Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1970, Page 5

Skinfaxi - 01.06.1970, Page 5
U ngmennasamband Skagafjarðar 60 ÁRA Hinn 17. apríl árið 1910 komu 8 ungir menn saman til fundar að Vík í Staðar- hreppi og stofnuðu Ungmennasamband Skagafjarðar. Þetta voru fulltrúar fjög- urra ungmennafélaga í héraðinu. Fyrsta stjórn UMSS var þarna kosin, og var hún þannig skipuð: Brynleifur Tobíasson, Geldingaholti, formaður; Árni J. Hafstað, Vík, ritari og Jón Sigurðsson, Reynistað, gjaldkeri. Það er ekki vegna þess að skagfirzkir ungmennafélagar hafi gleymt þessu merkisafmæli sambandsins að þeir halda ekki stórafmælishátíð í ár. Atvikin haga því svo, að höfuðstaður héraðsins á 100 ára byggðarafmæli á næsta ári, og auk þess annast Ungmennasamband Skaga- fjarðar undirbúning og framkvæmd 14. landsmóts UMFÍ næsta sumar. Þessi stórverkefni og stórhátíðir krefjast starfs og einbeitni, og forystumenn UMSS telja sextugsafmælisins bezt minnst með því að gera landsmótið vel og eftirminnilega úr garði. Hið sextuga afmæhsbarn tekst nú á hendur stærsta og vandasamasta verkefnið í sögu sinni. Skinfaxi óskar UMSS til hamingju með hvort tveggja — afmælið og afmælis- verkefnið. Núverandi stjórn UMSS. Frá vinstri: Stefán Guðmundsson, Guð'jón Ingimundar- son, formaður, Ámi M. Jónsson, Stefán Ped- ersen og Helgi R. Traustason. SKINFAXI 5

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.