
Dagana 10. og 11. júlí næsta sumar verður
14. landsmót UMFÍ háð á Sauðárkróki. Ung-
mennasamband Skagafjarðar annast undir-
búning og framkvæmd mótsins.
Af þessu tilefni heimsótti Skinfaxi skag-
firzka ungmennafélaga, og þetta hefti blaðs-
ins er helgað UMSS, starfi þess í félagsmál-
um Skagafjarðarhéraðs og að undirbúningi
landsmótsins. Um þessar mundir eru merk
tímamót í sögu Ungmennasambands Skaga-
fjarðar. Sambandið á sextugsafmæli í ár og
vinnur nú að því stóra verkefni að sjá um
landsmót UMFÍ. Verulegt átak er gert í
byggingu íþróttamannvirkja á Sauðárkróki,
og þessi höfuðstaður héraðsins á 100 ára
byggðarafmæli, sem haldið verður hátíðlegt
um sama leyti og landsmótið fer fram þar á
staðnum.
Forsíðumyndin á þessu blaði er tekin á
sundmóti í hinni myndarlegu sundlaug á
Sauðárkróki, en þar á staðnum hefur sund-
mennt staðið með blóma um langt skeið. Á
þessum stað mætast íslenzkir ungmennafél-
agar að sumri.
4
SKINFAXI